Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 54
54 14. september 2018 E ftir að Þjóðverjar höfðu valt­ að yfir Frakka og hernumið Frakkland í júní 1940 var Adolf Hitler þeirrar skoðun­ ar að Bretar myndu sækjast eft­ ir að gera friðarsamning við Þjóð­ verja. En Bretar voru alls ekki á þeim buxunum og voru staðráðnir í að berjast áfram gegn nasistum. Hitler skoðaði vel þá hernaðarlegu möguleika sem voru uppi í stöð­ unni en hann vildi binda skjótan endi á stríðið. Hann fyrirskipaði herjum sínum að undirbúa inn­ rás í Bretland og fékk aðgerðin nafnið „Aðgerðin sæljón“. En til að innrásin gæti gengið upp og tek­ ist þurftu Þjóðverjar að tryggja sér yfirráð í lofti yfir suðurhluta Eng­ lands og gera út af við þá ógn sem þeim stafaði af breska flughernum, Royal Air Force (RAF). Vel heppn­ aðar loftárásir á Bretland voru að mati þýskra herforingja lykillinn að því að „Sæljónsaðgerðin“ gæti heppnast. Í kjölfarið hófst hin víð­ fræga orrusta um Bretland, stríð sem var háð í háloftunum yfir Bretlandi og Ermarsundi. Þar tók­ ust RAF og Luftwaffe (þýski flug­ herinn) á um yfirráð í lofti. RAF varð sjálfstæð eining inn­ an breska hersins 1918 en þróaðist hægt á árunum eftir fyrri heims­ styrjöldina en á síðari helmingi fjórða áratugarins var þróunin hröð, aðallega sem svar við vax­ andi ógn frá Þýskalandi nas­ ismans. Þjóðverjum hafði verið bannað að eiga flugher eftir fyrri heimsstyrjöldina en nasistar settu Luftwaffe samt sem áður á lagg­ irnar og þegar kom fram á árið 1940 var Luftwaffe stærsti og besti flugher heimsins. Luftwaffe hafði beðið mikið tjón í orrustunni um Frakkland en þegar komið var fram í ágúst voru þær þrjár deildir Luftwaffe, sem áttu að sjá um árás­ ir á Bretland, tilbúnar til verksins. Til að mæta þessu tefldi RAF fram bestu orrustuflugvélum heims, Hurricane og Spitfire. Nýtt ratsjárkerfi Bretar höfðu þróað nýtt loft­ varnarkerfi sem veitti þeim mikið og mikilvægt forskot í orrustunni um Bretland. Það nefndist The Dowding System en með því voru varnir á jörðu niðri og stjórn orr­ ustuflugvélanna sameinaðar í eitt kerfi. Með ratsjám vissi RAF tím­ anlega af ferðum Luftwaffe og hægt var að beina Hurricane­ og Spitfire­vélunum til móts við flug­ vélar Luftwaffe. Bretlandi var skipt í fjögur varnarsvæði sem var síð­ an skipt niður í minni einingar. Á hverju varnarsvæði var sérstök að­ gerðastjórn sem sá um að senda orrustuflugvélarnar á loft til móts við flugvélar Luftwaffe. Nýjar upp­ lýsingar bárust stöðugt úr ratsjár­ kerfinu og var þeim komið til flug­ manna RAF jafnóðum. Auk þess var loftvarnarkerfum á jörðu niðri stýrt af þessum aðgerðastjórnum. Dowding System gat tekið við og unnið úr miklu magni upplýsinga á skömmum tíma og gerði að­ gerðastjórum kleift að hámarka þá takmörkuðu kosti sem þeir höfðu úr að spila hverju sinni. Orrustan um Bretland stóð frá júlí þar til í október 1940. Í fyrstu réðst Luftwaffe á skotmörk við strendur landsins og skip á Ermar­ sundi. Aðalárásin hófst síðan 13. ágúst. Þá var flogið lengra inn yfir land og árásir gerðar á flugvelli og fjarskiptamiðstöðvar. RAF átti í vök að verjast en lagði allt að veði. Síðustu vikuna í ágúst og þá fyrstu í september, sem skiptu sköpum í orrustunni, lögðu Þjóðverjar mikla áherslu á að eyðileggja stjórnstöðvar RAF. Flugvellir, sér­ staklega á suðurhluta Englands, urðu illa úti en voru þó nothæfir. En Luftwaffe ofmat árangur árása sinna og komst að þeirri niður­ stöður að RAF væri kominn að fót­ um fram. Hið rétta var að RAF var illa á sig kominn en enn starfhæf­ ur. Þann 7. september gerðu Þjóð­ verjar þau reginmistök að beina árásum sínum frá flugvöllum og stjórnstöðvun RAF og að Lund­ únum. Þetta hafði að sjálfsögðu hræðileg áhrif á íbúa Lundúna en veitti RAF jafnframt tækifæri til að jafna sig og styrkja sig á nýjan leik. Þann 15. september hratt RAF gríðarlega öflugri loftárás Luft­ waffe sem þurfti að þola mikið tap á flugmönnum og flugvél­ um þennan dag. Nú varð ljóst að Luftwaffe stóð ekki undir því mikla tapi sem fylgdi árásunum á Bret­ land. Þær héldu samt sem áður áfram í nokkrar vikur til viðbótar en ljóst var að Luftwaffe hafði mis­ tekist að tryggja þau yfirráð í lofti sem voru nauðsynleg til að hægt væri að ráðast með landher yfir Ermarsund og á Bretlandseyjar. Á endanum frestaði Hitler „Sæljóns­ aðgerðinni“. Hetjudáðir flugmanna RAF Í ræðu sem Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands, hélt 20. ágúst 1940 í breska þinginu lét hann ein frægustu ummæli sín falla um flugmenn RAF sem börð­ ust svo hetjulega gegn Luftwaffe en ræðan hefur verið nefnd „The Few“. „Never in the field of human conflict was so much owed by so many to so few.“ Sem er yfirleitt stytt í: „Never was so much owed by so many to so few.“ Á íslensku útleggst þetta: „Aldrei hafa svo margir átt svo fáum svo mikið að þakka.“ Þessi orð áttu svo sannarlega vel við þá tæplega 3.000 flugmenn sem börðust fyrir RAF í orrustunni um Bretland. Þeir hafa síðan verið kallaðir „The Few“ en 15. septem­ ber ár hvert er tileinkaður þeim og þeirra er þá minnst sérstaklega í Bretlandi. Flestir flugmannanna voru Bretar en einnig voru margir þeirra frá öðrum ríkjum, aðal­ lega hernumdum Evrópuríkjum og ríkjum í Breska samveldinu. Má þar nefna Nýja­Sjáland, Ástralíu, Kanada, Suður­Afríku, Belgíu, Frakkland, Pólland og Tékkóslóvakíu. Einnig voru flug­ menn frá hlutlausum ríkjum eins og Bandaríkjunum og Írlandi meðal liðsamanna RAF.n TÍMAVÉLIN Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is ORRUSTAN UM BRETLAND nMesta flugorrusta sögunnar n „Aldrei hafa svo margir átt svo fáum svo mikið að þakka“ Spitfire-vélar breska flughersins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.