Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
www.holabok.is — holar@holabok.is
Sprenghlægilegar bækur
sem þú verður að lesa!
Það er gott að hlæja!
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Minjastofnun hefur enn ekki fengið í
hendur skýrslu Völu Garðarsdóttur
fornleifafræðings um fornleifaupp-
gröftinn á Landssímareitnum í mið-
borg Reykjavíkur 2016 til 2017. Von
var á skýrslunni 1. júní, fyrir rúmum
fjórum mánuðum en hún hefur ekki
borist. Engar upplýsingar fást um
það hvenær niðurstöðurnar verða
kynntar.
Vala hefur ekki viljað greina
Morgunblaðinu frá helstu niðurstöð-
um fornleifarannsóknarinnar, þrátt
fyrir ítrekuð tilmæli. Þá hefur hún
synjað ósk Morgunblaðsins um að fá
að ljósmynda gripina sem fundust
við uppgröftinn og geymdir eru á
forvörsluverkstæði Þjóðminjasafns-
ins í Hafnarfirði. Í reglum Minja-
stofnunar um leyfi til fornleifarann-
sókna frá 2013 segir í 11. grein að
leyfishafi skuli eiga fyrsta útgáfurétt
um gögn og gripi í fimm ár frá lokum
vettvangsrannsóknar. Ekki liggur
þó í augum uppi að þetta ákvæði eigi
að gilda um umfjöllun fréttamiðla.
Morgunblaðið hefur einnig leitað
upplýsinga um kostnað við fornleifa-
rannsóknina á Landssímareitnum
en enn engin svör fengið. Sam-
kvæmt lögum ber framkvæmdaaðili
kostnaðinn. Það er Lindarvatn ehf.
sem er eigandi fasteigna á reitnum
þar sem nýtt gistihús Icelandair hot-
els er að rísa.
Tekjur námu 113 milljónum
Félagið réð Völu Garðarsdóttur til
verksins 2016 þegar hún var starfs-
maður Hornafjarðarsafna. Hún
hætti störfum á þeim vinnustað í
framhaldinu og stofnaði einkahluta-
félagið VG fornleifarannsóknir og er
það skráð fyrir verkinu. Samkvæmt
gögnum sem Vala sendi Minjastofn-
un þegar hún fékk uppgraftarleyfið
2016 var gert ráð fyrir 7 fornleifa-
fræðingum auk hennar við vett-
vangsvinnuna og tveimur öðrum
sérfræðingum við úrvinnslu. Sam-
tals var gert ráð fyrir því að verkið
væri 30 mannmánuðir. Í gögnum
Minjastofnunar sem Morgunblaðið
fékk á grundvelli upplýsingalaga er
ekkert að finna um breytingu á
starfsmannafjölda eða mannmánuð-
um við verkið sem þó munu hafa orð-
ið.
Samkvæmt ársreikningum sem
VG fornleifarannsóknir ehf hafa
skilað voru tekjur félagsins tæpar 84
milljónir króna árið 2016 og tæpar
29 milljónir árið 2017, samtals um
113 milljónir. Líklegt er að megin-
hluti þessara tekna séu greiðslur frá
Lindarvatni ehf vegna fornleifa-
rannsóknarinnar.
Fram kemur í ársreikningunum
að rekstrargjöld 2016 voru rúmar 58
milljónir og tæpar 24 milljónir 2017.
Hagnaður VG fornleifarannsókna
ehf árið 2016 var 24,3 milljónir króna
og 4,2 milljónir króna árið 2017,
samtals um 28,5 milljónir þessi tvö
ár.
Skýrsla um Lands-
símareit enn ókomin
VG fornleifarannsóknir ehf með 28,5 milljóna króna hagn-
að árin 2016 og 2017 Bannar myndatöku af forngripunum
Morgunblaðið/Golli
Fornleifar Frá uppgreftrinum á bílastæði Landssímans sem fram fór 2016
til 2017. Undir bílastæðinu var hluti af elsta kirkjugarði Reykjavíkur.
Ekki eru áformuð nein jarðvegsskipti í Vík-
urgarði (Fógetagarði), hinum forna kirkju-
garði á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis í
Reykjavík í tengslum við byggingu nýs hót-
els á svokölluðum Landssímareit. Þetta
segir Nikulás Úlfar Másson, byggingar-
fulltrúi Reykjavíkur, í samtali við Morg-
unblaðið.
Fram kom í gær að gögn sem blaðið fékk
frá Minjastofnun sýndu að starfsmenn þar
hefðu áhyggjur af því að mikið rask væri
framundan í hluta Víkurgarðs þar sem
merkt hefði verið inn á teikningar borgaryf-
irvalda af svæðinu að gera yrði ráð fyrir
sérstöku björgunarsvæði við vesturhlið
nýja hótelsins, þar sem inngangur verður,
og hafa þar sérstyrkt undirlag. Töldu
starfsmenn Minjastofnunar að þetta gæti
þýtt að skipta yrði um allt að 20% jarðvegs
í garðinum.
Nikulás Úlfar segir að þetta sé misskiln-
ingur. Sérstyrkt undirlag geti allt eins falið
í sér breiðari hellur en nú eru í Víkurgarði.
Engin jarðvegsskipti í vændum
ÁHYGGJUR MINJASTOFNUNAR EKKI Á RÖKUM REISTAR
Stytta Skúli fógeti í Víkurgarði.
„Ég á ekki von á öðru en að þetta
þing muni einkennast af samstöðu
um stefnumál,“ segir Elín Björg
Jónsdóttir, formaður BSRB, um
komandi þing samtakanna sem
haldið verður á Hilton Reykjavik
Nordica hótelinu dagana 17. til 19.
október. Þingið sitja um 200 manns
frá öllum aðildarfélögunum sem eru
26. Það er haldið undir yfirskriftinni
Bætt lífskjör – betri þjónusta.
Elín gefur ekki kost á sér til
áframhaldandi forystu og hefur að-
eins eitt framboð til formannsemb-
ættis verið tilkynnt. Það er Sonja Ýr
Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB
til síðustu 10 ára, sem gefur kost á
sér. Elín Björg segir að ekki sé
hægt að útiloka fleiri framboð, þar
sem hægt sé að tilkynna um fram-
boð á þinginu
sjálfu.
Spurð um
helstu mál þings-
ins segir hún að
stóru málin séu
eins og venjulega
stefnumörkun
samtakanna til
næstu þriggja
ára. Þar beri
hæst komandi
kjarasamninga, húsnæðismál og al-
mannaþjónustu.
Fjórir málefnahópar starfa á
þinginu, um vinnumarkaðinn og
starfsumhverfi starfsmanna í al-
mannaþjónustu, um vinnumarkað
framtíðar, um velferðarmál og fjöl-
skylduvænna samfélag.
Á þingvef samtakanna er búið að
birta tillögu stjórnar um umræðu-
efni málefnahópanna. Um kjara-
málin segir að BSRB telji grund-
vallaratriði að launamunur milli hins
opinbera og hins almenna vinnu-
markaðar verði jafnaður og er í því
sambandi vísað til samkomulags um
lífeyrismál frá 19. september 2016.
Þá segir að launakannanir hafi sýnt
að launamunur á milli markaða sé
u.þ.b. 17%. Áfram verði að vinna að
hækkun lægstu launa. Grundvall-
aratriði sé að launafólk geti lifað af
dagvinnulaunum. Draga þurfi úr yf-
irvinnu en minna vinnuálag leiði til
þess að afköst starfsfólks aukist
hlutfallslega. BSRB vilji að lögfest
verði að vinnuvikan sé ekki lengri
en 36 stundir. gudmundur@mbl.is
Býst við samstöðu á þinginu
Þing BSRB haldið 17. til 19. október Formannsskipti
verða Stefnumörkun til næstu ára helsta viðfangsefnið
Elín Björg
Jónsdóttir
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og fyrrverandi sam-
gönguráðherra, vill leggja í mikið
samgönguátak næstu sex árin. Í það
verði lagðir 65 milljarðar. Verkefnið
verði fjármagnað með lánum sem
greidd verði til baka á 20-25 árum
með hóflegum veggjöldum. Jón
kynnti hugmyndirnar sem nokkrir
þingmenn flokksins hafa unnið að
undir heitinu Það er til önnur leið, á
fundi sem umhverfis- og samgöngu-
nefnd Sjálfstæðisflokksins efndi til.
Jón segir að búið sé að bæta um-
talsvert við fjármagni í tíð núverandi
og síðustu ríkisstjórna. Samt sem
áður séu vonbrigði um allt land.
„Það er því gott að við tökum um-
ræðuna um það hvort við getum
stigið stærri og betri skref, farið í al-
vöru átak á næstu sex árum sem
mun gjörbreyta landslaginu í sam-
göngumálum,“ segir Jón.
Hann vill að þrem meginstofnæð-
um út frá Reykjavík verði komið í
varanlegt horf á næstu sex árum. Á
hann þar við Suðurlandsveg austur
fyrir Selfoss með nokkrum mis-
lægum gatnamótum og nýja brú á
Ölfusá, Reykjanesbraut frá Kapla-
krika að Flugstöð og Vesturlands-
veg í Borgarnes. Fjöldi annarra
verkefna er nefndur.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valhöll Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason kynntu tillögurnar ásamt
Ólafi Guðmundssyni. Jón hyggst kynna þær á fundum um allt land.
Tillaga um alvöru
átak í vegamálum
Fjármagnað með hóflegum veggjöldum
Lögmaður Kristjönu Val-
geirsdóttur, fjármálastjóra
Eflingar, mótmælir í yfir-
lýsingu ýmsum ummælum
Gunnars Smára Egilssonar
um hana í skrifum hans um málefni
Eflingar og reikninga eiginkonu
sinnar. Lögmaðurinn, Lára V. Júl-
íusdóttir, segir að í skrifunum komi
fram falskar og rangar ávirðingar
og ljóst að þær séu alvarleg aðför
að mannorði hennar og meira en
nægt tilefni til meiðyrðamáls og
kröfu miskabóta á hendur Gunnari
Smára. Lára segir þó að enn hafi
ekki verið tekin ákvörðun um mál-
sókn.
Í yfirlýsingunni segir að skrif
Gunnars séu full af til-
hæfulausum ásökunum og
ávirðingum sem séu til
þess eins gerðar að koma
af stað óhróðri um Krist-
jönu. Tilgangur hans sé sýnilega
ekki annar en að sverta mannorð
hennar og leitast við að draga úr
þeim trúverðugleika sem hún hafi
ætíð notið innan Eflingar. „Það
hlýtur að teljast mjög ómaklegt að
ráðast með þessum hætti gegn
starfsmanni í ábyrgðarstarfi á skrif-
stofu stéttarfélags og lítillækka
hann og vanvirða með tilhæfulaus-
um ásökunum, starfsmanni sem nú
um stundir er óvinnufær vegna
veikinda,“ segir þar.
Ávirðingar sagðar
falskar og rangar
Kristjana mótmælir skrifum Gunnars