Breiðfirðingur - 01.04.1958, Blaðsíða 17
BREIÐFIRÐINGUR
15
Uppsátur.
sögn Snæbjarnar í Hergilsey, þegar hann lenti í skipreka á
Sandi og missti alla menn sína, en bjargaði einn lífinu með
fádæma hörku og karlmennsku. Margir eru slíkir harmleikir,
sem hér hafa átt sér stað, því léleg eru lendingarskilyrði á
Sandi, og litlu eða réttara sagt engu mátti muna, þegar brim-
róðurinn var tekinn. Það er undravert, að ekki stærri vör
en er á Sandi, því lendingin er ekkert nema vör, skuli hafa
haft svo mikla þýðingu fyrir afkomu allra Breiðfirðinga áð-
ur fyrr. En þá verður að hafa í huga hin auðugu fiskimið
rétt fyrir framan landssteinana.
Þegar vélbátar komu til sögunnar, sem mun hafa verið
nokkru fyrir fyrri heimsstyrjöld, varð óumflýjanlegt að gera
hafnarmannvirki. Ekki var hægt að setja vélbátana eftir
hvern róður, eins og gert hafði verið við áraskipin.
Arið 1922 var hlaðinn brimvarnargarður í Krossavík,
sem er nokkru utar en gömlu lendingarstaðirnir. Garður-
inn var steyptur efst, en fremsti hlutinn var hlaðinn úr