Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 19

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 19
BREIÐFIRÐINGUR 17 leggst frá, ef eggjum hennar er mikið rænt. Hins vegar hef- ur hún launað Rifsbónda verndina með því að rækta stóra fláka. Þar sem áður voru sandar með stöku strái, er nú sí- breiðu gras. Er ábyggilegt, að drítið, sem krían lætur frá sér fara, er Rifsbóndanum meira virði, heldur en þótt hann hefði nokkrum sinnum kýlt vömb sína með kríueggjum. Rif var þegar orðin mikil útgerðarstöð á 13. öld og var það nær óslitið fram til 1900, en þá hafði höfnin fyllzt svo af sandi, að hún varð ónothæf. Er svo sagt, að þegar ein- okunin var í algleymingi og Danakonungar seldu hæstbjóð- anda Islandsverzlunina á leigu, þá hafi þeir jafnan tekið Rifshöfn undan og notað ágóðann af henni, sem nokkurs konar vasapeninga fyrir sig „prívat“. Markaður opnaðist í Austur-Evrópu fyrir skreið um 1400 og síðar í Englandi. Norðmenn, Englendingar og Hansa- kaupmenn kepptu um verzlunina. Á þessu byggðist auðsöfn- un Olafar ríku á Skarði og ættar hennar og annarra ríkra ætta vestanlands. Hér í Rifi var það, að Englendingar tóku Björn hirð- stjóra á Skarði af lífi árið 1467. Jarðfastur steinn er í Rifi og tekur mönnum í bringsmalir, nefnist hann Björnssteinn. Þar er sagt að Englendingar hafi höggvið Björn í spað og sent heim að Skarði til konu hans, Olafar ríku. Dálítil laut er í steininn miðjan, og á það að vera farið eftir öxina, þegar Björn var höggvinn. Vel hefur högginu verið fylgt eftir. Þegar Olöf fékk sendinguna, á hún að hafa mælt orð þau, sem síðan hafa lifað á vörum þjóðarinnar: „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði og hefna.“ Björn hafði reynt að bægja Englendingum frá verzlun við Islendinga, að boði Danakonungs, og kostaði það hann lífið. Björn átti líka marga óvildarmenn meðal Islendinga, og er ekki ólíklegt, að þeir hafi líka haft hönd í bagga. Hann hafði lekið Guðmund ríka Arason á Reykhólum hönd-

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.