Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Qupperneq 62
62 SPORT 14. sept 2018 Heimir Hallgrímsson - 2016 Úkraína 1-1 Ísland Ísland 3-2 Finnland Stigafjöldi - 4 Markatala = Eitt mark í plús HÖRMUNGARBYRJUN HAMRENS n Versta byrjun landsliðsþjálfara í mörg ár n Erfiðir andstæðingar og meiðsli lykilmanna höfðu áhrif Þ að byrjar ekki vel hjá Erik Hamren, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, en fyrsta verkefni hans með hópinn er á enda. Íslenska liðið var rassskellt í fyrsta leik Hamrens. Sá leikur fór fram ytra gegn Sviss og tapaðist 6-0. Hamren stýrði svo sín- um fyrsta heimaleik í vikunni og unnu Belgar nokkuð auðveldan 0-3 sigur. Byrjun Hamrens er slæm og ef síðustu 20 ár eru skoðuð þá kem- ur Hamren ekki vel út. Mistök í sínum fyrsta landsleik Hamren gerði sig sekan um mistök í sínum fyrsta landsleik og hefur í raun viðurkennt þau. Hann spil- aði með leikkerfið, 4-4-2 í tap- inu gegn Sviss. Íslenska liðið var undirmannað á mið- svæðinu sem varð til þess að vörnin fékk afar mörg áhlaup á sig. Fjarvera lykil manna hefur heldur ekki hjálpað Hamren í byrj- un. Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson leika í ensku úrvalsdeildinni og misstu af báðum leikjunum, Alfreð Finn- bogason hefur verið duglegur að skora fyrir liðið og leikur í þýsku úrvalsdeildinni, hann gat ekki tek- ið þátt í verkefninu. Emil Hallfreðs- son, sem leikur í úrvalsdeildinni á Ítalíu, missti af fyrri leiknum, það sást svo gegn Belgíu hvað hann hjálpar liðinu mikið. Íslenska liðið má illa við því að missa menn í meiðsli og hvað þá þegar um er að ræða fjóra af þeim fimm leikmönn- um sem leika í fjórum sterkustu deildum í heimi. Hamren var sáttur þrátt fyrir tap Hamren var ánægður með landsliðið í leiknum gegn Belgíu þrátt fyrir um væri að ræða fyrsta tap liðsins á heimavelli, í keppn- isleik, frá því í júní árið 2013. „Við get um verið sátt ir við frammistöðuna á móti einu besta liði í heimi. Þeir spila góðan fót- bolta. Það eina sem ég var ekki sátt ur við var að skora ekki mark. Við unn um eins og lið í 90 mín út- ur, ólíkt því sem við gerðum á móti Sviss. Þar vor um við 11 ein stak- ling ar. Við verðum að spila sem lið á móti liði eins og Belg íu. Þú getur verið sigurvegari þrátt fyrir að tapa. Erfiðasta byrjun sem þjálfari gat fengið Fyrstu fimm leikir Hamrens í starfi eru þeir erfiðustu sem íslenskur landsliðsþjálfari hefur fengið. Tveir leikir gegn Belgíu, næstbestu knattspyrnuþjóð í heimi, Sviss, sem er áttunda besta lands- lið í heimi, og æfingarleikur gegn Frakklandi sem eru heimsmeist- arar. „Ég vissi að fyrstu fimm leik- irn ir væru erfiðir. Frakk ar, Belg ar tvisvar og Sviss tvisvar. Við verðum að reyna að spila vel og ná í úr slit og verða eitt af tíu bestu liðun- um fyr ir drátt inn í undan keppni EM.“ Kemur illa út í samanburði Í samanburði við þá átta þjálfara sem stýrt hafa landsliðinu í 21 ár þá kem- ur Hamren illa út. Um er að ræða samanburð úr keppnisleikjum en flestir af þessum þjálfurum fengu æfingarleiki til að byrja með. Það er hægt að finna til með Hamren en á móti kemur þá tek- ur hann við besta ís- lenska landsliði sem við höfum átt. Að- eins Atli Eðvalds- son hefur ekki náð í stig í fyrstu tveim- ur leikjum sínum í starfi síðustu ár. n Lars Lagerbäck - 2012 Ísland 2-0 Noregur Kýpur 1-0 Ísland Stigafjöldi - 3 Markatala = Eitt mark í plús Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Erik Hamren – 2018 Sviss 6-0 Ísland Ísland 0-3 Belgía Stigafjöldi – 0 Markatala = 9 mörk í mínus Ólafur Jóhannesson 2007/2008 Danmörk 3-0 Ísland Noregur 2-2 Ísland Stigafjöldi - 1 Markatala = Þrjú mörk í mínus Eyjólfur Sverrisson - 2006 Norður-Írland 0-3 Ísland Ísland 0-2 Danmörk Stigafjöldi - 3 Markatala = Eitt mark í plús Atli Eðvaldsson - 2000 Ísland 1-2 Danmörk Tékkland 4-0 Ísland Stigafjöldi - 0 Markatala = Fimm mörk í mínus Guðjón Þórðarson - 1997 Liechtenstein 0-4 Ísland Ísland 2-4 Írland Stigafjöldi - 3 Markatala = Tvö mörk í plús Logi Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson - 2003 Ísland 2-1 Færeyjar Litháen 0-3 Ísland Stigafjöldi - 6 Markatala = Fjögur mörk í plús
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.