Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 54
54 Bókasafnið
Öflugt bókasafn var við hvern háskóla og var mikil
vinna lögð í að undirbúa sameiningu þeirra. Undirbún-
ingsvinnan var þrískipt; endurskipulagning þjónustu,
hönnun húsnæðis og innanhússhönnun. Mikið var lagt í
endurskipulagningu þjónustunnar en vinna við það hófst
þremur árum áður en hin sameiginlega miðstöð opnaði.
Sérstakt ráðgjafafyrirtæki var fengið til aðstoðar. Í upphafi
var nemendahópur hvers skóla fyrir sig skilgreindur sem
ákveðinn hópur með sameiginlegar þarfir og væntingar en
fljótlega varð ljóst að málið var ekki svo einfalt. Hefðbundin
bókasafns- og upplýsingaþjónusta er ekki nema einn af
mörgum þáttum sem nemendur gera kröfu um í nútíma-
námsumhverfi og því var ákveðið að hugsa út fyrir boxið og
líta til þarfa einstaklinganna en ekki fyrir fram gefinna hug-
mynda um þarfir þeirra út frá því hvaða nám þeir stunduðu.
Skipaðir voru rýnihópar með nemendum, kennurum og
bókasafnsstarfsmönnum og tekin hátt í 200 viðtöl við vænt-
anlega notendur. Lögð var áhersla á að koma til móts við
mismunandi þarfir viðskiptavina og þeir flokkaðir í hópa
eftir persónuneinkennum. Notendur eru mismunandi;
nemendur, kennarar, rannsakendur, sumir eru einfarar, aðrir
félagsverur, og allt þar á milli. Til viðmiðunar var notað
svokallað AT-ONE2 líkan sem samanstendur af fimm
þáttum: Actors – að skipuleggja þjónustu í samvinnu við þá
sem hlut eiga að máli, Touchpoints – að bjóða upp á þjón-
ustu eftir mismunandi leiðum og á mismunandi stöðum,
Offering – að bjóða upp á ákveðna kjarnaþjónustu sem er
vel skilgreind, Needs – að þjón-
ustan uppfylli óskir notenda,
bæði sýnilegar og duldar, og að
lokum Experiences – að þjónusta
sé í eðli sínu tilraunakennd og
taki auðveldlega breytingum.
Þegar búið er að skipuleggja
þjónustuna þarf síðan að gæta
þess að hún samrýmist þörfum
stofnunarinnar, í þessu tilfelli
háskólans. Kanna þarf hvaða
áhrif hún hefur á starf skólans,
hvernig á að markaðsetja þjón-
ustuna og hvort skólinn sé undir
það búinn að veita nauðsynlegan
stuðning eða hvort breyta þurfi
hugsunarhætti.
Horft af fyrstu hæðinni niður á jarðhæðina þar sem hönnunin verður óformlegri og litir áberandi
Kaffihúsastemning á torginu (Tori) á fyrstu hæðinni og í bakgrunni
má sjá hóp fólks hlýða á fyrirlestur
2. AT-ONE Service Design: Actors – Touchpoints – Offering – Needs – Experiences
Elín Guðjónsdóttir skoðar sig um
Í alrými á jarðhæðinni þar sem litagleðin ræður ríkjum. Pullurnar eru á
hjólum og því auðvelt að raða þeim á ýmsa vegu