Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Qupperneq 6
6 14. sept 2018FRÉTTIR Þ etta mun breyta lífi mínu, það er ekkert flóknara,“ segir Unnar Þór Sæ­ mundsson tannlækna­ túristi í samtali við DV. Undan­ farna viku hefur Unnar Þór dvalið í góðu yfirlæti á sérstöku tannlæknahóteli í útjaðri Búda­ pest og sótt sér löngu tímabæra þjónustu. Ástæðan er sú að þjónustan er margfalt ódýrari en heima á Íslandi, að sögn Unnars. Hann segir að tannheilsu hans hafi hrakað mjög undanfarin ár og var í óefni komið. „Ég hafði vanrækt tennurnar í mér og má helst kenna peningaleysi um. Ég var einnig í óreglu um tíma og eftir að hafa lokið meðferð þá vaknaði ég upp við þann vonda draum að tennurnar voru illa farnar,“ segir Unnar Þór. Var orðinn veikur vegna tannsýkinga Hann var kominn með alvar­ legar sýkingar og sá fram á rán­ dýrar bráðabirgðaaðgerðir og síðan enn dýrari viðgerðir yfir langt tímabil hérlendis. „Ég var orðinn veikur út af sýkingunum og þurfti sýklalyf. Ég fór í eina stutta bráðabirgðaaðgerð hjá ís­ lenskum tannlækni sem kostaði mig 40 þúsund og þá fór ég að velta öðrum möguleikum fyrir mér,“ segir Unnar Þór. Eftir leit á netinu fann hann Fedasz Dental og leist vel á. „Það var engin spurning í mínum huga að þetta var besti valkosturinn fyrir mig. Ég varð að bregðast við og þess­ ar umfangsmiklu aðgerðir hefðu verið rúmlega helmingi dýrari á Íslandi og tekið mun lengri tíma. Að mínu mati er verð á tann­ læknaþjónustu á Íslandi alltof hátt,“ segir Unnar Þór. Hann óttaðist ekki hryllings­ sögur um léleg gæði efna og að dýrt myndi reynast að gera við fúskið eftir ungversku tannlækn­ ana. „Stór hluti íslenskra lækna er byrjaður að mennta sig hér ytra þannig að Íslendingar eru í vondum málum ef ungverska heilbrigðiskerfið er eitt allsherjar fúsk. Ungverjaland er eitt vinsælasta land heims þegar kemur að tannlæknatúrisma og stofan sem ég valdi mér er hlað­ in lofi,“ segir Unnar Þór. Hann sendi myndir út til stofunnar og nokkru síðar pantaði hann sér flug út til Búdapest. „Ég fékk aðstoð við að fjármagna þetta frá vinum og ættingjum og verð þeim ævinlega þakklátur,“ segir Unnar Þór. Eins og áður segir þá gistir hann á hóteli sem er í eigu sömu aðila og tannlæknastof­ an. „Þetta er mjög þægilegt og það var vel tekið á móti mér. Ég var skoðaður og síðan fékk ég nákvæma áætlun yfir það sem þyrfti að gera og heildarkostn­ að. Alls er ég að borga 5.000 evrur (um 650 þúsund krónur) fyrir fjórar rótarfylltar tennur, þar af þrjár með þremur rótum, sjö fyllingar og aðrar lagfær­ ingar, eina fjarlægða tönn og sex krónur á framtennur. Að auki var innifalin mjög vönduð tann­ hvíttun og einhver umfangs­ mesta tannhreinsun sem ég hef upplifað. Þá var hótelgisting með morgunverði innifalin auk ferðalagsins til og frá flugvelli,“ segir Unnar Þór. Hann fullyrðir að kostnaðurinn við þessar að­ gerðir á Íslandi myndi nálgast 1,5 milljónir króna. „Mér líður ótrúlega vel hérna og það gildir líka þegar ég er í stólnum. Þeir eru ósparir á deyf­ ingarnar og ég kenni mér einskis meins. Þjónustan er rosaleg góð og nákvæmlega farið eftir dag­ skránni. Ég hef yfirleitt mætt í einn tíma á dag síðan ég mætti, um klukkustund á dag, en lengsti tíminn tók reyndar tæpar fjórar klukkustundir. Ég hef því nógan frítíma til að skoða mig um í Búdapest og hvílast,“ segir Unnar Þór. Hægt er að fylgjast með sein­ ustu dögum Unnars á tann­ læknahótelinu í Búdapest á Snapchat­reikningi hans, unnartho. Þá verður nánar fjall­ að um tannlæknatúrisma á DV. is á næstu dögum. n Hver er hún n Hún fæddist á Akureyri þann 4. september árið 1986. n Hún útskrifaðist af félagsfræðabraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2006. n Hún hefur lokið meistaraprófi í Evrópufræðum og Evrópurétti frá Edinborgarháskóla, BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. n Hún hefur starfað sem sjálf- boðaliði hjá Rauða krossinum og verið aðalmaður í jafnréttis- og mannréttindaráði Kópavogsbæjar. n Hún er dyggur hundaeigandi. SVAR: SEMA ERLA SERDAR Meiri Noreg og minni Busta H vert mannsbarn veit að e­pilluhátíðin sem kölluð er Secret Solstice er meinsemd í okkar þjóðfé­ lagi. Þarna hlusta gufuruglaðir og gufuósandi unglingar á eitthvert bölvað garg sem á að heita menn­ ing og krydd í tilveruna. Svarthöfði á erfitt með að skilja tilvistarrétt þessa ósóma. Hvert er eiginlega menningarlegt gildi þess að fá lyfjafeitan óvita eins og Busta Rhymes til að skemmta landanum? Nei, Secret Solstice er allt annað en upphefð fyrir vora þjóð og auk þess til mikils ama fyrir íbúa Laugarneshverfis. Þeir eiga skilið kertafleytingu eða tvær fyrir að hafa gengið í gegnum þessa vítiskvöl í fimm ár. Svarthöfði hefur mikla sam­ úð með þeim íbúum sem búa í námunda við tónleikasvæðið. Þeir þurfa að horfa upp á ókunn­ ugt fólk pissa utan í limgerði, unglinga bryðja læknadóp og dauðskelkuð dýrin ýlfra. Helför­ in í Laugardalnum mun verða skammarblettur í sögubókum framtíðarinnar. Upplifun hins norska Knut Ödegard, íbúa í Laugarnes­ hverfinu, er enn greipt í huga Svarthöfða. Rusli var hent í garðinn hans og hann fann hvergi bílastæði. Alls staðar var búið að leggja bílum skakkt upp á gang­ stéttir og olían lak úr þeim. „Beint fyrir framan húsið okk­ ar, sem stendur við tvístefnugötu, var lagt bíl með unglingum. Þeir stilltu upp borði og stólum úti á miðri götu, komu með kæli­ box með áfengi og höfðu „partý“ þarna á miðri götunni,“ sagði Knut. Vesalings maðurinn. Knut stakk upp á að tónlistin yrði lækkuð og löggæsla efld og Svarthöfði telur það þjóðráð. Ef halda á svona húllumhæ á annað borð þá þurfa norskar áherslur að vera til staðar. Norðmenn eru sér­ fræðingar í skemmtun. Nú á að flytja hátíðina úr Laugardalnum yfir á Klambra­ túnið en Svarthöfði sér ekki að það leysi neinn vanda. Ekki frekar en þegar kirkjan færir bersynduga klerka milli brauða þegar þeir eru gripnir með lúkuna undir ferm­ ingarkyrtlunum. Nei, Hlíða­ og Holtafólk á þetta ekkert frekar skilið. Það þarf hvort eð er að um­ bera hvers dags fylleríið úr mið­ bænum. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Upphaflega stóð til að „Like“-hnappur- inn á Facebook héti „Awesome“- hnappurinn. Fleiri láta lífið á hverju ári af völdum sælgætis- og gossjálfsala en af völdum hákarla. Að minnsta kosti fjórir karlmenn sem gegndu hlutverki „Marlboro-mannsins“ í tóbaksauglýsingum dóu úr lungna- krabbameini. Öflugasti jarðskjálfti heims, frá upphafi mælinga, reið yfir Chile þann 22. maí 1960 og mældist 9,5 stig. Söngkonan Janis Joplin gaf vinum sínum yfir 2.500 dollara í arf með skilaboðun- um: „Haldið svakalegt partí þegar ég er öll.“ UNNAR ÞÓR SÓTTI SÉR TANNLÆKNAÞJÓNUSTU Í UNGVERJALANDI n Unnar Þór dvelur á tannlæknahóteli í Búdapest n Segir verðmuninn gríðarlegan Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Tennur Unnars Þórs voru illa farnar. Fedasz Dental-hótelið í útjaðri Búdapest. Unnar Þór Sæmundsson er himinlifandi með nýja ungverska tanngarðinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.