Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 39
Fyrir bílinn 14. september 2018 KYNNINGARBLAÐ SMUR OG DEKK: Dekkjaþjónusta, almennar viðgerðir og dráttarbílaþjónusta Hér eru margar brekkur og fjöll og því eru um 85% ökumanna hér á negldum dekkjum yfir veturinn. Það fer eftir tíðarfari hvenær vertíðin hefst en ef það byrjar að snjóa fyrir lok sept- ember þá er ljóst að fólk bíður ekki með að fara á nagladekkin,“ segir Páll Heiðar Hauksson, eigandi verk- stæðisins Smur og dekk, Aðalstræti 3, Patreksfirði. Páll er meistaralærður bifvélavirki og hefur rekið verkstæðið í 17 ár. Auk hans eru þar tveir starfsmenn. „Núna fara vetrarverðlistarnir úr Reykjavík að detta inn og fólk fer að hafa samband og panta sér tíma. Við seljum aðallega dekk frá Sóln- ingu og Bílabúð Benna og bjóðum að sjálfsögðu líka upp á umfelgun,“ segir Páll. Verkstæði hans þjónustar sunnanverða Vestfirði og segir Páll að það sé mikið að gera allt árið. „Mest er að gera á sumrin þegar túristarnir bætast við. Það róast örlítið í september og þá höfum við tíma til að taka til. Svo byrjar dekkjavertíðin.“ Smur og dekk sinnir öllum al- mennum bílaviðgerðum og þjón- ustar allt frá sláttuvélum og upp í vörubíla, að minnsta kosti hvað snertir minniháttar viðhald. Góð- ur lager varahluta er til staðar, til dæmis olíusíur og bremsuklossar, en síðan er pantað eftir þörfum og er biðtími stuttur. „Það er ekki löng bið hér eftir við- gerð en ég reyni að forgangsraða eftir þörfum viðskiptavina,“ segir Páll. Verkstæðið er vel búið tækjum og er til dæmis með aflestrartölvur og bilanagreiningatölvur. Fyrir utan viðgerðir og dekkja- þjónustu hjálpar Smur og dekk vegfarendum sem festast í snjónum í vetur en fyrirtækið er með dráttar- bílaþjónustu og hefur auk þess til reiðu 37 tommu jeppa með spili. „Tryggingafélög og FÍB leita til okkar þegar fólk festir bílana sína hér fyrir vestan,“ segir Páll. Nánari upplýsingar fást í síma 456-1144 eða í gegnum netfangið palli@patro.is. Smur og dekk þjónar háum og lágum; fyrir tveimur árum þurfti forsetabíllinn aðstoð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.