Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 16

Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aðsókn í skólagarða í sveitarfélögum sem bjóða upp á þá þjónustu hefur farið dvínandi undan- farin ár eftir mikla aukningu sem varð eftir bankahrunið. Mikið fall varð í umsóknum um garða í Hafnarfirði í vor og er það rakið til veðr- áttunnar. Mörg sveitarfélög hafa hætt rekstri sérstakra skólagarða og sameinað þá í mat- jurtagarða fyrir alla fjölskylduna. Það á til dæmis við um Reykjavíkurborg og Hafnar- fjarðarbæ. Kristinn H. Þorsteinsson, fræðslu- og verk- efnastjóri hjá Garðyrkjufélagi Íslands, telur að ræktun eigin matjurta hafi heldur minnkað. Það gerist í uppsveiflu í efnahagslífinu og auk- ist aftur í niðursveiflu. Hann hefur þó á tilfinn- ingunni að hluti af aukningunni sem varð eftir hrun hafi haldist. Félagið er með garða fyrir fé- lagsmenn á tveimur stöðum í Reykjavík. Fólkið sem hafi aðstöðu í Elliðaárdal komi ár eftir ár en garðarnir í Gordal séu blautari og þar hafi aðsókn minnkað í rigningarsumrum. Fólkið hafi stundum látið sig hverfa og skilið eftir gaffla og skóflur. „Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að þegar skólagarðarnir eru farnir fái börnin ekki það uppeldi sem gæti nýst þeim síðar. Þau viti ekki um hvað þetta snýst. Ég hef orðið var við það að fólk sem kemur á námskeið hjá okkur í mat- jurtarækt minnist gjarnan á þetta tímabil í lífi sínu,“ segir Kristinn. Aðsókn minnkaði í Hafnarfirði Mikil fækkun varð í notkun fjölskyldugarða í Hafnarfirði í ár en skólagörðunum var breytt í fjölskyldugarða á síðasta ári. Aðeins 51 garður var í notkun en á undanförnum árum hafa verið leigðir út 120 til 160 garðar á ári. Ástæðan fyrir þessu hruni var veðrið í vor, að sögn Árdísar Ármannsdóttur, samskiptastjóra Hafnarfjarð- arbæjar. Ekki var hægt að úthluta görðunum fyrr en um miðjan júní. Árdís segir að ástæðan fyrir því að forminu var breytt, úr skólagörðum í fjölskyldugarða, hafi verið sú að Hafnarfjarðarbær hafi viljað skapa tækifæri fyrir fjölskyldur og aðra til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um það saman. Þrátt fyrir það sem gerðist í sumar verður boðið upp á þessa þjónustu áfram. Garðabær er bæði með skólagarða og al- menna matjurtagarða. Tilgangurinn er, sam- kvæmt upplýsingum bæjarins, að veita íbúum tækifæri til að rækta sitt eigið grænmeti og samtímis að njóta útiverunnar við ræktunina með fjölskyldunni og fá þannig tengingu við náttúruna. Aðeins 11 matjurtagarðar voru leigðir út í Hæðarhverfi í vor en 25 árið áður. Væntanlega hefur veðrið sett strik í reikning- inn þar, eins og í Hafnarfirði. Skólagarðar eru uppeldismál Skólagarðarnir í Silfurtúni eru hugsaðir sem viðbót við sumarnámskeiðaflóruna fyrir börn í Garðabæ. Börnin þurfa að axla ábyrgð og læra hvaðan grænmetið kemur og hvað þarf til að uppskeran verði sem best. Þannig er líklegt að umhverfisvitund þátttakenda eflist. Á árunum 2009 til 2012 voru 60-74 skólagarð- ar leigðir út í Garðabæ en það fór niður í 45-50 á næstu árum en jókst aftur upp í 60 garða í ár. Undanfarin ár hafa um 150 til 200 skólagarð- ar verið í notkun í Kópavogi og hefur eftir- spurnin verið nokkuð jöfn síðustu ár, að sögn Friðriks Baldurssonar garðyrkjustjóra. Þó er notkunin aðeins um helmingur af því sem var fyrir um áratug, þegar hún var sem mest. Fleiri börn geta verið á bak við hvern garð því al- gengt er að systkini rækti í sama garði. Kópa- vogsbær er einnig með aðstöðu fyrir aðra íbúa til grænmetisræktunar. Friðrik segir að Kópavogsbær telji mikil- vægt að bjóða upp á þessa þjónustu og hafi frekar aukið hana með fræðslustarfi og láni á áhöldum enda líti hann á þetta sem lýðheilsu- mál og skólagarðana sem uppeldismál. Friðrik segir að eftirspurn eftir skólagörðum hafi snarminnkað eitt árið. Rekur hann það til þess að Reykjavíkurborg hætti að bjóða upp á skólagarða og telur hann að fólk hafi talið það einnig hafa átt við um Kópavog. Svo hafi alls ekki verið. Breytt í fjölskyldugarða Skólagarðar voru aflagðir í Reykjavík vorið 2011 og þeim breytt í fjölskyldugarða. Ástæðan var sparnaður og hagræðing, samkvæmt upp- lýsingum Reykjavíkurborgar. Ásókn í almenna matjurtagarða jókst eftir efnahagshrun, að sögn Hjalta J. Guðmundssonar, skrifstofu- stjóra hjá borginni, og það er önnur ástæða fyr- ir breytingunni. Borgin leigir út 400-500 garða víðsvegar um borgarlandið og er auk þess með samninga við Garðyrkjufélag Íslands og önnur samtök um nokkur garðlönd til viðbótar. „Mér skilst að þetta sé ágætlega nýtt. Það er alltaf fólk sem vill rækta eigið grænmeti,“ segir Hjalti. Aðsókn að skólagörðum minnkar  Sveitarfélögin hafa verið að breyta skólagörðum í almenna matjurtagarða fyrir fjölskyldur  Skólagarðar taldir mikilvægt uppeldisatriði  Aðsókn snarminnkaði í vor vegna veðráttunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Ræktun Tvö börn vökva grænmetið í skólagörðunum við Hörðuvelli í Kópavogi. Bærinn telur rekstur skólagarða mikilvægt uppeldismál. ,,Það er búin að vera mjög góð síld- veiði frá því að veiðarnar hófust. Það er mikið að sjá og það virðist vera mikið af síld á ferðinni,“ sagði Theódór Þórðarson, skipstjóri á Venusi NS, í samtali við heimasíðu HB Granda á þriðjudag. ,,Við tókum fimm hol og aflinn er rúmlega 1.000 tonn. Síldin hagar sér þannig að hún dýpkar á sér yfir daginn. Fer jafnvel niður fyrir 200 faðma. Svo þegar aðeins fer að skyggja kemur hún upp, allt upp á 30 metra dýpi, og þá er þægilegast fyrir okkur að eiga við hana,“ sagði Theódór. Síldin er stór og falleg og auka- afli enginn. Þeir voru um 130 mílur í Norðfjarðarhorn þegar þeir hættu veiðum. Mikið virðist vera af síld á ferðinni Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta USIN Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Mikið úrval af lömpum og púðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.