Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 52
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Það eru 22 ár síðan ég las þetta síðast og það munaði litlu að ég myndi ekki um hvað þetta væri,“ segir Hlín Agnarsdóttir sem skrifaði Konur skelfa, klósettdrama
í tveimur þáttum.
Verkið verður leiklesið í Hannesar-
holti í kvöld klukkan 20 og endurtekið
sunnudaginn 28. október. Leikritið var
leikið í Borgarleikhúsinu 1996-1997 og
sýnt 75 sinnum yfirleitt fyrir fullu húsi.
Það var einnig flutt í sjónvarpi 1998 á
Stöð 2.
Leikritið fjallar um fimm konur sem
fara út að skemma sér í Reykjavík og
hittast af og til á kvennaklósetti
skemmtistaðarins. Þar trúa
þær hver annarri fyrir
löngunum sínum og til-
finningum en rata líka
í ýmis vandræði þegar
áfengismagnið í blóð-
inu eykst og músíkin
verður háværari.
Hljómsveitin Skárr-
enekkert gerði tónlistina
við verkið sem síðan var
gefin út.
Hlín Agnarsdóttir leikstýrði
verkinu á sínum tíma en hlutverkin
voru leikin af Önnu Elísabetu Borg,
Ástu Arnardóttur, Kjartani Guðjóns-
syni, Maríu Ellingsen, Steinunni Ólafs-
dóttur og Valgerði Dan. Nú ætlar þessi
sami hópur með einni undantekningu
að koma fram í Hannesarholti og leik-
lesa verkið á degi Sameinuðu þjóðanna.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir hefur
umsjón með lestrinum.
Hlín segir að verkið hafi staðist tímans
tönn. „Það eru þessar eilífu útlitspæling-
ar kvenna og hvað þær eru uppteknar af
útliti sínu. Og hvað sjálfsmynd kvenna
ræðst mikið af því hvernig þeim líður
útlitslega.
Það hefur ekkert breyst og mér sýnist
að ég hafi verið á undan minni samtíð.“
benediktboas@frettabladid.is
Verkið sem var töluvert
á undan sinni samtíð
Konur skelfa, klósettdrama í tveimur þáttum eftir Hlín Agnarsdóttur, verður leiklesið í
Hannesarholti í dag. Leikritið fjallar um fimm konur sem fara út að skemma sér í Reykja-
vík og hittast af og til á kvennaklósetti skemmtistaðarins. Verkið var ógnar vinsælt.
Leikritið var leikið í Borgarleikhúsinu 1996-1997 og sýnt 75 sinnum yfir-
leitt fyrir fullu húsi. Það var einnig flutt í sjónvarpi 1998 á Stöð 2.
Það eru
þessar
eilífu útlitspælingar
kvenna og hvað þær
eru uppteknar af
útliti sínu. Og hvað
sjálfsmynd kvenna ræðst
mikið af því hvernig þeim líður
útlitslega.
Hlín Agnarsdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu,
hlýju og samúð við veikindi og andlát
Jónínu Margrétar
Ólafsdóttur
leikkonu og Alexandertæknikennara.
Sonja Margrét Scott Axel Einar Guðnason
Felix Guðni Axelsson
Lára Axelsdóttir Scott
Alexía Margrét Axelsdóttir
Svanhvít Ólafsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar,
faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
Karl Harðarson
andaðist 5. október.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 25. október kl. 15.
Ragnheiður Lára Jónsdóttir
Hörður Sófusson Geirlaug Karlsdóttir
Hörður Karlsson Bylgja Dögg Sigmarsdóttir
Haukur Karlsson Elsa Sól Gunnarsdóttir
Auður Karlsdóttir Jón Stefán Hannesson
Embla Harðardóttir
Bryndís Harðardóttir
Frændi okkar,
Jón Þorberg Valdimarsson
sem lést þann 12. október síðastliðinn
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
31. október kl. 13.
Valdimar Guðlaugsson
Ólína Guðlaugsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Jarþrúður Ingibjörg
Kristjánsdóttir
frá Ási, Dalabyggð,
andaðist á Dvalarheimilinu Silfurtúni
fimmtudaginn 18. október sl. Útför hennar
mun fara fram frá Staðarhólskirkju í Saurbæ laugardaginn
27. október kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
styrktarsjóð Silfurtúns, reikn.nr. 0312-13-700021,
kt. 530586-2359 (Lionsklúbbur Búðardals).
Jóhann Sæmundsson
Sæmundur G. Jóhannsson
Jóhanna B. Jóhannsdóttir Guðbjörn Guðmundsson
Margrét Jóhannsdóttir Finnbjörn Gíslason
Kristján V. Jóhannsson Svanhildur Halldórsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir Þórður Már Svavarsson
Jarþrúður H. Jóhannsdóttir Freyr Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
Þorgrímur Á. Guðmannsson
Lerkidal 20, Reykjanesbæ,
áður Hraunbæ 108, Reykjavík.
lést á heimili sínu miðvikudaginn
17. október. Útför fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 26. október kl. 13.00. Okkar innilegustu
þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug.
Þorbjörg K. Þorgrímsdóttir Ragnar A. Gunnarsson
Vilmundur A. Guðmannsson
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Gyða Arndal Svavarsdóttir
Sóltúni 2, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
fimmtudaginn 18. október.
Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni í
Reykjavík, mánudaginn 29. október klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurborg Valdimarsdóttir Ásgeir Valdimarsson
Þorgerður Hreiðarsdóttir Hörður Hreiðarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristbjörg Ólafsdóttir
Suðurlandsbraut 62, Mörkinni,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn
18. október. Útförin verður gerð frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn
25. október kl. 15.00.
Hjördís Jóna Sigvaldadóttir Hjalti Már Hjaltason
Grétar Jóhannes Sigvaldason Róslinda Jenný Sancir
Hjörtur Sigvaldason Sigrún Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
Hjörtur Böðvarsson
Gránufélagsgötu 26, Akureyri,
lést að heimili sínu laugardaginn
6. október. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey.
Sif Hjartardóttir, Ásgeir Hjartarson, Hlynur Hjartarson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Kristján Guðbjörn Jónsson
frá Ísafirði,
sem lést á heimili sínu síðastliðinn
laugardag, verður jarðsunginn frá
Fella- og Hólakirkju föstudaginn
26. október klukkan 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Rannveig Guðmundsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Pétur Sigurðsson
fv. forseti
Alþýðusambands Vestfjarða,
andaðist sunnudaginn 14. október.
Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 25. október kl. 15.00. Útförin fer fram
frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 27. október kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess.
Hjördís Hjartardóttir
Sigurður Pétursson Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Edda Pétursdóttir Bergsteinn Baldursson
og afabörn.
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
7
-0
0
D
0
2
1
2
6
-F
F
9
4
2
1
2
6
-F
E
5
8
2
1
2
6
-F
D
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K