Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 35
Fyrir bílinn 14. september 2018 KYNNINGARBLAÐ HUGAÐU AÐ VETRINUM: Veldu finnsku gæðadekkin frá Nokian hjá MAX1 Nú er mikilvægt að fara að huga að vetrinum tímanlega og forðast örtröð í dekkjaskiptum. Við hjá MAX1 bjóðum finnsku gæða- dekkin frá Nokian sem eru sérhönnuð fyrir notkun á norðlægum slóðum í mörgum verðflokkum. MAX1 leggur áherslu á að veita viðskiptavininum ráðgjöf við val á dekkjum því dekk eru flókin vara og mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Skoðaðu úrvalið á vefsíðu okkar https://www. max1.is.“ Vertu ábyrgur ökumaður því öku- tæki á lélegum dekkjum er líklegri til umferðaóhappa „Vanmat ökumanna á ástandi dekkja getur verið stórvarasamt. Við sjáum því miður alltof oft að viðskiptavinir koma með dekk á haustin til þess að skipta fyrir veturinn og þá kemur í ljós að mynstur dekkjanna er komið undir slitmörk til þess að flokkast sem gagnleg vetrardekk. Nokian-dekkin eru með svokallaðar DSI-merkingar á öllum sínum dekkjum sem segja til um hversu mikið er eftir af dekkinu til þess að uppfylla öryggi þess. Eins ráðleggjum við viðskiptavinum að fylgjast með loftþrýstingi í dekkjun- um reglulega því það eykur öryggi og endingu. Einnig er gott að víxla dekkj- unum á milli fram og aftur til þess að jafna slit dekkjanna,“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdarstjóri MAX1. Þú getur treyst Nokian gæðadekkj- unum „Nokian-dekk hafa ávallt komið gífurlega vel út í könnunum og eiga sigurvegara í öllum flokkum. Lögð er áhersla á að valin séu gæðadekk undir bílinn því dekk eru mikilvægt ör- yggistæki. Það er mikilvægt að geta treyst eiginleikum dekkja í krefjandi aðstæðum. Nokian-dekk eru prófuð á 700 hektara fullkomnu prófunar- svæði Nokian í Finnlandi. Á svæðinu eru um 50 mismunandi brautir þar sem þeir prófa og sannreyna Nokian- -dekk á mismunandi undirlagi í afar erfiðum og krefjandi vetraraðstæð- um. Framleiðandi Nokian er leiðandi í visthæfni og notkun vistvænna efna við framleiðslu Nokian gæðadekkja,“ segir Sigurjón. Hvað er rétta vetrardekkið? Hjá Nokian getur þú valið um negld dekk, harðkorna vetrardekk sem og vetrardekk sem henta allt árið. Þegar kemur að vali á réttum dekkjum er gott að velta því fyrir sér hvernig dekk henta hverjum og einum. Þegar kem- ur að vetraröryggi kemur ekkert í stað nagladekkja, næst þar á eftir koma harðkornadekk síðan almenn vetr- ardekk og síðast í röðinni eru vetrar- dekk sem henta vel sem heilsársdekk. Best er að leita ráða hjá ráðgjöfum Nokian hjá MAX1 Bílavaktinni. Aramíð hliðarstyrking bjargar mannslífum Nokian Tyres Aramid hliðarstyrk- ing er ný tækni sem eykur endingu dekkja og verndar þau í óvæntum aðstæðum. Efnasamband hliðanna er einstaklega endingargott og inniheldur gríðarsterkar aramíðtrefj- ar, sem eru sambærilegar efninu kevlar sem er notað í skotheld vesti. Aramíðtrefjarnar styrkja hliðarveggi dekksins þannig að það þolir betur utanaðkomandi álag eins og holur í vegum. Nokian Aramid hliðarstyrk- ing er í dekkjum fyrir jeppa, jepplinga og 4x4 bíla. Nokian Aramid hliðar- styrking er í eftirfarandi dekkjum frá Nokian: Nokian WR SUV 4 , Nokian WR SUV 3, Nokian WR C3, Nokian Hakkapeliitta R3 SUV, Nokian Hakka- peliitta LT2,° Nokian Rotiiva AT, Noki- an Rotiiva AT Plus, Nokian Hakka- peliitta 8 suv og Nokian Hakkapeliitta 9 suv. Nokian tryggir dekk með aramíð hliðarstyrkingu Reynsla Nokian af aramíð hliðar- styrkingunni er gríðarlega góð og svo góð að Nokian ábyrgist öll dekk með aramíð hliðarstyrkingu. Dekk er bætt að fullu ef það hoggið á eðlilegan hátt og slittalan 4 er sýnileg á dekki og dekkið er ekki eldra en 24 mánaða frá kaupdegi. Nánari upplýsingar fást hjá söluráðgjöfum MAX1. Nokian Hakkapeliitta 9 SUV er framúrskarandi vetrar- og nagladek með Aramid hliðarstyrkingu. Dekk sem aðlagar sig að öllum vetraraðstæðum norðlægra slóða. Hliðar á Nokian dekkjum eru sérstyrktar með aramíð gúmiblöndu. Gúmíblandan sem notuð er til að styrkja hliðarnar er úr aramíð sem er flokkur hitaþolinna og sterkra gervitrefja. Þetta efni er, m.a. notað í flugvélar, báta og skotheld vesti. Reynsla Nokian af Aramid hliðarstyrkingunni er gríðarlega góð og svo góð að Nokian tryggir öll dekk með Aramid hliðarstyrkingu Nokian Hakkapeliitta R3 er harðkorna vetrardekk þar sem öryggi og þægindi blandast fullkomlega saman. Dekkið er byggt upp af Arctic Sense Grip hugmyndafræðinni þar sem áhersla er lögð á stöð- ugleika, nákvæmni og áhyggjulausan akstur í vetrarfærð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.