Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 11
Fordómar hafa gert það að verkum að íslenskt samfélag hefur haft tilhneigingu til þess
að líta á þá sem þjást af fíknisjúk-
dómum sem óþekktaranga og dóna,
en ekki sjúklinga, og meðhöndla þá
eins og skólakrakka, skipa þeim að
spýta tyggjóinu í ruslafötuna og
standa úti í horni frekar en að sjá
þeim fyrir viðeigandi læknismeð-
ferð. Það er hins vegar orðið erfitt
að halda í þessa skoðun vegna þess
að óþekktarangar eru að deyja
umvörpum af óþekktinni einni
saman og dónaskap. Staðreyndin
er sú að fíknisjúkdómar deyða
fleiri á aldrinum 18-40 ára en allir
aðrir sjúkdómar á Íslandi og samt
er engin stofnun á vegum hins
opinbera heilbrigðiskerfis að sinna
þeim af viti. Meðferð við þeim er að
mestu komin yfir á herðar SÁÁ sem
sinnir þeim af myndarskap þótt
betur megi ef duga skal vegna þess
að stuðningur hins opinbera er af of
skornum skammti.
Það gladdi mig þegar þú ásamt
nokkrum öðrum þingmönnum
reist úr sæti um daginn og ræddir
ópíatakrísuna á vinnustað ykkar
og í fjölmiðlum. Það sýndi svo ekki
verður um villst að ykkur er ekki
sama og viljið gera eitthvað í mál-
inu. Það varð hins vegar líka ljóst á
þessum umræðum að þið eruð ekki
endilega að vinna úr bestu fáanlegu
upplýsingum. Til dæmis:
1 . Þú lést hafa eftir þér að SÁÁ
hefði gefið út yfirlýsingu um að
þau ætluðu ekki að taka á móti
ungum fíklum (sautján ára og
yngri) og gafst í skyn að þau
hefðu ekki vilja til þess, þess
vegna væri nauðsynlegt að koma
á fót nýrri miðstöð til meðferðar
á ungum fíklum. Staðreyndin er
sú að SÁÁ var gagnrýnt grimmi-
lega fyrir að hýsa unga fíkla á
Vogi í sama húsnæði og full-
orðna og hafði ekki fjárhagslegt
bolmagn til þess að skilja á milli
aldurshópanna. Þess vegna gaf
SÁÁ út yfirlýsingu um að þau
treystu sér ekki til þess að hýsa þá
lengur, þótt þau hafi gert það að
sama marki í ár og í fyrra, vegna
þess að þeir eiga ekki í annað
hús að venda. SÁÁ býr að fágætri
reynslu, þekkingu og getu til þess
að meðhöndla fíklana ungu og
það væri mun ódýrara og líklegra
til árangurs að veita fé til þess að
skilja á milli þeirra og hinna full-
orðnu á Vogi en að setja saman
nýja miðstöð.
2. Íslensk erfðagreining og SÁÁ
eru í samvinnu við sérfræðinga
frá bandarísku heilbrigðismála-
stofnuninni um rannsóknir á
erfðum fíknar og koma þeir til
landsins í það minnsta annað
hvort ár. Þeim ber saman um
að meðferðin á Vogi og nálgun
SÁÁ á fíknisjúkdóma almennt sé
til fyrirmyndar og betri en þeir
þekki í sínu heimalandi. Það
væri því við hæfi að hið opinbera
nýtti sér getu SÁÁ til þess að setja
saman viðbrögð við núverandi
krísu, í stað þess að tala um þau
og til þeirra eins og þeim sé málið
minna heldur en meira skylt og
þau séu kannski pínulítið fyrir.
3. Þið þingmenn stóðuð upp og
tjáðuð ykkur um ópíatakrísuna
þótt fíknikrísan á Íslandi sé aðal-
lega krísa í notkun örvandi lyfja,
minna í notkun ópíata þótt hún
sé svo sannarlega alvarleg. Á
síðasta ári voru 200 innlagnir á
Vog út af ópíötum en 800 út af
örvandi lyfjum.
4. Í umræðum á Þingi sagðir þú að
hið opinbera ætlaði að verja 50
milljónum króna í að koma upp
neysluhúsnæði fyrir fíkla á þessu
hausti. Það er ólíklegt að þannig
neysluhúsnæði yrði til vansa og
sá möguleiki er fyrir hendi að það
gæti leyst einhvern vanda sumra.
Mér finnst líklegt að hugmyndin
eigi rætur sínar hjá Rauða kross-
inum sem vann stórt afrek með
því að byrja að dreifa hreinum
nálum og sprautum meðal fíkla
og minnka þannig líkur á hættu-
legum sýkingum meðal þeirra.
Það væri gott að vita af fíklunum
okkar sprauta sig við boðlegri
kringumstæður og öruggari en
skringilegt að setja það ofar á
forgangslista en meðferð og for-
varnir.
5. Eitt af stóru vandamálunum
við meðferð fíknisjúkdóma er
skortur á vilja sjúklingsins til
þess að þiggja meðferð og þegar
viljinn loksins kemur hefur hann
tilhneigingu til þess að endast
skammt. Það er því mikilvægt að
geta boðið sjúklingnum meðferð
þegar hann vill hana. Þess vegna
er biðlisti á stofnun eins og Vogi
óásættanlegur. Í dag er biðlistinn
á Vogi 590 manns. Það eru teknir
inn sex manns á dag en þyrftu að
vera átta til þess að losna við bið-
listann. Það myndi kosta um það
bil 200 milljón krónur á ári að
bæta við þessum tveimur á dag.
6. Fíknisjúkdómar eru banvænustu
sjúkdómar ungs fólks á Íslandi
og samt finnst hinu opinbera
eðlilegt að skammta meðferð
við þeim á þann máta að ekkert
slíkt þekkist miðað við aðra sjúk-
dóma. Sjúkratryggingar borga
bara fyrir 1500 af þeim 2200
innlögnum sem eru á Vog á ári
hverju. Hverjar eru röksemdirnar
fyrir því, hæstvirtur heilbrigðis-
ráðherra?
7. Fíknisjúkdómar eru langvinnir
og skynsamlegt að líta svo á að
þeir fylgi einstaklingnum um
aldur. Það er því mikilvægt að
hafa til staðar aðferðir til þess
að styðja hann eftir að hann er
útskrifaður og það er best gert í
gegnum göngudeild. Sjúkratrygg-
ingar borga ekki fyrir göngu-
deildarþjónustu sem SÁÁ vill
bjóða upp á og það sama á við
um forvarnarstarf sem SÁÁ hefur
skipulagt.
Fíknisjúkdómar hafa lent utan-
garðs hjá heilbrigðiskerfinu okkar
opinbera og eru nú að mestu leyti
á könnu áhugamannasamtakanna
SÁÁ. Þar hefur í gegnum tíðina
safnast saman þekking, reynsla og
geta sem hefur lyft grettistaki. Það
þarf hins vegar að gera betur með
því að skilja á milli unglinga og full-
orðinna inni á Vogi og milli karla
og kvenna. Það þarf að fjármagna
bæði göngudeildarmeðferð og for-
varnir, og ekki síst þarf að losna við
biðlista. Það væri erfitt og kannski
ókleift að byggja upp innan opin-
bera kerfisins viðlíka getu og er til
staðar hjá SÁÁ.
Skynsamlegast væri af hinu
opinbera að skilgreina þörfina
fyrir meðferð á fíknisjúkdómum
og forvarnir með aðstoð SÁÁ og
fela þeim síðan sem verktaka heil-
brigðiskerfisins að mæta þörfinni.
Sá einkarekstur sem SÁÁ stundar
hljómar eins og tónlist í eyrum
gamla sósíalistans sem skrifar þessi
orð og ég vona svo sannarlega að þú
heyrir hana líka.
Fugl í hendi – bréf til heilbrigðisráðherra
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar
Fíknisjúkdómar eru ban-
vænustu sjúkdómar ungs
fólks á Íslandi og samt finnst
hinu opinbera eðlilegt að
skammta meðferð við þeim
á þann máta að ekkert slíkt
þekkist miðað við aðra
sjúkdóma. Sjúkratrygg-
ingar borga bara fyrir 1500
af þeim 2200 innlögnum
sem eru á Vog á ári hverju.
Hverjar eru röksemdirnar
fyrir því, hæstvirtur heil-
brigðisráðherra?
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Gríptu tækifærið og fáðu þér nýjan ŠKODA á besta verðinu
strax í dag. Hlökkum til að sjá þig!
Škodaðu verðið
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
a
ð
up
pf
yl
ltu
m
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
Besta Škodaverðið 4.750.000 kr.
Škoda Superb Combi Ambition / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Listaverð: 5.230.000 kr.
480.000 kr.
Afsláttur
Besta Škodaverðið 3.750.000 kr.
Škoda Octavia Limo Ambition / 1.6 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Listaverð: 4.090.000 kr.
340.000 kr.
Afsláttur
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 2 4 . o k T ó B e R 2 0 1 8
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
7
-1
4
9
0
2
1
2
7
-1
3
5
4
2
1
2
7
-1
2
1
8
2
1
2
7
-1
0
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K