Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 38
Jakobína H. Árnadóttir sviðs-stjóri segir Capacent bjóða fyrirtækjum og stofnunum
ráðgjöf og þjónustu við undirbún-
ing að jafnlaunavottun. „Við förum
yfir alla þætti sem fyrirtæki þurfa
að hafa í lagi til að hljóta jafnlauna-
vottun. Okkar markmið er að við-
skiptavinir þekki kröfurnar sem til
þeirra eru gerðar í jafnlaunakerfi,
hafi betri yfirsýn yfir sín launa-
mál og séu sjálfbær í að viðhalda
kerfinu þegar fram í sækir. Það
er mjög breytilegt hversu flókið
ferlið er og fer í rauninni eftir því
hvað fyrirtækin eru vel undirbúin,“
segir hún. „Í sumum fyrirtækjum
hefur lítið verið farið kerfisbundið
yfir launatengd mál og þá er meiri
vinna að laga og bæta. Hjá öðrum
fyrirtækjum eru launamálin sífellt
í skoðun og hjá þeim þarf minna
að gera,“ segir Gunnar Haugen ráð-
gjafi. „Hluti af undirbúningi fyrir
jafnlaunavottun er gerð jafnlauna-
stefnu, ferla og verklagsreglna.
Þessi vinna þarf ekki að vera
flókin en krefst nokkurrar yfirlegu,
skráningar og aga,“ segir Jakobína.
„Capacent leggur áherslu á að gera
hlutina ekki flóknari en þeir þurfa
að vera,“ bætir hún við.
„Markmiðið með kröfu um jafn-
launavottun er að greidd séu sömu
laun óháð kyni fyrir jafnverðmæt
störf. Það er nýtt fyrir marga að
skoða hvaða störf eru jafnverðmæt
innan fyrirtækis og hvaða starfs-
menn eru sambærilegir. Mikið
af undirbúningsvinnunni fer í
að greina störf og svara þessum
spurningum,“ segir Gunnar.
Jakobína segir að hvert og eitt
fyrirtæki fái persónulega þjónustu
enda séu þau ólík að stærð og gerð
auk þess að vera með ólíkan grunn.
„Við leggjum mikla áherslu á að
vinnan okkar komi að góðu gagni
í öllu skipulagi er varðar launamál
fyrirtækisins. Þetta er ákveðin til-
tekt sem hefur áhrif á ákvörðunar-
tökur í framtíðinni. Greiningin
eykur skilning á verðmæti starfa og
hlutirnir verða miklu einfaldari og
skilvirkari,“ segir Jakobína.
Undirbúa fyrirtæki
fyrir jafnlaunavottun
Gunnar Haugen og Jakobína H. Árnadóttir. MYND/ERNIR
Jafnréttisvísir er verkfæri fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja ná raunverulegum
árangri í jafnréttismálum. Í verk-
efninu felst heildstæð nálgun að
jafnréttismálum.
„Við tölum stundum um 360
gráða sýn á jafnrétti,“ segir Þórey
Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi í Stefnu-
mótun og stjórnun, en hún leiðir
verkefnið Jafnréttisvísi hjá Capa-
cent. „Um er að ræða stefnumótun
og vitundarvakningu í jafnréttis-
málum sem ætlað er að meta stöðu
jafnréttismála út frá ítarlegri
greiningarvinnu, koma á breyt-
ingaverkefnum til að bæta stöðu
jafnréttismála og innleiða þau.“
Í stöðumatinu er horft
til nokkurra lykilþátta:
l Menningar, samskipta og
vinnuumhverfis
l Stefnu og skipulags
l Skipurits
l Launa
l Fyrirmynda
„Eitt af því sem að við höfum
lagt ríka áherslu á frá upphafi er að
við ráðumst ekki í verkefnið með
fyrirtæki nema það sé forstjóri
þess eða stjórn sem leiði vinnuna,“
segir Þórey og bætir við að reynt
sé að gefa öllu starfsfólki kost á að
taka þátt í vinnunni á einhverju
stigi, t.d. með vinnustofum þar sem
umræða og fræðsla á sér stað um
margvísleg atriði og kallað er eftir
hugmyndum að úrbótatækifærum.
„Með beitingu Jafnréttisvísisins
er tekið á öllum helstu þáttum er
snerta stöðu kynjanna og spurt
hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu
að kynin njóti jafnréttis og að
konur fái framgang innan fyrir-
tækja til jafns á við karla.
Í verkefninu vinnum við sér-
staklega með fyrirtækjamenn-
inguna og reynum að draga dulda
fordóma upp á yfirborðið, gera þá
sýnilega og vinna að því að útrýma
þeim. Þannig fáum við betri vinnu-
stað þar sem jafnt konum sem
körlum líður betur og eru ánægð-
ari í sínum daglegum störfum.“
Raunhæfur
árangur með
jafnréttisvísi
Þórey Vilhjálmsdóttir.
Capacent leggur
áherslu á að
þekking á jafn-
launakerfi verði
eftir í fyrirtækinu
þegar ráðgjafar
ljúka sinni vinnu.
Jafnréttisvísir Capacent
fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja ná raunverulegum árangri.
„Heildstæð úttekt á stöðu jafnréttismála í
Landsvirkjun, ekki aðeins á mælanlegum
þáttum eins og kynjahlutfalli og launum,
heldur einnig á menningu, samskiptum og
vinnuumhverfi. Samstarfið við Capacent hefur
hjálpað okkur að greina stöðuna og virkja allt
okkar starfsfólk á þessari mikilvægu vegferð.“
Hörður Arnarson
forstjóri Landsvirkjunar
„Verkefnið hefur ýtt við fólki og vakið það
til umhugsunar um hluti þar sem ákveðin
meðvirkni var við lýði. Við erum ekki komin á
neina endastöð en ferlið hefur fengið marga til
að hugsa betur um framkomu á vinnustaðnum.
Þessi vinna hefur þegar haft heilmikil áhrif á
aðferðafræði við ráðningar og framgang fólks
innan félagsins.“
Sigurður Viðarsson,
forstjóri TM
„Í Landsbankanum, sem og í samfélaginu
öllu, hefur orðið mikil vitundarvakning í
jafnréttismálum. Með samstarfinu við Capacent
og beitingu Jafnréttisvísins fáum við aðstoð
við að greina stöðuna ítarlega, móta skýr
markmið og vera almennt meðvitaðri í öllum
samskiptum í þeim tilgangi að byggja upp gott
starfsumhverfi og jákvæða og uppbyggilega
fyrirtækjamenningu.“
Lilja Björk Einarsdóttir,
bankastjóri Landsbankans
jafnrettisvisir.is
14 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . o K tó B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RJAfNRéttI
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
7
-1
E
7
0
2
1
2
7
-1
D
3
4
2
1
2
7
-1
B
F
8
2
1
2
7
-1
A
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K