Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 55
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
24. október 2018
Tónlist
Hvað? Valdimar
Hvenær? 21.00
Hvar? Bryggjan Brugghús
Hljómsveitin Valdimar ætlar að
koma fram á Bryggjunni miðviku-
dagskvöldið 24. október. Tónleikar
hefjast uppúr kl. 21 og það er frítt
inn.
Hvað? Flekar – útgáfutónleikar
ásamt Lay Low á Húrra
Hvenær? 20.00
Hvar? Húrra, Naustunum
Hljómsveitin Flekar gefur út sína
fyrstu plötu, Swamp Flowers, þann
8. október og mun hljómsveitin
fagna því með veglegum útgáfutón-
leikum á Húrra þann 24. október
næstkomandi. Stórvinkona hljóm-
sveitarinnar, Lay Low, mun hjálpa
þeim til við að koma gestum í gír-
inn. Miðaverð eru litlar 1.500 kr. og
má kaupa sig inn við innganginn.
Hvað? Skoffín, Jón Þór og Julian
Civilian á Gauknum
Hvenær? 21.00
Hvar? Gaukurinn, Tryggvagötu
Frítt inn.
Hvað? Skuggakvartett Sigurðar
Flosasonar á Múlanum
Hvenær? 21.00
Hvar? Harpa
Á næstu tónleikum haustdagskrár
Múlans kemur fram Skuggakvar-
tett, saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar. Flutt verður tónlist
á mörkum djass og blús af fyrri
plötum Sigurðar í þeim stíl; Bláir
skuggar, Blátt ljós og Blátt líf. Einnig
verða flutt ný lög í sama stíl. Djass-
aður blús og blúsaður djass mætast
á miðri leið. Ásamt Sigurði koma
fram, gítarleikarinn Andrés Þór
Gunnlaugsson, Þórir Baldursson á
Hammond orgel og Jóhann Hjör-
leifsson sem leikur á trommur.
Hvað? Af fingrum fram – Jón Ólafs
og Gunnar Þórðar
Hvenær? 20.00
Hvar? Tónlistarskólinn á Akranesi
Upptaktur Vökudaga í ár eru
spjalltónleikar í stjórn Jóns Ólafs-
sonar. Gestur hans verður Gunnar
Þórðarson sem er landsmönnum
að góðu kunnur. Lög
þessa meistara mel-
ódíunnar eru löngu
greypt í þjóðarsálina
og mun hann flytja
sín þekktustu lög milli
þess sem hann rabbar
við Jón um einstakan
tónlistarferil og lífshlaup.
Hvað? Lög eftir Atla Heimi Sveinsson
á Háskólatónleikum
Hvenær? 12.30
Hvar? Hátíðasalur Háskóla Íslands
Ágúst Ólafsson, barítón, og
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanó, munu flytja lög eftir Atla
Heimi Sveinsson við þekkt ljóð
eftir Stephan G. Stephansson á
Háskólatónleikum þann 24. októ-
ber næstkomandi. Tvö laganna
verða frumflutt á tónleikunum.
Viðburðir
Hvað? Gísli Sigurðsson um Biblíuna
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Hvaða minningar á Gísli Sigurðs-
son rannsóknarprófessor, um
Biblíuna? Hvernig metur hann
gildi hennar? Áhrifasaga Biblíunn-
ar er mikilfengleg. Hvað í Biblí-
unni skiptir nútímafólk máli og
hvað gegnir hlutverki í menningu
samtíðar? Í haust mun hópur fólks
tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju,
rifja upp persónulegar minningar
og ræða um nútímagildi biblíu-
boðskapar. Gísli er fjórði í röð átta
frummælenda í Biblían – menning
og minning.
Hvað? Kvennafrí 2018 – KVENNA-
VERKFALL
Hvenær? 14.55
Hvar? Arnarhóll
Konur í Háskóla Íslands eru
hvattar til að leggja niður vinnu kl.
14.55 miðvikudaginn 24. október
og fylkja liði á samstöðufund á
Arnarhóli, kl. 15.30 undir kjörorð-
inu: Breytum ekki konum, breyt-
um samfélaginu! Femínistafélag
Háskóla Íslands og RIKK – Rann-
sóknastofnun í jafnréttisfræðum
hvetja konur á Háskólasvæðinu
til að safnast saman og ganga í
fylkingu niður á Arnarhól og
taka þátt í dagskránni þar.
Hvað? Konur skelfa eftir Hlín
Agnarsdóttur
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt,
Grundarstíg
Konur skelfa, kló-
settdrama í tveim-
ur þáttum eftir
Hlín Agnarsdóttur
verður leiklesið
í Hannesarholti
miðvikudaginn 24. október kl. 20
og endurtekið sunnudaginn 28.
október kl.16. Leikritið var leikið
í Borgarleikhúsinu 1996-1997 og
sýnt 75 sinnum. Það var einnig
flutt í sjónvarpi 1998 á Stöð 2.
Hvað? Bókakaffi um Kapítólu á
kvennafrídaginn
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið Gerðubergi
Nú er kvennafrídagurinn í dag og
því tilvalið að kíkja í Bókakaffi á
Borgarbókasafninu, Gerðubergi,
og hlýða á Silju Aðalsteinsdóttur
ræða hina hugdjörfu Kapítólu.
Hvað? FRÆÐSLUFUNDUR um nóbels-
verðlaunin í læknisfræði 2018
Hvenær? 12.00
Hvar? Þjóðminjasafn Íslands
Vísindafélag Íslendinga stendur
fyrir fræðslufundum um rann-
sóknir nóbelsverðlaunahafanna í
lífeðlis- og læknisfræði 2018 næstu
miðvikudaga. Næsta miðvikudag,
24. október verður fjallað um
rannsóknir Dr. James P. Allison og
Dr. Tasuku Honjo sem hlutu verð-
launin. Verðlaunin eru veitt fyrir
uppgötvanir á grunnforsendum
þess hvernig ónæmiskerfinu er
stjórnað í gegnum þolstöðvar sem
hafa leitt til stórstígra framfara í
meðferð krabbameina.
Hvað? Matangi/Maya/MIA - Einstök
sérsýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Heimildarmynd um hina óvið-
jafnanlegu M.I.A. byggð á per-
sónulegum upptökum frá síðustu
22 árum. Ótrúleg saga um það
hvernig dóttir andspyrnuhetju
Tamíltígranna á Sri Lanka, og síðar
vandræðaunglingur í London, rís
upp til að verða að einum stærsta
listamanni heims, og frumkvöðli
í hiphop tónlist og götulist. Marg-
verðlaunuð mynd frá Sundance
hátíðinni og eitthvað sem enginn
tónlistaráhugamaður ætti að láta
fram hjá sér fara.
Hvað? Vistarverur – Útgáfuhóf
Hvenær? 17.00
Hvar? Eymundsson, Austurstræti
Verið velkomin í útgáfuhóf nýrrar
bókar Hauks Ingvarssonar, Vistar-
verur, í Pennanum Eymundsson
miðvikudaginn 24. október kl.
17.00.
Gunnar Þórðarson
verður gestur Jóns
Ólafssonar í Af
fingrum fram sem
fer fram á Akranesi
í dag.
Valdimar spilar á Bryggjunni Brugghúsi í kvöld. FréttABlAðið/HAnnA
Bros auglýsingavörur með þínu merki
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14.
ÞITT
MERKI
HÉR
VIÐ SJÁUM UM BRÚÐKAUPIÐ
ÞÚ ÞARFT BARA AÐ SEGJA JÁ!
Við leigjum og seljum
Tjöld, borð og stóla, uppblásna sófa, hljóðkerfi, ljósakerfi,
skjávarpa og sýningartjöld, confetti sprengjur.
Sláðu á þráðinn ef eitthvað af þessu er að vefjast fyrir þér.
Það eina sem þú þarft að gera er að skemmta þér.
www.exton.is
EXTON AKUREYRI
S: 575-4660
AKUREYRI@EXTON.IS
EXTON REYKJAVÍK
S: 575-4600
EXTON@EXTON.IS
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Brettatjakkar
Kynningarverð:
43.179 kr. m/vsk
Sunset .......................................................... 17:20
Kler (Clergy) (polish w/eng sub) ......... 17:30
Mæri // Border (eng sub) ..................... 17:50
Bráðum verður bylting! .............. 20:00
Mæri // Border (ice sub) ................... 20:00
Matangi/Maya/M.IA. (eng-no sub) 20:00
Lof mér að falla (eng sub) ..................21:50
Mandy (english-no subtitles) ............. 22:00
Útey 22. júlí ............................................. 22:10
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19m i ð V i K U D A g U R 2 4 . o K T ó B e R 2 0 1 8
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
7
-2
3
6
0
2
1
2
7
-2
2
2
4
2
1
2
7
-2
0
E
8
2
1
2
7
-1
F
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K