Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Síða 20
20 14. sept 2018FRÉTTIR
hérlendis. Eitt af því sem skilaði
miklum ávinningi var fræg ljós
mynd af ótrúlegri ljósadýrð á himn
inum fyrir ofan Hótel Rangá. Þegar
ég sá þessa mynd þá hugsaði ég
strax að hún væri milljón dollara
virði. Þessi mynd skipaði stóran
sess í öllu okkar markaðsstarfi og
hún fór um allan heim í tengslum
við samstarfið við Great hotels of
the world,“ segir Björn.
Íslendingar lausnamiðaðir
tækifærissinnar
Þrátt fyrir góða upplifun gesta
og viðunandi herbergjanýtingu
mátti samt lítið út af bregða. Í kjöl
far efnahagshrunsins hófst síðan
blómaskeið í hótelrekstri og sér
staklega í kjölfar eldsumbrotanna
á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli
sumarið 2010. Björn grínast með að
það hafi verið eins og þessi mark
aðssetning hafi verið pöntuð af
æðri máttarvöldum en þó efi hann
að aðrar þjóðir en Íslendingar hafi
gripið gæsina jafn hratt og vel.
„Mín upplifun af þeim Ís
lendingum sem ég hef unnið með
er að þeir séu ótrúlega lausnamið
aðir tækifærissinnar. Ég meina það
á mjög jákvæðan hátt og ég dáist að
því hugarfari. Það hentar mínum
persónuleika mun betur en hvern
ig verklagið er í heimalandi mínu.
Hér eru verkin drifin af, boðleiðir
stuttar og síðan er tekist á við þau
vandamál og áskoranir sem koma
upp. Í Svíþjóð hefði farið í gang
nefndarvinna og skýrslugerð í rúmt
ár áður en einhvers konar ákvarð
anir hefðu verið teknar. Vissulega
eru stundum mistök gerð í æði
bunuganginum en almennt held ég
að þetta hugarfar sé mun meira til
góðs en ills,“ segir Björn og hlær.
Hann segist sannfærður um að
þessi persónuleikaeinkenni hafi
reynst Íslendingum nauðsynleg til
þess að lifa af við harðneskjulegar
aðstæður fyrr á öldum. „Ef hval rak
upp í fjöru þá varð að bregðast hratt
við og drífa sig með allt tiltækt lið
áður en aðrir væru komnir á vett
vang. Lífsbaráttan var svo hörð að
þeir sem voru ekki sífellt með aug
un opin fyrir tækifærum urðu und
ir,“ segir Björn.
Minni sóðaskapur en áður við
ferðamannaperlur
Hann segist vera fullur aðdáunar
á því hvernig íslensk stjórnvöld
og íslenski ferðamannaiðnaður
inn hafi tekist á við ferðamanna
sprenginguna. „Það hafa verið
unnin kraftaverk í ferðamennsku
hérlendis. Þetta er einstakt á heims
vísu að þjóð geti á svo skömmum
tíma hrundið af stað svo öflugu
markaðsstarfi og byggt upp innviði
til þess að taka á móti svona ótrú
legum fjölda. Hrunið, eldgosin og
fótboltaævintýrið hafa hjálpað til
en það er ekki sjálfsagt að það skili
sér beint í fjölgun ferðamanna.
Stjórnvöld og hagsmunaaðilar hafa
hamrað járnið á meðan það er heitt
og það ber að lofa. Vissulega hafa
verið vaxtarverkir og stundum hef
ur kerfið verið við þolmörk en ann
að væri í raun óeðlilegt. Um tíma
fannst mér sóðaskapur við helstu
ferðamannastaði vera orðinn stórt
vandamál en eins og Íslendingum
er tamt var tekist á við vandamál
ið hratt og örugglega. Ég tel mig sjá
mikinn mun varðandi umgengni
á tveimur árum. Að sama skapi er
komin mikil þörf á fjárfestingu í
vegakerfinu og ég trúi ekki öðru en
að drifið verði í því,“ segir Björn.
Vill markaðssetja
Íslendingasögurnar betur
Að hans mati verða Íslendingar að
vera hugmyndaríkir við markaðs
setningu landsins á næstunni og
leggja áherslu á nýja áfangastaði
í stað þeirra heimsfrægu. Þá verði
þeir einnig að velja hvers konar
ferðamennska verði í boði en ekki
taka öllum fagnandi. „Suðurlandið
er magnað svæði en að mínu mati er
það komið að þolmörkum. Ferða
mennirnir eru orðnir of margir
og ef fjöldinn eykst enn frekar þá
mun það skemma upplifun gest
anna. Það þarf að grípa til aðgerða
til þess að stýra ferðamönnum inn á
aðra landshluta, til dæmis Vestfirði
og Austurland. Menn verða líka að
átta sig á að það geta falist verð
mæti og tækifæri í einhverju sem
heimamenn telja ekkert merkilegt.
Hrjóstrug auðn getur haft mikið að
dráttarafl,“ segir Björn.
Þá telur hann að mikil tæki
færi felist í söguarfi Íslendinga. „Ís
lendingasögurnar eru heimsfrægar
og mér finnst of lítið gert í því að
markaðssetja þær fyrir ferðamenn.
Það þarf fleiri söfn og upplýsingar
á slíkum söguslóðum um allt land.
Ekki síður hvernig fólk hreinlega fór
að því að lifa af hérna á árum áður.
Það er eitthvað sem ferðamenn vilja
kynnast og fá upplýsingar um,“ seg
ir Björn og ástríðan leynir sér ekki í
röddinni.
Sinnti besta starfi í heimi í ár
Samstarfi Björns við Friðrik og
Hótel Rangá lauk fyrir nokkrum
árum. Við tók verkefni sem hann
kallar „besta starf í heimi“ og síð
an barátta við erfið veikindi. „Eftir
Rangárævin týrið þá fékk ég það
verkefni hjá Great hotels of the
world að ferðast um heiminn, gista
á frábærum hótelum og gera úttekt
á þeim. Það var tækifæri sem býðst
aðeins einu sinni á ævinni, að fá
að ferðast og njóta lífsins og skrifa
skýrslu um það,“ segir Björn og
hlær. Hann segist hafa lært mikið á
ferðalaginu og það hafi gefið hon
um enn betri innsýn í hvaða þjón
ustu og upplifun ferðamenn eru að
leita að.
Það varð þó bið á því að Björn
gæti nýtt þá þekkingu í hótelrekstri
því hann er nýlega skriðinn upp
úr erfiðum veikindum. „Hótel
reksturinn getur reynt mikið á og
í alltof mörg ár þá vann ég myrkr
anna á milli og hugsaði ekki nægi
lega um heilsuna. Það kom síðan að
skuldadögum,“ segir Björn. Hann
fékk nokkur hjartaáföll og fór síðan
í erfiða hjartaskurðaðgerð. „Það tók
tíma að ná fullri heilsu en ég setti
sjálfan mig í forgang og er eins og
nýsleginn túskildingur í dag. Ég er
fullur starfsorku en reynslunni rík
ari varðandi hvað skiptir máli. Það
er mikilvægt að sinna vinnunni vel,
en það sem skiptir öllu máli er vinn
an og fjölskyldan,“ segir Björn. Hann
eignaðist nýlega dóttur ásamt eigin
konu sinni. Með norðurljósa áhuga
hans í huga kom aðeins eitt nafn
til greina: „Aurora. Það var ákveðið
um leið og við vissum að vona væri
á henni,“ segir Björn brosandi.
Hann hefur undanfarin misseri
unnið sem ráðgjafi í hótelrekstri,
aðallega í Póllandi, en hyggur á
frekari landvinninga hér heima í
tengslum við hótelrekstur. „Ég er
að vinna við mjög spennandi verk
efni sem snýr að lúxushótelupp
byggingu úti á landi. Ég elska að
starfa með Íslendingum á Íslandi
og ég vona því að þetta verkefni
gangi eftir,“ segir Björn. n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
NÆSTI KAFLI HEFST HÉR
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
LAXATUNGA 40, 270 MOSFELLSBÆR
54.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
203 M2
6
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
BREIÐAVÍK 11, 112 REYKJAVÍK (GRAFARVOGI)
43.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
109 M2
3
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
HLÍÐARHJALLI 66, 200 KÓPAVOGUR
37.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
98 M2
2
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800
„Ég held að
orðatil-
tækið „glöggt er
gests augað“, eigi
ágætlega við
Björn segist elska að
vinna með Íslending-
um sem hann segir
vera lausnamiðaða
tækifærissinna, á
góðan hátt mynd:/
Hanna