Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 33
14. september 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Fyrir bílinn
VAKA:
Þjónusta númer eitt, tvö og þrjú
Þjónusta er lykil-orðið hér og ég sem framkvæmdastjóri
fyrirtækisins legg áherslu
á 100% þjónustu,“ seg-
ir Daníel Már Einarsson,
framkvæmdastjóri Vöku.
Fyrirtækið verður 70 ára á
næsta ári og er eitt elsta
fyrirtæki landsins á sviði
þjónustu við bíleigendur.
Vaka veitir mjög fjöl-
þætta þjónustu á sviði bíla
og starfsmenn eru um 30
talsins. Dekkjaþjónusta er
veigamikill þáttur í starf-
seminni. „Við seljum bæði
notuð dekk og ný en erum
að minnka við okkur í notuðu
dekkjunum enda er verð-
munurinn á notuðum dekkj-
um og nýjum orðinn frekar
lítill. Í nýjum dekkjum erum
við mest í merkinu Sailun, en
þau þykja mjög vönduð, ekki
síst miðað við hvað þau eru
ódýr,“ segir Daníel.
Vaka veitir fulla þjónustu
á vel búnu dekkjaverk-
stæðinu og er bæði hægt
að panta tíma í síma 567-
6700 eða koma á staðinn
og þá hugsanlega bíða dá-
litla stund. Að sjálfsögðu eru
dekkjaskipti og umfelgum í
boði og er lögð mikil áhersla
á góða þjónustu í dekkja-
skiptunum.
Nagladekk verða orðin
lögleg undir bílana frá og
með 15. nóvember en margir
eru núna að skipta yfir í
heilsársdekk eða vetrardekk
án nagla.
Vaka rekur einnig dekkja-
hótel þar sem bíleigendur
geta geymt vetrardekkin
sín yfir sumarið eða sum-
ardekkin sín yfir haustið.
„Þetta er afskaplega ódýr
kostur til að losna við þau
óþægindi að troða dekkj-
unum inn í bílinn og geyma
þau,“ segir Daníel.
Vöku uppboðið slær í gegn
Uppboðsvefurinn vaka-
uppbod.is var settur í gang
fyrir um tveimur mánuð-
um og hefur slegið í gegn.
Þar er afar margt í boði,
flest bílatengt en þó ekki
allt. Þarna er gott úrval af
notuðum bílum, dekkjum
og varahlutum, en líka alls
konar aðrir hlutir, til
dæmis kaffivélar
gámar, kranar
o.fl.
„Í upp-
boðinu
leggj-
um við
einnig
mikla
áherslu
á góða
þjón-
ustu. Ef
þú til dæmis
kemur hing-
að með bíl til sölu
þá þarftu ekki að spá í
pappírsvinnu eða að sýna
bílinn, við sjáum um þetta
allt saman,“ segir Daníel.
Sem fyrr segir er vefurinn
afar vinsæll og allt virðist
seljast þar. Bæði er það
vegna þess að þarna getur
fólk gert hagstæð kaup en
ekki síður vegna þess að
mörgum þykir mjög gaman
að vera á uppboði og skoða
það sem í boði er.
Vefur vöku: vaka.is
Uppboðsvefurinn: vaka-
uppbod.is