Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Síða 31
FÓLK 3114. sept 2018
Við erum flutt á Malarhöfða 2
110 Reykjavík, 2. hæð
Fataviðgerðir & fatabreytingar
ÍSLENSKIR AUÐKÝFINGAR FRAMTÍÐARINNAR
Ingólfur Abraham
Shahin
Eitt heitasta fyrirtæki landsins er bókunar-
fyrirtækið Guide to Iceland. Fyrirtækið
hagnaðist um 676 milljónir króna í fyrra og
greidd út 600 milljóna króna arð til hluthafa.
Þá var á dögunum tilkynnt að bandaríska
ráðgjafar- og eignarstýringarfyrirtækið State
Street Global Advisors hafi fjárfest í fyrirtæk-
inu fyrir 2,2 milljarða.
Ingólfur Abraham á 55,3% hlut í fyrirtæk-
inu í gegnum félag sitt, Djengis ehf. Á
dögunum fjárfesti hann í glæsilegri fasteign
til eigin nota að Fjölnisvegi 11 í miðbæ
Reykjavíkur.
„Bókunarævintýrið er rétt að byrja og er
eiginlega alveg magnað. Ingólfur á eflaust
eftir að láta til sín taka á öðrum sviðum,“
segir álitsgjafi.
Andri Gunnarsson
Bæjarstjórasonurinn í Garðabæ er um-
svifamikill fjárfestir. Hann hefur setið í
stjórnum fjölda félaga og er séfræðingur
þegar kemur að skattamálum og kaupum
og sölu fyrirtækja. Hann er meðal annars
einn af eigendum Óskabeins ehf. sem á
2,05% hlut í VÍS auk þess að eiga 10% hlut í
Kortaþjónustunni.
„Andri er nánast ofvirkur, fluggreindur
og útsjónarsamur. Hann er með öll verk-
færin til þess verða afar
farsæll í íslensku við-
skiptalífi,“ segir
álitsgjafi.
Baldvin Þorsteinsson
Samherjaprinsinn og fyrrverandi handboltakapp-
inn hefur sinnt mörgum veigamiklum verkefnum
innan veldis föður síns. Hann var um tíma
framkvæmdastjóri Kaldbaks, fjárfestingarfélags
í eigu Samherja, og var síðan forstjóri Jarðbor-
ana hf. um tveggja ára skeið á afar krefjandi
tímum. Hann starfar í dag sem fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja.
„Baldvin er keppnismaður fram í fingur-
góma. Hann er búinn að ná sér í mikla
reynslu í vernduðu hreiðri fjölskylduveld-
isins. Hann á eftir að spjara sig vel á eigin
fótum,“ segir álitsgjafi.
Birgitta Líf Björnsdóttir
Birgitta Líf er erfingi World Class-veldisins sem er hvergi
nærri falli. Hún er þegar farin að hafa afskipti af fyrirtæk-
inu með því að sjá um markaðssetningu þess á samfé-
lagsmiðlum. Hún hefur gott auga á þeim vettvangi enda
er hún ein af vinsælli samfélagsmiðlastjörnum landsins.
„Birgitta er afar klók og með gott auga fyrir stíl og
tísku. Hún lifir fyrir hreyfingu og allt tengt heilsu. Ís-
lendingar verða bara feitari og því þarf einhver að sjá
um það vanþakkláta hlutverk að taka við árskorta-
greiðslum þeirra sem mæta aldrei í ræktina. Birgitta er
best fallin til þess,“ segir álitsgjafi.
Birgitta Líf
mun taka
við World
Class-
-veldinu.
Baldvin Þorsteinsson