Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 31
CenterHotels var fyrsta ferða-þjónustufyrirtækið hér á landi til að hljóta jafnlauna-
vottun og segja eigendur þess,
hjónin Svanfríður Jónsdóttir og
Kristófer Oliversson, að sú vinna
hafi hafist löngu áður en jafn-
launavottun var svo mikið sem
blik í auga þáverandi ráðherra.
„Stefna okkar hefur alltaf verið að
gera CenterHotels að eftirsóttum
vinnustað fyrir konur jafnt sem
karla. Jafnlaunavottunin kom
fyrst til umræðu innanhúss hjá
okkur haustið 2014. Við vorum
reyndar alltaf nokkuð viss um að
ekki væri til staðar kynbundinn
launamunur innan fyrirtækisins.
Slíkt gengur einfaldlega gegn
öllum okkar gildum. Enda myndi
ég aldrei tíma að borga körlum
hærri laun bara fyrir það eitt að
vera karlar, hæfni hlýtur alltaf að
ráða,“ segir Kristófer sem jafn-
framt er forstjóri fyrirtækisins.
Hugmyndin um jöfn laun og
jafnrétti er því alls ekki ný meðal
eigenda og stjórnenda CenterHot-
els. „Hugmyndin um jafnlauna-
vottun snerist því einfaldlega um
að skapa okkur forskot í sam-
keppninni um gott starfsfólk með
því að fá það vottað að hjá okkur
sitja allir við sama borð varðandi
ráðningar og þróun í starfi,“ bætir
Svanfríður við.
Flókið ferli
Innleiðing jafnlaunavottunar var
mjög viðamikið og flókið ferli,
segir Eir Arnbjarnardóttir, mann-
auðsstjóri CenterHotels, en um
leið hálfgerður rússíbani. „Þegar
farið er í gegnum svona ferli í
fyrsta sinn vakna ótal spurningar.
Það sem mér fannst erfiðast var
hversu erfitt það reyndist að fá
svör við mörgum spurningum.
Þegar að við byrjuðum á ferlinu
voru afar fáir búnir að fara í
gegnum jafnlaunavottunina og
jafnvel ráðgjafar voru að fara í
gegnum þetta í fyrsta sinn. En þá
lærðum við með því að rekast á
veggi, sem hafði að vísu áhrif á
lengd verkefnisins.“
Umfangsmiklar kröfur
Til að hljóta jafnlaunavottun þarf
að uppfylla kröfur jafnlauna-
staðalsins en hann er töluvert
umfangsmikill, segir Eir. „Bæði
þarf að fara í gegnum launagrein-
ingu og setja viðeigandi verklags-
reglur. Greina þarf öll störf innan
fyrirtækisins, þ.e. verðmæti starfs-
anna út frá kröfum um mennt-
unarstig ásamt ábyrgðar- og
hæfnikröfum til starfanna. Fyrir
hvert verðmætaþrep þarf síðan að
ákvarða launabil.“
Um leið þarf að huga að lögum,
kjarasamningum, hverjir skuli
vera ábyrgðaraðilar, setja fyrir-
tækinu mælanleg jafnlaunamark-
mið svo eitthvað sé nefnt. „Svo
þarf vottunaraðili að skoða þetta
í greiningarkerfi sínu. Það kom
okkur ekki á óvart að við þurftum
engar breytingar að gera á launum
til þess að hljóta vottunina.“
Hún segir ferlið langt frá því
að vera búið þegar vottunin er
komin í hús. „Áfram þarf að sinna
reglulegum innri úttektum og rýni
stjórnenda þarf að eiga sér stað
a.m.k. einu sinni á ári. Passa þarf
að ávallt sé unnið eftir verklags-
reglum og að öllum stjórnendum
sem og starfsmönnum sé kunn-
ugt um hvernig jafnlaunakerfið
virkar.“
Mikilvæg fyrir starfsandann
Eir segir vottunina vera mjög
mikilvæga fyrir starfsmenn og
starfsandann innan fyrirtækisins.
Með henni sé vottað að karl og
kona, sem sinna sambærilegu
starfi innan fyrirtækisins, fái
sömu kjör. „Það er eitthvað sem
við erum stolt af og skiptir fólk
máli í dag. Ef við lítum bara til
viðhorf starfsfólks CenterHotels
í könnun VR – Fyrirtæki ársins
2018, þá mat starfsfólk jafnrétti
innan CenterHotels vera 4,61 af
5 mögulegum, sem er ansi há ein-
kunn og eitthvað sem við getum
öll verið virkilega ánægð með.“
Stuðla að jafnrétti
„Fyrir utan að viðhalda jöfnum
launum innan fyrirtækisins vill
CenterHotels stuðla að jafn-
rétti,“ segir Eir. „Hjá CenterHotels
starfar fólk frá ólíkum menningar-
heimum alls staðar að úr heim-
inum. Okkur finnst því afar mikil-
vægt að styðja starfsfólk okkar
í að sækja sér íslenskukennslu,
bæði til að aðlagast starfinu betur,
og ekki síður samfélaginu. Það
stendur öllum starfsmönnum sem
áhuga hafa til boða að fá styrk til
íslenskunáms. Einnig höldum við
regluleg námskeið í CenterHotels
skólanum sem stendur öllum
starfsmönnum til boða. Sú fræðsla
og þjálfun sem starfsfólk fær í
skólanum okkar opnar möguleika
til starfsþróunar innan fyrir-
tækisins, óháð kyni, þjóðerni eða
öðrum þáttum.“
Allir sitja við sama borð
Jafnlaunavottun snerist um að skapa forskot í samkeppninni um gott starfsfólk, segja eigendur
CenterHotels. Fyrirtækið var fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið hérlendis til að hljóta vottunina.
Eigendur CenterHotels, hjónin Kristófer Oliversson og Svanfríður Jónsdóttir, ásamt Eir Arnbjarnardóttur mannauðsstjóra en hún annaðist innleiðingu jafnlaunavottunarinnar. MynD/SIGTRyGGUR ARI
Stefna okkar hefur
alltaf verið að gera
CenterHotels að eftir-
sóttum vinnustað fyrir
konur jafnt sem karla.
Jafnlaunavottunin kom
fyrst til umræðu innan-
húss hjá okkur haustið
2014.
Kristófer Oliversson
KynnInGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 4 . o k tó b e r 2 0 1 8 JAFnRéTTI
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
6
-F
6
F
0
2
1
2
6
-F
5
B
4
2
1
2
6
-F
4
7
8
2
1
2
6
-F
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K