Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
ICQC 2018-20
„
hérna sem telst bara nokkuð mikið í
þessum bransa,“ segir Þórhallur
kíminn.
Bæði með útgáfu og forlag
Þórhallur er spurður hvort
Crunchy Frog gefi út plötur hljóm-
sveitanna fjögurra sem koma fram
á tónleikunum í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn og segir hann svo ekki
vera. Starfsmaður dönsku menning-
armiðstöðvarinnar, Kulturstyrelsen,
hafi átt hugmyndina að því að halda
dansk-íslenska rokktónleika og leit-
g y j
ingsmiðstöð danskrar tónlistar. Þar
á bæ bentu menn honum á Íslend-
inginn Þórhall hjá Crunchy Frog.
„Þá byrjuðum við að setja þetta
saman. Felines, önnur danska
hljómsveitin, er nýtt band hjá okk-
ur og Nelson Can eru stelpur sem
við gefum ekki út en við sjáum um
„publishing“ fyrir þær, fyrirtæki
sem heitir Crunchy Tunes,“ útskýr-
ir Þórhallur og er spurður að því
hvað hann eigi við með „publishing“
í þessu samhengi, þ.e. tónlistarlegu?
„Þetta er í rauninni eins og forlag,
g y
og forlag sem sér um lagahöfund-
ana. Það sem við gerum mest í þeim
málum er að koma lögum í sjón-
varp, bíómyndir, auglýsingar og
svoleiðis,“ svarar Þórhallur.
Jóhann leigði skrifstofu
af Crunchy Frog
Plötur Apparat Organ Quartet
gefur Crunchy Frog út í öðrum
löndum en Íslandi en Jóhann Jó-
hannsson heitinn var í hljómsveit-
inni framan af. Þórhallur segir
Crunchy Frog hafa leigt Jóhanni
g g
an er með bækistöðvar í. „Þá var
ákveðið að við gæfum Polyphonia,
plötu Apparats, út,“ útskýrir Þór-
hallur en Jóhann setti hljómsveitina
upphaflega saman fyrir spuna-
tónleikaröð sem hann átti þátt í.
Hvað Vök varðar segir Þórhallur
að hljómsveitin sé bæði vönduð og
hafi gert það gott á Norðurlönd-
unum. Vök fór með sigur af hólmi í
Músíktilraunum fyrir fimm árum,
flytur rafskotið draumpopp og hef-
ur vakið athygli út fyrir landstein-
ana.
g g
Miðasala á tónleikana í Reykjavík
fer fram á tix.is og miðasala á tón-
leikana í Kaupmannahöfn á bill-
etto.dk.
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•68
TIL HAMINGJU - ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vakn r á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Torg 2018 – listamessa í Reykjavík
nefnist viðburður sem Samband
íslenskra myndlistarmanna (SÍM)
stendur fyrir á Hlöðuloftinu á Korp-
úlfsstöðum um helgina, en verkefnið
er hluti af Mánuði myndlistar 2018.
„Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er
upp á listamessu af þessu tagi hér-
lendis,“ segir Anna Eyjólfsdóttir, for-
maður SÍM. „Okkur finnst löngu
tímabært að kynna þá fjölbreytilegu
myndlistarflóru sem hér fyrirfinnst
og skapa vettvang fyrir listunnendur
að nálgast og eignast verk listamanna
á auðveldan hátt. Þarna gefst fólki
meðal annars tækifæri til að eignast
verk eftir vel þekkta listamenn.“
Myndlistin er til sölu
Torg 2018 verður formlega opnað á
laugardag kl. 13 og er opið laugardag
og sunnudag milli kl. 13 og 18. „Þar
býðst gestum og gangandi að koma,
hitta listamenn, skoða verk þeirra og
jafnvel eignast þau. Listamenn geta
boðið kaupendum að gera greiðslu-
samning við kaup á listaverki, samn-
ingurinn gerir þá kaupanda kleift að
greiða mánaðarlega af verkinu. Það
hefur stundum verið feimnismál
hvort myndlistin sé til sölu, en þarna
verður hún algjörlega til sölu.“
Að sögn Önnu eru innan raða SÍM
rúmlega 840 listamenn, listhópar og
fagfélög á borð við Íslensk grafík,
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, Fé-
lag íslenskra samtímaljósmyndara
(FÍSL), Félag íslenskra myndlist-
armanna (FÍM), Textílfélagið og Leir-
listafélag Íslands. „Markmið okkar er
að gefa listamönnum tækifæri til að
koma verkum sínum á framfæri,“ segir
Anna og tekur fram að þátttaka sé
mjög góð. „Þannig þurftum við að
auka sýningarpláss til muna til að
anna eftirspurn.
„Í tveimur básum er boðið upp á
kynningar á réttindum og starfsum-
hverfi myndlistarmanna. „Kynningin
verður í höndum hagsmunasamtaka
og aðildarfélaga SÍM,“ segir Anna og
tekur fram að þessi hluti Torgsins sé
ætlaður listamönnum og þeim sem
starfa innan fagstéttarinnar. Þar sem
listamessan er nú haldin í fyrsta sinn
verður hún sennilega með aðeins öðru
sniði strax á næsta ári,“ segir Anna og
tekur fram að undirbúningur sé þeg-
ar hafinn fyrir listamessu næsta árs.
„Það verkefni verður miklu stærra og
viðameira. Sem dæmi stefnum við á
að kynna listamessu næsta árs er-
lendis auk þess sem hún mun standa í
að minnsta kosti viku á næsta ári.“
Sem flestir fái að njóta
SÍM hefur síðustu undanfarin ár
staðið fyrir Degi myndlistar í október
og kynnt þá starf myndlistarmanna.
„Kynningarnar hafa vaxið ár frá ári
að umfangi svo að ákveðið var að
breyta heiti verkefnisins í Mánuð
myndlistar.
„Eitt atriði Mánaðar myndlistar er
samstarf við Gerðuberg og Borg-
arbókasafnið í Tryggvagötu þar sem
listamenn verða með opna vinnustofu
í salarkynnum stofnananna. Lista-
menn munu heimsækja ríflega 30
grunn- og framhaldsskóla víða um
land og kynna list sína og starf,“ segir
Anna og bætir við að Mánuður mynd-
listar sé vettvangur fyrir kynningu á
störfum myndlistarmanna og um-
ræðu um mikilvægi myndlistar í sam-
félaginu.
„Flestir hafa séð myndlistarverk á
listasöfnum, í galleríum eða uppi á
vegg á heimilum og í stofnunum, en
þá eru verkin alltaf í endanlegri gerð.
Í Mánuði myndlistar er meðal annars
leitast við að skyggnast bak við tjöld-
in og veita innsýn í ferli listamannsins
við sköpun listaverka. Tilgangur
Mánaðar myndlistar er að setja fókus
á þetta ferli og auka og dýpka þekk-
ingu á faginu. Okkur dreymir um að
sem flestir fái að njóta listarinnar,“
segir Anna. Allar nánari upplýsingar
um dagskrá mánaðarins má finna á
vefnum manudurmyndlistar.is.
Fjölbreytileg myndlistarflóra
Samband íslenskra myndlistarmanna stendur fyrir listamessunni Torg 2018 á Korpúlfsstöðum
Viðburðurinn er hluti af Mánuði myndlistar Stefnumót myndlistarmanna og listunnenda
Morgunblaðið/Eggert
Undirbúningur Anna Eyjólfsdóttir, formaður SÍM, ásamt listamönnum sem þátt taka í Torgi 2018.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Klaus Mäkelä, 22 ára gamall hljóm-
sveitarstjóri sem sagður er einn af eft-
irtektarverðustu hljómsveitarstjórum
Norðurlanda, stjórnar Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á tónleikum í
Hörpu í kvöld.
Mäkelä, sem er finnskur, stjórnaði
Sinfóníuhljómsveit Íslands á tón-
leikum í Hörpu á Menningarnótt.
Hann segir að aldur, kyn eða þjóðerni
stjórnenda og tónlistarfólks skipti
engu máli, tónlist sé fyrir alla.
„Hljómburðurinn í Hörpu er frá-
bær, arkitektúr og umhverfi hússins
fallegt og Sinfóníuhljómsveit Íslands
skipuð tónlistarmönnum frá mörgum
löndum,“ segir Mäkelä sem telur
Hörpu besta hljómleikahús í Evrópu.
Foreldrar Mäkeläs eru hljómlist-
armenn og hans fyrsta minning er
tengd hlustun á tónlist.
„Það var gott fyrir mig og ég er
þakklátur fyrir að hafa alist upp við
tónlist. Ég hóf nám á selló sex ára
gamall og byrjaði nám í hljómsveit-
arstjórnun 12 ára,“ segir Mäkelä, sem
telur að þrátt fyrir að vera í yngri
kantinum sem hljómsveitarstjóri sé
hann langt í frá sá yngsti.
„Menning er mikilvæg, sérstaklega
í hraða nútímasamfélags og einnota
lífsstíls. Menningin endist og það er
mikilvægt fyrir nútímamanninn að
virða og þakka fyrir hana,“ segir Mäk-
elä og bætir við að í heimi þar sem
flest lifi í stuttan tíma viti fólk að tón-
listin verði alltaf til á einhvern hátt.
Á efnisskrá tónleikanna í kvöld eru
forleikur óperettunnar Candide eftir
Leonard Bernstein, tíunda sinfónía
Shostakovitsj og fiðlukonsert eftir
Pjotr Tsjajkovskíj. Einleikari á tón-
leikunum er Sayaka Shoji, japönsk
fiðlustjarna sem ferðast um heiminn
með Stradivarius-fiðlu.
Tónleikunum í kvöld, sem hefjast
kl. 19.30, verður streymt beint af vef
Sinfóníuhljómsveitarinnar og útvarp-
að beint hjá RÚV á Rás 1.
Mäkelä tók nýverið við stöðu aðal-
gestastjórnanda hjá Sænsku útvarps-
hljómsveitinni. Hann er staðar-
listamaður Tapiola-sinfóníettunnar og
þreytti nýverið frumraun sína hjá
Konunglegu fílharmóníunni í Stokk-
hólmi og sinfóníuhljómsveitunum í
Lahti, Ottawa og Minnesota. Auk
þess hefur Mäkelä stjórnað Fílharm-
óníusveitinni í Helsinki og í Gauta-
borg. Mäkelä stýrði óperu Mozarts
hjá finnsku þjóðaróperunni og hefur
komið fram sem einleikari með fjölda
hljómsveita.
Á næsta ári tekur Mäkelä við stöðu
listræns stjórnanda tónlistarhátíð-
arinnar í Turku í Finnlandi og árið
2020 verður hann aðalstjórnandi Fíl-
harmóníusveitarinnar í Ósló.
22 ára stjórnandi í Hörpu í kvöld
Klaus Mäkelä
eftirtektarverður
Þakklátur fyrir
tónlistaruppeldi
Morgunblaðið/Hari
Einbeiting Klaus Mäkelä stjórnandi og Sayaka Shoji einleikari æfa með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu.
Brautryðjendur 3 er yfirskrift tón-
leika sem haldir verða í Salnum ann-
að kvöld, föstudag, kl. 20. Þar verður
sjónum beint að að þremur braut-
ryðjendum í óperusöng á Íslandi,
þeim Guðmundi Jónssyni, Guðrúnu
Á. Símonar og Magnús Jónssyni.
„Þau voru í hópi fremstu íslenskra
óperusöngvara fyrr á árum, og með-
al brautryðjenda í íslensku tónlistar-
lífi. Farið verður yfir feril þessara
merku söngvara og sungið úr glæsi-
legri söngskrá þeirra, bæði íslensk
sönglög, óperuaríur og dúetta,“ seg-
ir í tilkynningu. Á tónleikunum
koma fram Ingibjörg Aldís Ólafs-
dóttir sópran, Egill Árni Pálsson
tenór, Oddur Arnþór Jónsson bari-
tón, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari
og Signý Sæmundsdóttir sópran
sem jafnframt er kynnir. Sérstakur
gestur er Hildigunnur Einarsdóttir
mezzósópran auk þess sem Ólafur
Beinteinn Ólafsson harmónikku-
leikari spilar einnig með í nokkrum
þekktum lögum.
Þrjú Guðmundur Jónsson, Guðrún
Á. Símonar og Magnús Jónsson.
Brauðryðj-
endur 3
í Salnum