Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 46
46 FÓLK 14. sept 2018
Jóhann keyrði aftan á bíl og
tognaði á hálsi.
Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur.
Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar.
Birgitta Haukdal: Bakkaflöt 3, Garðabær
Hin húsvíska söngkona Birgitta Haukdal hefur hrifið landann
lengi. Hún vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Írafári sem
stofnuð var árið 1998. Hljómsveitin var virk frá aldamótum
til ársins 2005 og gaf út smelli á borð við Fingur og Stórir hr-
ingir. Platínumplatan Allt sem ég sé, frá árinu 2002, er ein sú
mest selda í íslenskri tónlistarsögu.
Árið 2003 bætti Birgitta rós í hnappagatið þegar hún söng
lagið Open Your Heart í Eurovision-söngvakeppninni fyrir Ís-
lands hönd. Laginu gekk prýðilega og náði áttunda sæti.
Samkvæmt tekjublaði DV var Birgitta með 222 þúsund krónur í mánað-
artekjur en það segir þó ekki alla söguna. Birgitta og eiginmaður hennar, lögmaðurinn
og Engeyingurinn Benedikt Einarsson, búa í glæsihýsi við Bakkaflöt í Garðabæ.
Birgitta er ekki aðeins hæfileikarík söngkona. Nýverið hefur hún verið að gefa út
barnabækur sem hafa vakið nokkra athygli og stúlkuna Láru og ljónið Ljónsa.
Björk: Ægissíða 94, Reykjavík
Söngkonan Björk sló í gegn aðeins tólf ára gömul árið
1977 þegar út kom barnaplatan Björk. Á níunda ára-
tugnum sneri hún sér að pönki og popptónlist og gaf út
plötur með hljómsveitunum Kukli og Sykurmolunum. Sykurmolarnir vöktu athygli
erlendis sem var óvanalegt fyrir íslenskar hljómsveitir á þeim tíma.
Það var þó ekki fyrr en eftir að Sykurmolarnir hættu, árið 1992, að Björk varð
heimsfræg. Fyrstu þrjár sólóplöturnar sem gefnar voru út erlendis, Debut, Post og
Homogenic, voru allar við toppinn á breska metsölulistanum og nafn hennar varð
þekkt um allan heim.
Frægðin jókst enn frekar þegar hún lék aðalhlutverkið í kvikmynd Lars von Trier,
Dancer in the Dark árið 2000, og fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna. Á athöfnina
mætti hún klædd svanskjól eins og frægt er orðið.
Björk hefur gefið út tónlist allar götur síðan og þó að vinsældirnar séu ekki jafn
miklar og áður á hún enn þá dyggan aðdáendahóp. Samkvæmt síðunni Celebr-
ity Net Worth eru eignir Bjarkar metnar á fimm milljarða króna. Hún býr í íbúð við
Ægisíðuna í vesturbæ Reykjavíkur.
Steingrímur J. Sigfússon: Þingasel 6, Breiðholt
Steingrímur hefur verið höfuðborgarbúi frá því hann settist á þing
fyrir 35 árum. Sem forseti þingsins er hann með rúmlega 1,8
milljónir króna í laun á mánuði. Ofan á það bætast svo ýmsar
greiðslur á borð við húsnæðis- og dvalarkostnað sem ætlaðar
eru þingmönnum landsbyggðarinnar og ferðakostnað, bæði
innanlands og utan. Einnig fær hann greiddan starfskostn-
að, gistikostnað, símakostnað og dagpeninga.
Inn í þessu eru ekki tölur um ferðakostnað í og úr vinnu
en sem forseti Alþingis hefur hann aðgang að bíl og bílstjóra
á vegum þingsins.
Þess má geta að aukagreiðslur til þingmanna eru ákvarð-
aðar af forsætisnefnd Alþingis þar sem Steingrímur fer með for-
mennsku. Þegar Steingrímur lætur af störfum má búast við því að hann
verði með ein myndarlegustu eftirlaun á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að verða ódauðleg-
ur á málverki sem hengt verður upp í sölum þingsins.
Magnús Scheving: Bauganes 22, Reykjavík
Magnús er íþrótta- og athafnamaður sem hefur vakið mikla
athygli um allan heim fyrir baráttu sína fyrir að efla hreyf-
ingu og bæta mataræði barna.
Hann er margfaldur Íslands-, Norðurlanda- og
Evrópumeistari í þolfimi og var valinn íþróttamaður
ársins 1994. Í kjölfarið skrifaði hann og lék í leikritinu
Latabæ sem vakti mikla athygli hér á landi. Hann hélt
áfram að vinna með verkefnið sem endaði sem sjónvarps-
þættir fyrir börn um allan heim. Árið 2010 reyndi hann svo
fyrir sér í Hollywood án árangurs.
Magnús skildi við Ragnheiði Melsted árið 2014, þau eiga tvö
börn. Fyrir á hann eina dóttur. Í dag er hann í sambandi með Hrefnu Björk Sverrisdóttur,
sem hann kynntist við gerð sjónvarpsþáttanna um Latabæ.