Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 37
Fyrir bílinn 14. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Felga sem lítur vel út uppi á vegg eða á mynd getur alls ekki passað við hvaða bíl sem er.
Þegar velja á felgur á bíla þá reyn-
um við að finna einhverja samsvar-
andi lögun á bílnum og felgunum,
til dæmis í speglum, ljósum eða lit
bílsins,“ segir Valdimar Sigurjónsson,
eigandi Dekkjasölunnar, Dalshrauni
16 í Hafnarfirði.
Felgur eru afar mikilvægar fyrir
útlit bílsins og það getur verið gaman
að finna réttu felgurnar. „Sumir segja
að felgurnar séu 90% af útliti bíls-
ins, en eitt er víst að ef felgurnar eru
ljótar eða illa farnar þá skiptir engu
máli hvað þú gerir fyrir bílinn, hversu
vel þú bónar hann til dæmis,“ segir
Valdimar.
Hann bendir einnig á að Dekkja-
salan sé með ýmiss konar þjónustu
og aukahluti sem varða felgur. „Við
pólýhúðum felgur og lánum dekk
og felgur á meðan þannig að bíll-
inn stoppar ekkert. Hér erum við
með felguréttingarbekk og vél til að
demantsskera framhliðar á felgum
sem hafa skemmst og rispast. Við
eigum felgubolta og rær fyrir flestar
gerðir bíla, hér eru til miðjuhringir og
„spacers“ til að allt passi fyrir hvern
bíl. Einnig eigum við loftþrýstiskynjara
og getum forritað þá inn í alla bíla.“
Viðskiptavinur sem staddur var
á staðnum hafði á orði hversu gott
úrval væri af felgum og sagðist vera
afar sáttur við þá fjölbreyttu val-
möguleika sem væru í boði, hann
minntist einnig á hversu mikilvægt
það væri fyrir bíleigendur að geta
leyst allt á einum stað, bæði hvað
varðar aukahluti sem haldast í hend-
ur við felguskipti og úrval af gæða-
dekkjum á góðu verði.
„Við erum með fjölbreytt úrval af
dekkjum, enda er mjög misjafnt hvað
hentar aðstæðum hvers og eins,“
segir Valdimar „Vinsælustu dekkin hjá
okkur eru Hankook. Það eru dekk sem
kröfuharðir bíleigendur vilja, enda eru
þau á toppnum í öllum virtum gæða-
prófunum ásamt því að verðið er afar
hagstætt, sérstaklega þegar tillit er
tekið til gæða og endingar.“
„Bæði haust-
törnin og vor-
törnin í dekkja-
skiptum byrja
fyrr hér á
Dekkjasölunni
en á öðrum
dekkjaverk-
stæðum,“
segir Valdi-
mar. „Ástæða
þess er að
margir vilja eiga
tvo ganga af
dekkjum og felgum
fyrir sumar og vetur.
Þessi hópur er fyrr á ferðinni
til að gera allt klárt. Við bjóðum fólki
upp á að geyma dekkin og felgurnar
á dekkjahótelinu hjá okkur og smella
þeim undir þegar rétti tíminn kemur.
Einnig bjóðum við þeim sem geyma
dekk á hótelinu upp á tímapantanir til
að losna við biðraðirnar.“
Dekkjasalan kappkostar að veita
toppþjónustu. Allar felgur og dekk
eru skráð með myndum, verði og
lýsingu á heimasíðu fyrirtækisins,
dekkjasalan.is. Símanúmerið hjá
Dekkjasölunni er 587-3757. Einnig er
hægt að senda fyrirspurnir á net-
fangið dekkjasalan@dekkjasalan.is.
DEKKJASALAN:
Sérfræðingar í felgum
Myndir/Hanna