Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 64
64 14. september 2018
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
B
andarísku stúlkunni Lori
Gale Billingsley var lýst sem
„líflegri, hlýrri og góðhjart-
aðri“ persónu. Lori glímdi
við flogaveiki en lét það ekki hafa
áhrif á tilveruna. Þann 11. október,
1982, fannst Lori, þá 17 ára, látin
í skólpræsi við Southwest Miller-
-veg í Beaverton í Oregon-fylki.
Líki hennar hafði verið vafið inn í
rykhlíf sem var alblóðug.
Lögreglan taldi sig þá þegar vita
hver morðinginn var; Kenneth Lee
Hicks, 19 ára, sem bjó á næstu hæð
fyrir neðan íbúð Lori.
Var vingjarnleg
Alkunna var að Kenneth hafði ver-
ið nánast blindaður af ást til Lori.
Hún hafði ekki endurgoldið til-
finningar hans en engu að síð-
ur sýnt honum vinsemd og verið
honum innan handar þegar hann
átti erfitt.
Hvað sem mögulegri óskhyggju
Kenneths leið, þá bar Lori ekki
nokkrar tilfinningar til hans og þau
höfðu aldrei ruglað saman reytum.
Daginn sem Lori hvarf hafði
sést til hennar og Kenneths þar
sem þau gengu saman út í búð.
Rekinn að heiman
Einhver vandræði höfðu verið
á Kenneth og hafði oft slegið í
brýnu milli hans og ættingja hans.
Nokkrum mánuðum áður en Lori
hvarf hafði Kenneth verið kastað á
dyr á heimili sínu og gert að sjá um
sig sjálfur.
Þá hafði Lori kennt í brjósti
um Kenneth og, kannski fyrir til-
stuðlan hennar, sá móðir henn-
ar aumur á honum og leyfði hon-
um að liggja á sófanum á heimili
þeirra um nokkurra vikna skeið.
Kenneth var þó ekki lengi heim-
ilislaus því frændi hans og frænka
tóku hann inn á þeirra heimili á
neðri hæðinni.
Stungin tólf sinnum
Þegar Lori hvarf var það systir
hennar, Vickie, sem fyrst hóf leit
að henni. Vickie, sem var fjór-
um árum yngri en Lori, var þess
fullviss að systir hennar hefði ekki
skilið flogaveikilyfin eftir heima ef
hún hygði á langa fjarveru.
Leit Vickie bar ekki árangur og
SAKAMÁL
„Þetta var
ekki í fyrsta
eða síðasta skipti
sem sakborning-
ur notaði hendur
sínar og vasahníf
til illra verka
30 ÁRA DÓMUR FÉLL EFTIR 30 ÁR
n Lori Gale var myrt árið 1982 n Málið safnaði ryki í fjölmörg ár
5. ágúst, 2012, skaut Bandaríkjamaðurinn Wade Michael Page sex manns til bana og særði fjóra að auki í sikha-hofi í Oak Creek í Wisconsin. Ástæðu morðanna mátti sennilega rekja til þess að Page trúði á yfir-
burði hvíta kynþáttarins. Sjálfur svipti Page sig lífi með skoti í höfuðið eftir að hafa
fengið skot í kviðinn úr byssu lögreglu sem mætti á svæðið.
Lori Gale
Billingsley Lík
hennar fannst
vafið inn í alblóð-
uga ábreiðu.