Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 46

Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018 LAGER- HREINSUN Á LAUGAVEGI 61 Gull, demantar og vönduð úr 50-70%AFSLÁTTUR Laugavegur 61 | Kringlan | Smáralind | sími 552 4910 | www.jonogoskar.is Hvernig ætli það mundi ganga að opna nýja veitingastaði, ef veitingasalar væru ávallt krafðir um að leggja fram valkosti fyrir yfirvöld, sem síð- an ættu lokaorðið um hvers konar veit- ingarekstur mætti fara fram, óháð viðskipta- hagsmunum veit- ingasalans. Hvernig ætli það mundi ganga ef flugfélög yrðu ávallt krafin um að leggja fram valkosti yfir nýja áfangastaði fyrir yfirvöld, sem síðan ættu lokaorðið um hvert mætti fljúga, óháð viðskiptahagsmunum flugfélagsins. Slíkt mundi aldrei ganga. Í sam- keppnisumhverfi verða fyrirtæki að hámarka hagnaðinn og enginn kemst upp með að elta vitlausar við- skiptahugmyndir. Hvorki veit- ingasalinn né flugfélagið hafa því nokkurt val ef hið opinbera leyfir að- eins vitlausu hugmyndirnar. Báðir verða að hætta við áformin, ellegar tapast fjárfestingin. Í nýlegum úrskurði úrskurð- arnefndar auðlinda og umhverf- ismála, vegna fiskeldis á Vest- fjörðum, var rekstrarleyfi fellt niður því úrskurðarnefnd krafði framkvæmdaraðila að skoða aðferð- ir eins og „notkun geldfisks, eldi á landi, eldi í lokuðum sjókvíum eða minna sjókvíaeldi“. Allar þessar hugmyndir fela í sér grundvall- arbreytingu á viðskiptalíkaninu og byggjast ýmist á tækni sem er enn í þróun eða er mun óhagkvæmari. Þar sem umhverf- ismat er opið ferli, sér- sniðið að því að gefa hagsmunaaðilum tæki- færi til að hafa áhrif á matsvinnuna meðan á henni stendur, þá er ansi undarlegt að slíkar getgátur séu að fá vægi löngu eftir að ferlinu er lokið. Enn undarlegri er sú nálgun, að fara að þvinga framkvæmdaraðila til að rannsaka fjárfestingakosti sem hann vill ekki fjárfesta í. Með því er í raun verið að breyta matsferlinu í skrípa- leik. Hvers konar umfjöllun búast menn við að framkvæmdaaðilinn skili um viðskiptahugmynd sem hann er afhuga? Hlutlausri umfjöll- un? Auðvitað á að afmarka mats- ferlið við raunverulega fjárfest- ingakosti sem að framkvæmdaraðili vill fjárfesta í en ekki við slíkar gervisviðsmyndir. Framkvæmdaað- ilinn er sá eini sem ber ábyrgð á fjárfestingunni og því þarf að leyfa honum að taka viðskiptaákvörð- unina. Ef hann telur aðeins eina nálgun koma til greina, þá ætti í matsferlinu ýmist að leggjast gegn henni eða mæla með henni með eða án skilyrða. Yfirvöld eiga hins vegar aldrei að leggja til nýjar viðskipta- hugmyndir. Hin hlið þessa máls, sem flækir það, er að veiðirétthafar laxveiðiáa óttast að verða fyrir tjóni frá fiskeld- inu og þar sem erfitt gæti verið að sækja bætur eru margir þeirra and- snúnir eldinu. Veiðiréttur þeirra af- markast hins vegar við laxveiðiána og getur því aldrei gefið þeim neinn einokunarrétt til að hindra hag- kvæma uppbyggingu annarra at- vinnugreina. Það er heldur aldrei réttlætanlegt að kæfa alla nýsköpun með því að dæma frumkvöðla fyr- irfram seka fyrir glæpi sem þeir hafa ekki framið. Sérstaklega ef ætl- að tjón er mikið til fjárhagslegt og því bætanlegt. Þannig væri vel hægt að mæta sjónarmiðum beggja aðila með því að auka ábyrgð fiskeldisfyrirtækj- anna t.d. með skýrari skaðabóta- ábyrgð og kröfu um öflugri trygg- ingar gegn sannanlegu tjóni. Fiskeldisfyrirtækið sæi þá enn meiri hag í því að gæta ýtrustu varkárni, á sama tíma og réttindi veiðirétthafa væru betur tryggð. Frelsum fiskeldið Í fyrra nam fiskeldisútflutningur Norðmanna 940 milljörðum ís- lenskra króna og taldi 72% af sjáv- arfangaútflutningstekjum þeirra. Hér á landi nam fiskeldið ekki nema um um 7% af útflutningstekjum sjávarafurða. Vaxtamöguleikar fisk- eldis eru því af stærðargráðu sem sjaldan hefur sést áður hér á landi. En ef Íslendingar vilja ekki sitja eft- ir þá verður að leyfa greininni að þróast á hagnaðargrundvelli. Van- hugsuð forsjárhyggja sem tekur ekkert tillit til viðskiptaumhverfisins á ekkert erindi í viðskiptaákvarðanir því ósjálfbær iðnaður getur ekki vaxið. Ef frumkvöðlum í greininni væri gefið frelsi til að bera ábyrgð á eigin framtakssemi, yrði öll slík for- sjárhyggja óþörf og greinin mundi þróast eðlilega með heilbrigð hagn- aðarsjónarmið að leiðarljósi. Leyf- um fiskeldisiðnbyltingunni að byrja. Frelsum fiskeldið. Umhverfismat án tillits til viðskiptaumhverfis Eftir Jóhannes Loftsson » Frelsi og ábyrgð eru mun farsælli fyrir þróun fiskeldis en van- hugsuð forsjárhyggja. Jóhannes Loftsson Höfundur er formaður frjálshyggju- félagsins. lififrelsid@gmail.com Mikil spurn er eftir iðnmenntuðum á vinnumarkaði. Ástæð- ur þess að ungt fólk hefur á síðustu árum valið bóknám frekar en iðnnám eru í meg- inatriðum tvíþættar, annars vegar er skýr- inga að leita í kerfis- lægum vanda í tengslum við iðn- og starfsmenntun og hins vegar tengist það ímynd til- tekinna starfa og námsleiða. Það þekkist einnig að áhrif og jafnvel þrýstingur frá vinum og foreldrum letji einstaklinga til þess að sækja iðn- og starfsmenntun. Það er miður. Grunnskólar kenna færri tíma í list- og verkgreinum en námskrá kveður á um og starfsráðgjöf end- urspeglar ekki þær fjölbreyttu námsleiðir sem eru í boði eftir grunnskólanám. Almennt virðast skólar vera næst því að mæta við- miðum varðandi list- og verk- greinar í yngstu bekkjum grunn- skóla en þegar litið er til efstu bekkja grunnskólanna kemur í ljós að aðeins einn af hverjum fimm grunnskólum í Reykjavík fylgir þessum viðmiðum aðal- námskrár. Á sama tíma virðist vera að starfsráðgjöf sé sinnt af veikum mætti í mörgum skólum og í ljós kemur að þegar nem- endur eru spurðir varðandi náms- framboð í starfsnámi nefna þeir fjórar til sex leiðir á meðan raunin er sú að allt að 100 leiðir eru í boði þegar að starfs- námi kemur og þar af eru um 60 greinar sem tengjast iðn- greinum. Í þessu eins og svo mörgu öðru er mik- ilvægt að ráðist sé að rótum vandans með markvissum aðgerð- um á grunnskólastigi. Þar þurfa nemendur að fá innsýn í fjöl- breytileika náms og starfa og fá tækifæri til að snerta á viðfangsefnum ólíkra greina, reyna sig í sköpun og verklegum viðfangsefnum. Ef efasemdaraddir eru til staðar um mikilvægi þessa væri áhugavert að heyra í foreldrum sem hafa sann- fært börn sín um það hversu skemmtilegar hjólreiðar geta verið og jafnvel kennt hjólreiðar með upplestri, skýringarmyndum og bóklegri uppfræðslu. Slíkar að- ferðir eru ekki vænlegar til árang- urs og sveitarfélögin hljóta að hafa metnað til þess að grunnskól- arnir geri betur. Læra börnin það sem fyrir þeim er haft? Eftir Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir »Raunin er sú að allt að 100 leiðir eru í boði þegar að starfs- námi kemur og þar af eru um 60 greinar sem tengjast iðngreinum. Höfundur er sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum iðn- aðarins. Á dauða mínum get ég átt von – enda búinn að lifa lengi. Hins vegar brá mér illilega í brún þegar ég las í Morg- unblaðinu fyrir skömmu, staddur í útlöndum, að búið væri að selja Íslend- ingum – og þá eink- um eldri borgurum – dvalarhúsnæði á Spáni fyrir eitt þúsund og sjö hundruð milljónir króna og þar ætlaði fólkið sér að búa og dveljast til einhverrar frambúðar. Og á hverju ætlar þetta fólk sér að lifa? Á fæðu, sem þið hafið um áratugi varið íslensku þjóðina fyrir sakir hættulegra eituráhrifa. Mér eru minisstæð ummæli Sig- rúnar Magnúsdóttur ráðherra um sýkingarhættu þessara matvæla sem og margítrekaðar lýsingar Páls Péturssonar, ráðherra og eiginmanns hennar, á skelfilegum afleiðingum þess ef íslenskir ríkis- borgarar færu að leggja sér slíkt eitur til munns. Svo ekki sé talað um landbúnaðarráðherra Sjálf- stæðisflokksins sem allt til síðasta manns hafa reynt að vernda ís- lenska þjóð fyrir þeirri skelfilegu hættu sem fylgir útlendu kjöti – og útlöndum almennt. Meira að segja 200 prósenta tollar hafa ekki dugað til sóttvarnar – a.m.k. ekki vel. Hvers eiga gamlir að gjalda? Og nú á gamla fólkið á Íslandi að eyða síðustu ævi- dögum sínum í að lifa á þessum eitruðu vörum. Og enginn valdsmaður segir neitt. Lætur eins og honum – eða henni – komi málið ekkert við. Gerir ekki einu sinni kröfu til þess að gamla fólkið flytji með sér matvörur að heim- an. Sem er þó þekkt frá fyrri tíð – þegar ég var ungur maður. Þá fóru Íslendingar alltaf með mat með sér þegar þeir fóru til út- landa. Hangiket, saltket, saltfisk, siginn fisk, skötu, harðfisk – og meira að segja hákarl líka. Guðni í Sunnu, vinur minn, sagði að gisti- húsaeigendum á Spáni líkaði verst við skötuna – vegna lyktarinnar. En heilbrigði og heilsa var fyrir öllu. Hvað hefur breyst? Eru verðir hinnar hollu fæðu að bregð- ast eldri borgurum? Ætla þeir að láta þá sitja uppi á Spánar- ströndum í miðpunkti eituráhrifa hinna bölvuðu fæðutegunda og umbera það líf og heilsutjón sem af því mun hljótast – eða hyggjast valdsmenn okkar samfélags grípa í taumana og stemma á að ósi? Opið bréf til sjálf- stæðis- og fram- sóknarmanna Eftir Sighvat Björgvinsson Sighvatur Björgvinsson » Og nú á gamla fólkið á Íslandi að eyða síð- ustu ævidögum sínum í að lifa á þessum eitruðu vörum. Höfundur er fv. heilbrigðisráðherra. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.