Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 50
50 14. september 2018TÍMAVÉLIN Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN K olbrún Erna Pétursdóttir leikkona er fjórða dóttir Péturs Goldstein og Hlínar Guðjónsdóttur en afkom- endur þeirra eru nú orðnir 21 tals- ins og einn á leiðinni. Hún ræddi við DV um þessa merkilegu fjöl- skyldusögu. Hendrik vann teningakastið Þetta var nú töluvert af fólki sem var í raun bjargað þegar Henný og Hendrik giftust? „Já, það munaði nú ekki miklu að það hefði ekki orðið því það átti að henda henni úr landi. Hún „braut lög“ og stóð uppi í hárinu á konunni sem hún vann hjá og fór og stofnaði sitt eigið fyrirtæki.“ Kolbrún segir að fjölskyldan hafi alla tíð verið meðvituð um uppruna sinn en í rauninni hefði hún og systur hennar fengið al- íslenskt uppeldi. Jól og páskar voru haldin á íslenska vísu og gyðing- dómi ekki sérstaklega haldið að börnunum, þó að við kynntumst einhverjum hefðum hjá ömmu. „Pabbi minn var meiri Ís- lendingur í sér en margir í kringum hann. Hann talaði virkilega góða íslensku og leiðrétti okkur systurn- ar alltaf ef við sögðum eitthvað vit- laust. Einnig var hann fróður um jarðsögu landsins og landafræði. Ég er samt mjög meðvituð um upprunann og hver örlögin hefðu getað orðið. Mér var sagt að Hend- rik afi og tveir aðrir menn hefðu kastað teningi upp á hver þeirra ætti að kvænast ömmu. Úr þessu varð þetta fína og ástríka hjóna- band.“ Það voru ekki aðeins örlög Hennýjar sem voru að veði. Kol- brún segir að Hendrik hefði bjarg- að Harry, ömmubróður hennar, og unnustu hans, Hildigerði, einnig. „Afi fór og lagðist fyrir fæturna á ráðherra til að Harry yrði hleypt inn í landið. Stríðið var að bresta á og Harry var við landamæri Dan- merkur þegar ráðist var inn í íbúð- ina hans.“ Grét þegar hún ræddi um fortíðina Hvernig kona var amma þín? „Hún var stolt, svakalega stolt kona. Að sjálfsögðu sá ég alltaf sársaukann og var oft að reyna að tala við hana um þetta en það var ekki fyrr en undir það síðasta, og hún var orðin mjög slitin, að hún fór að opna sig um þetta við mig. Flest allt hennar fólk var drepið í fangabúðunum. Tveir frændur hennar náðu að flýja og fluttu til Kanada. Við fjölskyldan höfum haft samband við þá og einnig frænku okkar í Englandi. En það var ekki mikið meira. Ég get vel ímyndað mér að þetta allt hafi haft mikil áhrif á heilsu hennar enda var hún orðin sjúklingur undir það síðasta. Hún var mjög sorg- mædd þegar hún ræddi um þetta og grét.“ Talaði hún íslensku? „Já, hún lærði málið og gerði það. Svolítið bjagaða reyndar og við systurnar hlógum oft að ambögun- um,“ segir Kolbrún kímin. Urðuð þið einhvern tímann fyrir fordómum vegna upprunans? „Það var frekar lítið talað um það, en pabbi sagðist hafa lent í for- dómum endrum og eins. En þó ekk- ert sem fór illa með hann. Hann var vissulega talinn vera „útlendingur- inn“ á þeim stöðum sem hann vann. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég var að vinna í fiski í plássi úti á landi og pabbi kom þá með skipi í land. Við hittumst og leidd- umst saman eftir götu bæjarins og þá komst sá kvittur á kreik að ég „væri kominn í útlendingana“,“ segir Kolbrún og hlær. „Jújú, auð- vitað hafði baksaga okkar áhrif á okkur og uppeldi okkar. En það var ekki verið að tala mikið svona hluti í gamla daga.“ Stjórnvöld geta lært af sögunni Eins og áður hefur verið nefnt fékk Henný íslenskan ríkisborgararétt við giftinguna en Pétur fékk hann hins vegar ekki þó að hann væri aðeins tíu ára gamall. Kolbrún sjálf fór fyrir skemmstu og rannsakaði af hverju það væri. „Hann fékk ekki ríkisborgara- rétt fyrr en 21 árs gamall. Þegar ég skoðaði þingræðurnar í tengslum við það hvernig ríkisborgararéttur- inn var veittur sá ég ýmislegt ein- kennilegt. Sérstaklega í tengslum við kynþætti. Þeir sem höfðu ís- lenskt blóð öðrum hvorum megin í ættinni fengu frekar ríkisborgara- rétt en aðrir og pabbi minn hafði það ekki og börn fengu ekki sjálf- krafa ríkisborgararétt þó að for- eldrarnir fengju hann. En einn þingmaðurinn lagðist sérstak- lega gegn því að hann fengi ríkis- borgararétt af því að hann var ekki með íslenskt blóð. Þetta var kyn- þáttahyggja og ekkert annað.“ Reynsla fjölskyldurnar hafði mjög sterk áhrif á Pétur og mótaði hans afstöðu í málefnum flótta- manna. Kolbrún segir: „Pabbi minn hafði mjög sterkar skoðanir í þessum málum og taldi að fólk sem væri að flýja stríð ætti að fá hæli. Hann tók stríðið í Júgóslavíu sem hófst árið 1991 mikið inn á sig og aðstoðaði fólk sem hingað flúði frá átökunum.“ Útlendingamál hafa verið mikið í deiglunni á undanförnum árum og upp komið mál þar sem fólki er vísað úr landi, jafnvel með lítil börn og um miðjar nætur. Kolbrún telur að sín fjölskyldusaga hafi skírskotun í nútímann. „Við sjáum hvernig Útlendinga- stofnun neitar fólki um dvöl hér á landi og ekki endilega á forsend- um sem fólk skilur. Það er eins og þeir vilji ekki viðurkenna að fólk sé í hættu jafnvel þótt það sé augljóst.“ Finnst þér að stjórnvöld geti dregið lærdóm af þessari sögu? „Að sjálfsögðu. Sagan sýnir að flóttamenn geta orðið nýtir þjóðfé- lagsþegnar.“ n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is mynd /Hanna „Mér var sagt að Hendrik afi og tveir aðrir menn hefðu kastað teningi upp á hver þeirra ætti að kvænast ömmu“ „Sagan sýnir að flóttamenn geta orðið nýtir þjóðfélags- þegnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.