Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 12
12 14. sept 2018FRÉTTIR
Þ
jálfarar eiga aldrei að
setja iðkendur í svona
erfiðar aðstæður. Það er
alveg sama hvað er gert,
iðkandinn kemur alltaf illa út úr
svona aðstæðum,“ segir Ómar
Már Þóroddsson, faðir þriggja
stúlkna, en hann telur dætur
sínar hafa orðið fyrir grófri mis-
munun hjá Skautafélagi Akur-
eyrar. Upphaf málsins má rekja
til ágreinings sem kom upp í
kjölfar þess að yfirþjálfari hjá fé-
laginu hóf, að sögn Ómars Más,
að gera hosur sínar grænar við,
þá 17 ára gamla, dóttur Ómars.
Ómar gagnrýnir harðlega við-
brögð stjórnar SA við málinu
en hann segir ásakanirnar hafa
verið virtar að vettugi og málið
sagt „óheppilegt.“
Bauð henni út að borða og í bíó
Dætur Ómars, 19, 14 og 8 ára, hafa
allar æft listdans á skautum hjá fé-
laginu en umræddur þjálfari, sem
kemur frá Hollandi, hefur að sögn
Ómars starfað hjá SA síðastliðin
tvö ár og þjálfað allar dætur hans.
Lýsir Ómar því þannig að hlutirn-
ir hafi breyst til hins verra eftir að
yfirþjálfarinn byrjaði að reyna við
elstu dóttur hans. Hann hafi með-
al annars boðið henni út að borða
fyrir utan bæinn og einnig í bíó.
„Þegar hún vildi ekki fara
með honum fór það eitthvað í
taugarnar á honum og fór hann
að þjálfa dætur mínar illa. Hætti
að sinna þeim og ætlaði að sleppa
því að leyfa þeim að fá þjálfun hjá
danskennara eins og allir hinir
fengu. Við vorum búin að reyna að
tala við hann og sagði hann ástæð-
una vera að þeir sem væru í stjórn
legðu mikla áherslu á að þeirra
börn fengju góða þjálfun og þess
vegna gæti hann ekki sinnt stelp-
unum mínum betur.“
„Bara einhver misskilningur“
Ómar Már kveðst hafa orðið fyrir
vonbrigðum þegar hann reyndi að
bera málið undir stjórn LSA.
„Stjórnin sagði að þetta væri
allt saman bara einhver misskiln-
ingur. Ég geri mér grein fyrir því
að það getur alltaf komið upp
misskilningur en hann á aldrei
að bitna á börnunum. Ég sagði
að það væri undarlegt að þessi
misskilningur bitnaði bara á mín-
um börnum. Ef þetta væri tungu-
málaörðugleikar þá þyrfti bara að
kenna manninum íslensku.
Við náðum þó því í gegn að
stelpurnar fengu danstíma eins og
hinir iðkendurnir. En ekki batnaði
framkoma yfirþjálfarans eða for-
mannsins. Voru ýmis mál kominn
upp á borðið svo sem að það átti
að láta okkur borga meira en suma
aðra iðkendur fyrir æfingabúðir.
Ýmislegt annað í framkomunni
við okkar dætur var kornið sem
fyllti mælinn og þær vildu ekki
halda áfram að æfa með þessum
klúbbi þar sem þeim var greini-
lega mismunað bæði af stjórn og
þjálfara.“
Gögn af tölvupóstsamskiptum
breyttu litlu
Ómar segir þau hjónin eiga af-
rit af nánast öllum tölvupóstsam-
skiptum sem sýna svart á hvítu til-
raunir yfirþjálfarans til að nálgast
dóttur hans. Þau gögn hafi verið
lögð fyrir stjórn SA en virt-
ust ekki hafa haft
mikið að segja.
„Ég veit til þess að stjórnin
kvartaði undan samskiptum við
okkur og fékk ÍBA í málið. Þegar
ÍBA sá tölvupóstinn var ákveðið
að reyna að ná sáttum, reyna að
laga þetta.“
Í kjölfarið var haldinn fundur
með ÍBA og stjórn SA og formanni
SA.
„Það var reynt að ná sáttum,
og við vorum alveg tilbúin til
þess, eins og ég sagði við konu
mína og dætur þá væri allt í lagi
að vera þarna áfram ef þetta yrði
lagað. Svörin sem við fengum þar
voru að þetta mál, að þjálfari væri
að reyna við dóttur mína væri jú,
vissulega „óheppilegt“ og að það
yrði talað um þetta við hann. Ég
veit ekkert hvort það var gert eða
ekki.
Þegar stjórnin sagði að það
væri ekkert að hjá henni þá sagði
ég hreinlega að við hefðum ekk-
ert meira að ræða. Ég ætla ekki
að gefa neitt eftir hvað þetta varð-
ar og það kemur ekki til greina
að ég láti bjóða mínum börnum
upp á þetta,“ segir Ómar Már jafn-
framt, en seinustu samskipti hans
við félagið áttu sér stað í mars síð-
astliðnum. „Þegar bæði stjórn SA
og þjálfarinn segja að það sé ekk-
ert að þá er í raun ekkert hægt að
gera.“
Mikil fækkun
Ómar segir það skjóta skökku við
að segja að allt sé í lagi á sama
tíma og fækkað hefur umtalsvert
í klúbbnum. Kveðst hann telja að
um 15 til 20 prósent iðkenda hafi
hætt eftir fund þeirra hjóna með
stjórninni í mars síðastliðnum.
„Ég veit fyrir víst að það hafa
nokkrir hætt af því að þeim hefur
hreinlega ekki verið sinnt. Þegar
fólk vissi að við værum að fara úr
félaginu þá hringdu nokkrir for-
eldrar í okkur og hrósuðu okkur
fyrir að láta ekki bugast.“
Í kjölfarið tók fjölskyldan þá
ákvörðun að mæðgurnar myndu
flytja tímabundið til Reykjavíkur til
að dæturnar gætu átt möguleika á
að æfa íþróttina áfram.
„Þetta er það sem þær langar
að gera og þetta er það sem þær
eru góðar í. Þær eru búnar að æfa
skauta í langan tíma og vilja halda
áfram.“
Umræddur þjálfari starfar enn
hjá Skautafélagi Akureyrar. DV
hafði samband við forsvarsmenn
félagsins vegna málsins en við-
brögð þeirra voru að senda eftir-
farandi yfirlýsingu til blaðsins: „Í
ljósi ásakana á þjálfara og stjórn
LSA viljum við koma eftirfarandi á
framfæri. Skautafélagið vann mál-
ið með fagaðilum innan íþrótta-
hreyfingarinnar en engar sann-
anir né merki voru um að þjálfari
listskautadeildarinnar hafi brotið
siðreglur eða mismunað iðkend-
um. Við teljum málinu lokið af
okkar hálfu og munum ekki tjá
okkur frekar um það.“ Yfirlýsingin
birtist á heimasíðu Skautafélags
Akureyrar. n
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu hágæða
innréttingar, sérsniðnar að þínum
óskum og þörfum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Ómar flúði með dætur
sínar í annað bæjarfélag
„Þegar hún vildi
ekki fara með
honum fór það eitthvað
í taugarnar á honum og
fór hann að þjálfa dætur
mínar illa. Hætti að sinna
þeim og ætlaði að sleppa
því að leyfa þeim að fá
þjálfun hjá danskennara
eins og allir hinir fengu.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
n Var mismunað vegna höfnunar n Elsta dóttirin vildi ekki þýðast þjálfarann