Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 40
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Eftir meira en aldarlangar þrætur
og misvísandi vísbendingar segjast
vísindamenn loks hafa leyst gátuna
um stærsta fugl heims. Lýkur þar
með á annað hundrað ára úlfúð milli
Breta og Frakka.
Í 60 milljónir ára fór fílslegi risa-
fuglinn ófleygi – Aepyornis maximus
– um hitabeltisgresjur og regnskóga
Madagaskar, eða allt þar til honum
var útrýmt með veiðum fyrir um það
bil eitt þúsund árum.
Ný kynslóð evrópskra dýrafræð-
inga sem haldnir voru þráhyggju í
garð fuglsins, fóru ránshendi á
nítjándu öld, rændu og rupluðu
beinagrindum fuglsins og stein-
runnum eggjum. Með það í hönd-
unum gerðu þeir tilkall til þess að
hafa uppgötvað stærsta fugl jarð-
arinnar.
Gnæfðu yfir fólk
Niðurstöður rannsóknar breskra
vísindamanna sem birtar voru ný-
lega benda til þess að eitt afbrigði
fuglsins fílslega stóra hafi verið enn
stærra en hingað til hefur verið talið.
Sá fugl mun hafa verið 860 kíló, eða
svipað og fullvaxinn gíraffi.
„Þeir munu hafa gnæft vel yfir
fólk,“ segir James Hansford, for-
sprakki vísindamannanna, hjá Zoo-
logical Society of London. „Þeir gátu
ekki flogið, um það er engum blöðum
að fletta, þeir hefðu aldrei getað bor-
ið þessa þyngd á loft.“
Í skýrslu um rannsóknina sem birt
er í tímaritinu Royal Society Open
Science segir að Hansford-hópurinn
hafi rannsakað fílsfuglabein sem
fundust víða um heim og slegið
þyngd þeirra inn í algríms-reiknirit
til að átta sig á ætlaðri stærð dýrsins.
Hingað til hefur verið miðað við að
stærsti risafuglinn hafi verið skráður
árið 1894 af breska vísindamann-
inum C.W. Andrews. Nefndi hann
fuglinn Aepyornis titan sem var
stærra afbrigði af fuglinumAepyorn-
is maximus. Franskur keppinautur
Andrews vísaði fundi hans á bug og
hélt því fram að titan-fuglinn væri
óvenju stórt og ofvaxið eintak af
maximus-fuglinum. Þráteflisþrætur
um það stóðu í áratugi, og eiginlega
alla tíð þar til nú.
Hansford sagði rannsóknir sínar
sanna að titan-fuglinn hefði verið
sérstök tegund. En hann fann líka út
að bein hans hefðu verið svo frá-
brugðin öðrum fílsfuglabeinum, að
titan-fuglinn væri af allt annarri ætt-
kvísl. Hann var nefndur Vorombe
titan – „stór fugl“ á tungumáli Mala-
gaskarbúa. Skepnan mun hafa verið
að minnsta kosti þrír metrar á hæð
og vegið að meðaltali 650 kíló. Stærri
fugl hefur aldrei fundist.
„Við fundum eitt bein sem gjör-
breytti þekkingu og skilningi okkar á
stærð fuglabeina,“ sagði Hansford og
vísar til 860 kílóa beinsins. „Og fleiri
bein vísuðu í sömu átt og því er beinið
stóra ekki jaðardæmi, það fundust
massar sem voru óvenjulega stórir.“
Útdauður, en ekki gleymdur
Fílslegi risafuglinn var náinn
frændi móafuglsins nýsjálenska, sem
nú er útdauður, og af sömu ætt
ófleygra dýra og kívífuglinn, emúi og
strútur heyra til í dag. Steinrunnin
egg fuglsins fara fyrir mikið fé á upp-
boðum.
Þrátt fyrir lengra tilveruskeið en
nokkurt annað dýr á Madagaskar dó
fílslegi fuglinn út er þangað kom ný
alda innflytjenda fyrir um eitt þús-
und árum. Vegna einangrunar frá
Afríku þróuðust nokkrar dýrateg-
undir sem voru einstakar í sinni röð.
„Það fer að bera á stórum bújörðum
og vistkerfið breytist við skógar-
brennslu. Það virðist hafa leitt til út-
rýmingar allra risadýra á Madagask-
ar, þar á meðal fílslega fuglsins,“
sagði Hansford.
Hann segir að fuglinn sé ekki
fornt, áhugavert dýr sem dó út fyrir
árþúsundi, heldur gæti hann gefið
mikilvægar vísbendingar um hvernig
stýra megi vistkerfi Madagaskar í
framtíðinni. „Fílsfuglinn lék líklega
mikilvægasta leikinn í því að við-
halda og þróa landslag sem var eyj-
unni eðlilegt áður en maðurinn tók
sér þar bólfestu. Við þurfum að öðl-
ast skilning á því hlutverki sem þessi
dýr gegndu í vistkerfum eyjarinnar
til að geta hafist handa um endur-
myndun og varðveislu þess sem enn
varir af því,“ segir Hansford.
Fílslega stór risafugl fundinn
Risafuglinn, sem lifði á Madagaskar en dó út fyrir þúsund árum, var náinn frændi móafuglsins
nýsjálenska Er af sömu ætt ófleygra dýra og kívífuglinn, emúi og strútur heyra til núna
Vísindamenn segjast hafa fundið hinn eiginlega„risafugl“
„Þróun“ risafuglsins
Fyrsta tegundin
sem talin var
stærsti fuglinn
Beinum fílafugla hefur verið safnað á Madagaskar frá ofanverðri 19. öld
Stærri enmaximus,
lýst árið 1894 sem
nýja stærsta fuglinum
en margir drógu
það í efa
Nýjar rannsóknir
styðja fullyrðingar
um risafugl en að hann
hafi verið af
nýrri tegund
Þyngd:
Frá 680 kg
að 800 kg
Menn veiddu
fuglinn þar til
hann dó út
Talinn hafa verið
skyldur móafugli
á Nýja-Sjálandi
sem einnig
er útdauður
Svæði:
Madagaskar
Fæði:
jurtaæta
Staða:
Útdauður
fyrir 1000 árum
Hæð:
3 metrar
Ófleygur
Maður
1,7 metrar
Vorombe titan
Vorombe titanAepyornis maximus Aepyornis titan
„risafugl“
Stærsti fugl í heimi
Mynd: Zoological Society of London/Jaime Chirinos
Heimild: Zoological Society of London/Royal Society Open Science
AFP
Fílafuglar Teikning sem Zoological Society í Lundúnum birti sýnir 3 metra
háa fílafugla á Madagaskar eins og þeir eru taldir hafa litið út.
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Allt um sjávarútveg
Hitatækni
Skynjarar í miklu úrvali
Hitanemar | rakanemar | þrýstinemar | C02 nemar | hitastillar
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.