Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Á Karlsstöðum í Beru­firði er rekin menn­ingarmiðstöðin Hav­arí sem margir ættu að kannast við. Ábú­endur og stjórnendur Havarís eru hjónin Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson. Þar er viðamikil starfsemi og eiginlega nærtækara að telja það upp sem er ekki gert þar. Meðal annars er Havarí kaffihús og tónleikastaður, en ýmis­ legt fleira fer þar fram. „Við leggjum áherslu á grænmetis­ mat og staðbundin hráefni, lífrænan kost. Við höfum verið að rækta græn­ meti og verið með alls konar tilraun­ ir í matvælaframleiðslu – við fram­ leiðum grænmetispylsurnar bulsur. Hér rekum við líka gistiheimili auk þess sem tónlistarmaðurinn Prins Póló gerir út héðan,“ segir Berglind og bætir við að þau séu nýbúin að opna vefverslun, þannig að nú séu þau einnig verslunareigendur í ofanálag við allt hitt. „Ætli við séum ekki bara búin að vera að bralla ýmislegt síðan við fórum að standa á eigin fótum. Við sameinuðum svo krafta okkar fyrir 15 árum og höfum varla stoppað síðan. Við bjuggum í borginni og vorum í níu til fimm vinnu en svo vorum við komin með svo mörg verkefni ofan á það að við ákváðum að finna okkur jarðnæði þar sem við gætum rekið öll þessi verkefni á einum stað. Fyrst var sá staður á Seyðisfirði þar sem við heilluðumst af lífinu úti á landi og ákváðum í kjölfarið að taka þetta enn lengra og flytja á sveitabæ þar sem væri hægt að gera í raun allt sem okkur dytti í hug – svo hafa skipst á skin og skúrir síðan,“ segir Berglind beðin um að útskýra í stuttu máli hvers vegna þau enduðu þarna fyrir austan. Havarí skellti sér í ár í viðskipta­ hraðalinn Startup Tourism. Um er að ræða viðskiptahraðal á vegum Ice­ landic Startups sem er sérsniðinn að þörfum fyrirtækja á sviði ferðaþjón­ ustu. Berglind segir helstu pælinguna á bak við þátttökuna hafa verið þá að tengja sig betur inn í heim ferða­ þjónustunnar. „Við vöðum í verkin og byrjum bara – sem er kostur að vissu leyti, en svo er stundum gott að staldra við og hugsa hvert maður stefnir og við sáum þarna tækifæri til að ná aðeins betur utan um verkefnin og tengja okkur aðeins betur inn í ferðaþjón­ ustuna. Okkar bakgrunnur er í tón­ listarbransanum og í fjölmiðlum auk þess sem Svavar er grafískur hönn­ uður. Svo vorum við allt í einu komin á kaf í ferðaþjónustu án þess að vita neitt sérstaklega mikið um hvernig sá bransi virkar. Þátttaka okkar í Start­ up Tourism var „crash course“ í því.“ Flest fyrirtæki sem taka þátt í hraðlinum eru nýbyrjuð með sína starfsemi eða við það að fara af stað en Havarí er búið að vera til í nokkur ár. Berglind segir það þó ekki hafa komið að sök. Þau hafi getað miðlað ákveðnum atriðum sjálf auk þess að læra nýja hluti. „Það er boðið upp á svokallaða mentor fundi og þannig höfðum við beinan aðgang að reynsluboltum úr atvinnu­ og fjármálalífinu og svo auðvitað ferðabransanum, sem var kjörinn vettvangur til að spegla hug­ myndir. Þetta var svolítið eins og að fara í skóla og fagið er manns eigið fyrirtæki. Svo þetta var dýrmætur tíma til að skoða og endurhugsa margt sem betur má fara. Dagsdaglega erum við mikið ,,á gólfinu“ sem er líka mikilvægt en það er nauðsynlegt að líta upp reglu­ lega og skoða heildarmyndina. Það var líka mjög góður andi í hópnum og við kynntumst ótrúlega mörgu góðu fólki.“ Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn fyrir 2019 til 3. desember á start­ uptourism.is. stefanthor@frettabladid.is Ýmislegt brallað í Havaríi Í menningarmiðstöðinni Havaríi í Berufirði er ýmislegt brallað. Þar er grænmeti ræktað, bulsur framleiddar, ferðaþjónusta og það nýjasta er verslunarrekstur. Havarí skellti sér í Startup Tourism hraðalinn. Í Havaríi er ótrúlega margt brallað og tilraunastarfsemin í hávegum höfð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson fluttu í sveitina til að geta gert það sem þau vilja, sem þau hafa svo sannarlega gert hingað til. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN. Við Vöðum í Verkin og byrjum bara – sem er kostur að Vissu leyti, en sVo er stundum gott að staldra Við og Hugsa HVert maður stefnir. Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is Opnunartími Mánudaga - föstudaga milli kl. 10:00 og 18:00 Laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00 Toyota Land Cruiser 150GX Honda CR-V Executive Honda Civic Comfort Honda Jazz Trend Nýskráður 8/2016, 7 manna, ekinn 74 þús.km., dísel, sjálfskiptur. Nýskráður 2/2017, ekinn 29 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Nýskráður 6/2017, ekinn 29 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Nýskráður 7/2017, ekinn 28 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Verð kr. 6.990.000 Afborgun kr. 89.995 á mán.* Verð kr. 5.190.000 Afborgun kr. 66.829 á mán.* Verð kr. 2.790.000 Afborgun kr. 35.995 á mán.* Verð kr. 2.290.000 Afborgun kr. 29.572 á mán.* 2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r26 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 2 6 -F B E 0 2 1 2 6 -F A A 4 2 1 2 6 -F 9 6 8 2 1 2 6 -F 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.