Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 58
58 14. september 2018LÍFSSTÍLL - KYNLÍF
É
g á konu og við erum
þónokkuð virk í kynlífinu
þrátt fyrir fimmtán ára
hjónaband. Við stundum
kynlíf einu sinni til tvisvar í viku,
af og til meira að segja oftar. Og
miðað við það sem ég heyri hjá fé-
lögum mínum er þetta bara í háu
meðallagi hjá okkur.
Ég þarf varla að taka fram að ég
elska dömuna og finnst hún frá-
bær, annars væri ég ekki hangandi
með henni eftir öll þessi ár.
Það er eitt smáatriði að plaga
mig og það er úthaldið hjá sjálf-
um mér. Kynlífið okkar er í frekar
föstum skorðum, við gerum eigin-
lega alltaf sömu hlutina einhvern
veginn á þessa leið: kossar og káf
í fötum, klæðum hvort annað úr,
brjóstahnoð í nokkrar mínútur,
hún sleikir vininn, ég nudda sníp-
inn, ég kem inn í hana og pang ég
fæ það. Ég fæ sem sagt sáðlát eft-
ir um fjórar sekúndur inni. Ég er
reyndar harður áfram en það fer í
taugarnar á mér að duga ekki leng-
ur. Hvað er til ráða?
Með kveðju, Guðmundur
Komdu sæll Guðmundur
Hvað finnst konunni? Lítur hún á
þig súr á svip í hvert sinn sem sek-
úndurnar fjórar eru að baki? Hef-
ur þú spurt þessa æðislegu kynlífs-
gyðju hvers vegna hún nennir að
stunda kynlíf með þér oft í viku?
Ég er nokkuð viss um að henni líki
eitthvað í þeirri röð aðgerða sem
þú lýsir svo skemmtilega í bréfi
þínu. Ég legg það til sem fyrsta
skref, að þú setjist niður með þinni
yndislegu konu og fáir svör hjá
henni. Ef hún brotnar saman og
er algjörlega í rusli yfir þessu eru
nokkrir möguleikar í stöðunni:
Halda áfram
Þú nefnir að þú haldir stinn-
ingunni þrátt fyrir að sáðlátið komi
kannski einum of fljótt. Hvers
vegna ekki að nýta þessa stinn-
ingu og halda einfaldlega áfram?
Hver veit nema þú fáir extra full-
nægingu. Það er munaður sem fáir
heppnir kynbræður þínir njóta.
Sumir hafa jafnvel lagt á sig ára-
langa þjálfun og lúslestur tantra-
fræða til að ná þangað.
Hugarfarsbreyting
Prófaðu að gera dálítið meira úr
öllu öðru en samförunum. Auð-
vitað eru samfarir frábærar en
það er samt hellingur af öðrum
skemmtilegum hlutum sem hægt
er að dunda sér við bæði fyrir og
eftir samfarir. Stingdu upp á að
þið breytið röð atburða. Kannski
er rútínan orsök vandans.n
Verstu nöfnin sem þú
getur kallað karlmann
Hvað er það versta sem
þú getur kallað karlmann?
Karlmenn eru afskaplega
viðkvæmir yfir því hvað við
köllum þá. Viðkvæmnin
virðist mest ef þeir eru
gagnkynhneigðir og sér-
staklega ef það er kona sem talar. Eftir að hafa kafað
ofan í efnið er niðurstaðan í megindráttum sú að þeir
þola verst orð sem smækka þá eða vísa til einhvers
sem er álitið kvenlegt.
Tittur.
Allir karlmenn hata að vera kallaðir tittir, nema að þeir séu 1,90
og 90 kíló, þá skilst það sem kaldhæðni.
Dúlla.
Þetta er það sem flestir karlmenn nefndu. Þeir gjörsamlega hata
að vera kallaðir dúllur eða dúllulegir. Segja að það eigi frekar við
um lítil börn, sæta hunda eða bollakökur.
Sykurpúði.
Ógleðivaldandi að mati viðmælenda minna. Nokkrum þótti
þetta þó í lagi ef það kom frá öðrum aðila með typpi áfast.
Vinur eða kútur.
Glatað að vera kallaður þetta af stelpu sem þú ert heitur fyrir,
sagði einn vinur minn. Glatað!
Bangsi.
Alla vega ekki í rúminu. „Það er allt í lagi að vera kallaður bangsi
í öllum fötunum, en í guðanna bænum ekki þegar ég er allsber”,“
sagði einn viðmælenda minna, stæðilegur karlmaður og loðinn.
Meistari.
Þetta skaltu að minnsta kosti ALDREI kalla hipster úr hund-
raðogeinum. Hann mun líklega ekkert segja, en þegar hann
kemur heim í reykelsisilmandi risíbúðina sína við Hverfisgötu
mun hann setja Sin Fang á grammófóninn og sauma vúdúdúkku
sem er í laginu eins og þú.
Það getur verið snúið að vita hvenær sambandinu er
lokið. Fólk hangir saman af gömlum vana. Stundum
eru börn eða fasteignir lím sem heldur fólki saman. Hér
eru 15 ástæður sem gefa fullt tilefni til að endurskoða
sambandið strax í dag.
n Hann pissar standandi og setur ekki setuna niður
n Hann setur klósettrúlluna öfugt á haldarann
n Hann er leiðinlegur við mömmu þína
n Hann nöldrar stöðugt í þér
n Hann ætlast til þess að þú sért alltaf að þrífa
n Hann er dónalegur við þjónustufólk
n Hann er leiðinlegur við börnin þín og börnin sín.
n Hann borðar hor
n Hann vill aldrei ríða
n Hann býr enn þá hjá foreldrum sínum
n Hann heldur framhjá
n Hann heimtar að fá lykilorðið að
Facebook-síðu þinni
n Hann er vondur við hvolpa og önnur dýr
n Hann talar um uppáhaldsfótboltaliðið
sitt eins og hann sé í því
n Hann er með manneskju sem tekur
mark á svona listum
15 ástæður til að hætta
með kærastanum strax
SVONA ENDIST ÞÚ
LENGUR Í RÚMINU
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com