Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 57
MINNINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
✝ Ásta Guðjóns-dóttir fæddist
í Vogatungu, Leir-
ársveit, 10. febr-
úar 1927. Hún lést
á Höfða, hjúkrun-
ar- og dvalar-
heimili, 25. sept-
ember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Halldóra
Böðvarsdóttir og
Guðjón Jónsson í
Vogatungu.
Ásta var yngst átta systkina
sem nú eru öll látin. Þau voru
auk hennar: Ólöf, Böðvar, Ólaf-
ur, Elín, Engilbert, Sigurður
og Anna.
Ásta giftist Garðari Berg-
mann Benediktssyni 17. febr-
úar 1945. Börn þeirra eru í
aldursröð: Fóstursonur, Bene-
dikt Rúnar Hjálmarsson, hann
lést árið 1990. Eftirlifandi eig-
og Styrmi, og fimm barnabörn
Auk þess að vera húsmóðir
vann Ásta ýmis störf utan
heimilis, aðallega við ræst-
ingar, afgreiðslustörf og
saumaskap hjá Akraprjóni og
66° norður. Einnig prjónaði
hún lopapeysur fyrir Hand-
prjónasamband Íslands í mörg
ár. Hún var mikil handverks-
kona, skapandi og listræn í sér,
hvort sem var í saumaskap, út-
saumi, að prjóna eða hekla.
Hún var ljóðelsk og las heil-
mikið. Hún hafði gaman af
ferðalögum og ferðaðist mikið
um landið með góðum vinum.
Seinni árin fór hún einnig
nokkrum sinnum til útlanda, til
Hollands og Kanaríeyja.
Ásta ólst upp í Vogatungu
en bjó síðan alla tíð á Akranesi,
fyrst á Mánabraut 5 en lengst
af í Stekkjarholti 22. Síðustu
árin bjó hún á Höfða, hjúkr-
unar- og dvalarheimili.
Útför Ástu fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 11. októ-
ber 2018, klukkan 13.
inkona hans er
Friðgerður Elín
Bjarnadóttir. Þau
eiga þrjú börn,
Kolbrúnu, Ástu og
Ívar Örn, og fimm
barnabörn. Drífa,
gift Jóhannesi Jóni
Eyleifssyni, þau
eiga fjögur börn,
Garðar, Eyleif
Ísak, Lindu Dröfn
og Lovísu, og sex
barnabörn. Skúli, kvæntur
Lilju Kristófersdóttur, þau eiga
þrjú börn, Jón Örn, Edit og
Kristrúnu, og fimm barnabörn.
Halldóra Jóna Garðarsdóttir,
gift Gunnlaugi Sölvasyni, þau
eiga fjóra syni, Arnar Berg-
mann, Bjarka Bergmann, Garð-
ar Bergmann og Rúnar Berg-
mann, og 14 barnabörn.
Guðrún, gift Karli Erni Karls-
syni, þau eiga tvö börn, Rakel
Elskuleg móðir mín lést á
Dvalarheimilinu Höfða 25. sept. á
92. aldursári.
Mamma var yngst átta systk-
ina og var ein eftirlifandi. Hún
fæddist á Vogatungu í Leirár-
sveit og ólst þar upp á mann-
mörgu heimili, að hennar sögn
alltaf líf og fjör, þó að föðurmissir
í æsku hafi skilið eftir djúp sár.
16 ára fór hún sem vinnukona
á Akranes og lærði heilmikið um
heimilishald og matseld. Á þess-
um árum kynnist hún pabba. Þau
giftu sig þegar hún var 18 ára og
þurfti forsetabréf til.
Mamma var aðeins 20 ára þeg-
ar þau tóku Rúnar að sér í pöss-
un, en hann varð þeirra sonur
upp frá því. Síðan komum við
systkinin hvert af öðru og vorum
við orðin fimm þegar mamma var
29 ára.
Við áttum góða æsku, mamma
vann heima lengi vel. Á heimilinu
bjó amma Dóra einnig. Mann-
margt heimili, en allt gekk smurt,
enda jafnaðargeð og jákvæðni
mömmu ótrúleg.
Hún sá til þess að öll hefðum
við ýmislegt að fást við. Hún lagði
mikið upp úr því að við værum
vandvirk og stæðum okkur vel í
skóla. Mikið var spilað og lærðum
við allt frá ólsen upp í brids og
ekki má gleyma listinni að leggja
kapal.
Ung lærði hún að sauma og fór
á námskeið í sníðamennsku. Hún
var mikil listakona í raun, hafði
næmt auga fyrir hvað passaði
saman og saumaði ótal flíkur upp
úr öðrum.
Þetta varð til þess að við systk-
inin fengum ekki búðarföt fyrr en
seint og síðar meir að okkur
fannst. Allt var hannað og saum-
að af henni og vann hún við
saumaskap mestan hluta starfs-
ævi sinnar.
Mamma var líka flinkur bakari
og kökuskreytir, hafði mjög gam-
an af að teikna fyrir okkur, og
ekki má gleyma rithöndinni, sem
var afar falleg.
Ég er þakklát fyrir ófáar tjald-
og sveitaferðir. Í lengri ferðum
var stoppað oft, borðað nesti og
farið í leiki, rifjuð upp nöfn á ám
og fjöllum. Lengi vel voru þau
með vinum í ferðahóp, sem hét
Hringsjá, og fóru vítt og breitt
um landið í rútu. Þetta var góður
félagsskapur, sem við nutum
góðs af líka.
Ásta, mamma mín, bar sann-
arlega nafn með rentu, var ást-
úðleg við alla sem hún kynntist á
lífsleiðinni. Kalli minnist þess oft
hversu mamma og pabbi tóku vel
á móti honum í fyrsta sinn, 16 ára
stráklingi, og var það honum
ómetanlegt.
Rakel og Styrmir sóttu mikið í
samvistir með ömmu Ástu.
Tengdasonur okkar sagði ein-
hverju sinni að mynd af Ástu ætti
að vera myndskýring á orðinu
amma. Þannig var hans upplifun.
Síðar á göngum Höfða hélt hún
áfram að gefa af sér, hún þurfti
að klappa og kyssa alla sem hún
mætti. Þannig var Ásta í Voga-
tungu.
Þú ert gull og gersemi
góða besta mamma mín.
Dyggðir þínar dásami
eilíflega dóttir þín.
Vandvirkni og vinnusemi
væntumþykja úr augum skín
Hugrekki og hugulsemi
og huggun þegar hún er brýn.
Þrautseigja og þolinmæði
– kostir sem að prýða þig.
Bjölluhlátur, birtuljómi,
barlóm lætur eiga sig.
Trygglynd, trú, já algjört æði.
Takk fyrir að eiga mig.
(Anna Þóra)
Elsku besta mamma mín, mik-
ið var ég heppin að eiga þig að.
Þín verður minnst um ókomin ár
af mér og mínum fyrir skilyrð-
islausa ást og hlýju.
Þín dóttir,
Guðrún.
Hinsta kveðja til yndislegrar
mömmu okkar.
Mamma
ég vild́ að ég gæti
ort um þig ódauðleg ljóð,
boðið þér fínustu sæti,
gefið þér dýrastan sjóð.
Þú gafst mér lífið – og ævi þín
fór í að vera mér góð.
Mamma
þú varst verndarengill æsku minnar.
Mamma
hvern dag ég hugsa enn til gæsku
þinnar.
Þú hafðir á mér gætur,
hvern dag og andvökunætur.
Sérhverjum vanda þú komst í lag,
það, er mín hamingja í dag.
Mamma
þú átt það besta í því sem núna ég er.
Ég er alltaf barnið þitt
og enn í dag er minn hugur dvelur
með þér.
Mamma
með þér.
(Þorsteinn Eggertsson)
Hvíl í friði, elsku mamma.
Við kveðjum þig með söknuði,
virðingu og þakklæti fyrir allt
sem þú varst okkur og fjölskyld-
um okkar.
Drífa, Skúli, Halldóra og
Guðrún.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
(Kristján Hreinsson)
Elskuleg tengdamóðir mín,
Ásta Guðjónsdóttir, er fallin frá
og minningarnar hrannast upp.
Þú varst hjálparhellan okkar
Rúnars á fyrstu búskaparárun-
um og alla tíð. Passaðir börnin
okkar, gafst góð ráð, hjálpaðir við
saumaskap og svo ótal margt
fleira. Ég hefði ekki getað óskað
mér betri tengdaforeldra en ykk-
ur Garðars. Hlýja og ástúð
streymdi frá ykkur báðum í allar
áttir. Það er svo gott að eiga góð-
ar minningar, þær getur enginn
tekið frá okkur. Takk fyrir öll ár-
in okkar, elsku Ásta, þú varst
yndisleg mamma, tengda-
mamma, amma og langamma
sem verður sárt saknað. Ég er
sannfærð um að þú hefur fengið
góðar móttökur og opna arma í
Sumarlandinu. Guð geymi þig.
Þín tengdadóttir,
Friðgerður.
Í dag kveðjum við elsku ömmu
Ástu sem var okkur svo kær.
Margar áttum við stundirnar
með ömmu og afa á Stekkjó og
alltaf var gott að koma í heim-
sókn til þeirra, bæði svo ljúf og
yndisleg og móttökurnar ávallt
hlýjar. Þegar við systurnar vor-
um litlar eyddum við mörgum að-
fangadagskvöldum hjá ömmu og
afa og það var ómissandi hluti af
jólahaldinu í mörg ár. Síðar meir
þegar barnabörnunum hafði
fjölgað og hópurinn stækkað var
alltaf jólaboð hjá þeim og var al-
veg ótrúlegt hve margir komust
fyrir í íbúðinni þeirra á Stekkjó.
Alltaf var pláss fyrir alla. Þetta
er svo sterkt í minningunni hjá
okkur systkinunum. Amma og afi
voru dugleg að halda utan um alla
fjölskylduna, samgangurinn var
mikill og sem dæmi hittumst við
oft í kringum afmælið hans afa
sem var á miðju sumri og gerðum
eitthvað skemmtilegt.
Okkur er minnisstætt að þegar
amma var að vinna í Akraprjóni
þá saumaði hún á okkur systurn-
ar peysukjóla og ullarjakka sem
við vorum ákaflega montnar með.
Hún prjónaði líka ullarpeysu á
pabba, sem hann notaði í smíða-
vinnu allt til dauðadags og Ívar
hefur síðan notað í sínum vinnu-
ferðum í mörg ár. Hún var iðin
við að sauma og prjóna og var
flink í höndunum. Amma Ásta
var afar hógvær og það var lýs-
andi fyrir hana þegar hún vildi
ekki gera mikið úr öllum veiting-
unum sem hún bar á borð í jóla-
boðum eða öðrum veislum, og
kallaði hnallþórur og aðrar kræs-
ingar gjarnan „óttalegar drullu-
kökur“.
Um leið og við syrgjum elsku
ömmu Ástu lítum við til baka með
gleði í hjarta og þakklæti fyrir
alla þá ást og umhyggju sem hún
gaf af sér til okkar.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Guð geymi þig, elsku amma
Ásta.
Kolbrún, Ásta og Ívar Örn.
Ásta Guðjónsdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku amma.
Ég kveð þig amma með söknuð
í hjarta,
faðmur þinn opinn, þú umvafðir
alla.
Kærleikur og hlýja, brosið þitt
bjarta,
ljós þitt nú lýsir þegar degi fer
að halla.
Þú saumaðir, lagðir kapal og
spilaðir á spil,
dýrmætu stundirnar, á Stekkjó
var gaman.
Minningarnar geymi, þær veita
mér yl,
innst inni ég brosi, þið ferðist
nú saman.
(Lovísa Jóhannesdóttir)
Takk fyrir allt, hvíl í
friði.
Lovísa og Drífa Katrín.
Gunnar Guð-
mundsson, hinn
sanni vinur vina
sinna. Það er rúmt 51 ár síðan ég
flutti frá Íslandi. Öll þessi ár hef
ég verið stoltur Íslendingur í
ýmsum heimshornum og er það
enn. Margt hefur breyst á Íslandi
á þessum árum en annað breytist
aldrei. Það eru þeir góðu vinir
sem ég átti þá og á enn í dag.
Þegar ég lít aftur yfir mína löngu
og litríku lífstíð þá sé ég fjöl-
marga vini, og þar á meðal
nokkra „sannvini“.
Það er gott að eiga góða vini en
erfitt þegar þeir bregðast þegar
mest liggur á. Gunnar var hinn
sanni vinur vina sinna; vinátta
sem aldrei brást. Það er sárt að
sætta sig við þá staðreynd að
Gunnar sé farinn heim, en heiður
að hafa þekkt þennan sérstaka og
góða mann. Hann sá um sína
ágætu eiginkonu; sína fjölskyldu
og kom víða við þar sem hans er
minnst með innilegum söknuði.
Það verður erfitt, Guðmundur, að
stíga í fótspor föður þíns.
Við Gunnar höfum átt samleið
frá því við vorum ungir og brattir
skátar. Skátastarfið var okkar líf
og kraftur, allt fram á fullorðins-
Gunnar
Guðmundsson
✝ Gunnar Guð-mundsson
fæddist 14. desem-
ber 1938. Hann lést
29. september
2018.
Útför Gunnars
fór fram 10. októ-
ber 2018.
ár. Minnisstæðast
er ferð okkar á
Jamboree í Bret-
landi, þegar 11 Grá-
hausar fóru sjóleið-
ina með gamla
Gullfossi til Edin-
borgar. Þetta var
einstök ferð, sem
hefur haft lífslöng
áhrif á okkur alla,
sem hafa enst fram
til þessa dags. Við
höfum haldið hópinn; hist reglu-
lega og farið í ferðir saman.
Gunnar var ávallt í miðjum hópn-
um og oft sá sem skipulagði ferð-
irnar; lagði til bíl og bílstjóra án
þess að þiggja krónu fyrir ómak-
ið.
Ég var á Íslandi í júní síðast-
liðnum og auðvitað áttum við
Gunnar góðar stundir saman. Við
fórum í tveggja daga ferð um
Suðurlandið; alla leið austur í
Höfn í Hornafirði, – að skoða hót-
el o.fl. í sambandi við mín við-
skipti í ferðamálum. Það var stór-
skemmtileg ferð. Gunnar var mín
stoð og stytta; ráðgjafi án þókn-
unar, þessi árin þegar ég hef
byggt upp hópferðir til Íslands
fyrir Bandaríkjamenn. Hann
hafði gaman af að sjá „gamla
manninn“ takast á við ný og
skemmtileg verkefni. Ég talaði
síðast við Gunnar daginn áður en
hann lést. Við töluðum um mína
næstu heimsókn til Íslands nú í
vetur.
Það verða margir sem sakna
Gunnars. Hann hafði víða komið
við, hérlendis og erlendis. Gunn-
ar var stórskemmtilegur og fróð-
ur um fólk, fjöll og firnindi. Hann
átti til að segja sögu eða brand-
ara í ferðum þar sem hann þekkti
bændur, nöfn á fjöllum og annað
minnisvert. Hann setti sitt já-
kvæða mark á umhverfið sem
sannur Íslendingur.
Ég sakna Gunnars og minnist
hans sem hann hafi verið minn
eigin bróðir.
Með Gráhausakveðju,
Ingólfur Blöndal,
Simpsonville, S.C., USA.
Þessi maður, þessi ferðafélagi,
þessi mikli viskubrunnur um vegi
og borgir í Evrópu. Hvert er
hann farinn? Kannski í nýtt
ferðalag sem við þekkjum ekki
nóg um. Gunnar vinur okkar var
svo einstakur og magnaður að
mann setur hljóðan þegar snill-
ingur veganna, fjallaferðanna og
autobananna í Evrópu fer í nýtt
endanlegt ferðalag. Við vonum að
það séu magnaðar hópferðabif-
reiðar og ævintýri í því landi sem
hann nú mun gista. Þessi góði
drengur er vinur okkar, ferða-
félagi og leiðsögumaður um alla
Evrópu. Allar þær ferðir sem við
höfum farið saman eru geymdar
og munu ekki gleymast. Sam-
starf um ferðir við Sókn, og síðar
Eflingu stéttarfélag, hófust
snemma en fyrsta ferðin til út-
landa var til Færeyja og þvílík
ferð. Allt gekk upp. Svo allar okk-
ar ferðir innan lands um alla staði
þar sem hægt var að finna góða
gistingu þó um dýnustæði væri
að ræða. Ferð um Norðaustur-
land með matarbíl mun aldrei
gleymast.
Atvikin eru svo mörg og æv-
intýrin og sögurnar svo magnað-
ar. Um alla Evrópu flökkuðum
við og vorum alltaf sammála um
að finna eitthvað sem enginn
myndi gleyma, Vín, Búdapest,
Prag, Heidelberg, Berlín, Dres-
den, Kaupmannahöfn, Köln,
Goslar, Kraká, Stettin, Ósló,
Bergen, Þrándheimur, Gauta-
borg, Trier, Lúxemborg og
Garda. Við vorum á flakki til að
kynna fólki menningu og dá-
semdir allra þessara staða. Sem
fyrirliði og ökumaður í ótal ferð-
um í Bláfjöll á skíði og svo í Þórs-
mörk í vor- og haustferðir með
grunnskólabörn og unglinga
þökkum við Gunnari örugga og
farsæla stjórn. Í hartnær fjóra
áratugi stýrði þessi öðlingur á
einn eða annan hátt ferðum fyrir
grunnskóla í Reykjavík. Til að
komast í Skagfjörðsskála í Þórs-
mörk verður að fara yfir Krossá.
Hún getur verið ófrýnileg. Þar
myndast viðsjárverðar sand-
bleytur. Eitt sinn komum við of
snemma inn að Álfakirkju og
sáum að hópurinn á undan okkur
var ekki farinn frá skálanum.
Gunnar vatt sér út á bakkann við
aðalstrenginn, sótti vöðlur, járn-
karl og kaðal í kistuna í lestinni.
Setti nokkra unglinga og reynd-
an kennara á enda kaðalsins á
þurru og óð út í svelginn. Við
þessa sýn þusti liðið allt út úr
hlýjunni og tók myndir í gríð og
erg. Leikrit sem tók tíma en eng-
in hætta á ferðum. Gunnar kunni
lagið á liðinu. Svo sannarlega. Öll
komumst við þurr, hress og glöð í
skálann. Þessi magnaði sögumað-
ur kunni svo margt, lausavísur,
brandara, skemmtisögur og öll
þekkingin sem hann miðlaði til
fólksins okkar.
Elsku Gunnar. Hafðu þökk
fyrir alla þína þekkingu og svo
skemmtilegheit. Vonandi hitt-
umst við í rútuferð með þér á öðr-
um slóðum.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
og Þórhallur Runólfsson.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
LÝÐUR SVEINBJÖRNSSON,
lést á Brákarhlíð í Borgarnesi
miðvikudaginn 26. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Karólína Rut Valdimarsdóttir
Pálína Bergey Lýðsdóttir Bjarni Kristinsson
Margrét Ragna Lýðsdóttir
Birna Sjöfn Lýðsdóttir Haldor André Meling
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Harðbak,
Melrakkasléttu,
fædd 18. júlí 1923 á Harðbak á
Melrakkasléttu,
lést mánudaginn 8. október á hjúkrunarheimilinu Eiri.
Margrét Þóroddsdóttir Sigurður Andrés Þóroddsson
Guðmundur Þóroddsson Þóroddur Ari Þóroddsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar