Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
áttað mig á því fyrr en ég var búinn að
þessir þrír karakterar yrðu svona fyr-
irferðarmiklir, það er að segja Flóki,
Dagur og Steinar. Ég skrifaði fyrst
niður punkta, minnisatriði. Að hluta til
er þetta minningaskáldverk, ég hliðra
til ýmsu, felli eitt og annað saman.“
– Þetta eru þrír einstaklingar, mjög
ólíkir og samskiptin misskemmtileg,
en það skín í gegn mikil væntumþykja
í þeirra garð.
„Já, það er alveg klárt, mér þótti
mjög vænt um þessa menn. Það er
enginn í bókinni undanskilinn því að
mér þótti vænt um viðkomandi og
þykir.“
– Það er mikið drukkið í þessari
bók.
„Já, það tilheyrði þessum tíma, við
drukkum allir mikið.“
– Þrátt fyrir það voru þeir afkasta-
miklir og áberandi í sinni listsköpun.
„Þeir tóku sína vinnu mjög alvar-
lega og þau prinsipp að vilja ekki vera
sellout. Ég man til dæmis þegar ég
var beðinn að skrifa barnasögu fyrir
erlendan útgefanda og samdi Fallega
flughvalinn. Þá nefndi ég við Steinar
hvort hann vildi ekki skrifa barna-
sögu. Hann brást reiður við, fannst
hann tæki þá niður fyrir sig.“
Erfiðir útgefendum
– Þeir voru mjög duglegir, Steinar
með sínar tilraunabækur og tímarit
og Dagur líka alltaf að gefa eitthvað
út sjálfur, en þeir voru alltaf á jaðr-
inum, komust aldrei inn í hinn viður-
kennda bókmenntaheim.
„Þessir menn voru erfiðir útgef-
endum. Þegar Jóhann Páll varð útgef-
andi Steinars sagði hann: ég vil gjarn-
an taka við þínu höfundarverki, en ég
get ekki gefið þig út á hverju ári, ég
get gefið þig út annað hvert ár. Og
það er skilyrði af minni hálfu fyrir
okkar samstarfi að þú komir ekki
drukkinn á forlagið. – Steinar kom
fullur daginn eftir. Ef það átti að setja
einhverjar reglur eða línur þá var
strax gengið þvert á þær. Það var
stoltsatriði.“
– Þú ert ekki bara sögumaður held-
ur má segja að þú sért fjórða persón-
an í bókinni. Hvernig líkar þér við þá
persónu?
„Það er erfitt að sjá sig svona utan
frá, það er náttúrlega ekki mitt að
dæma hvort það hafi tekist. Ég fór þó
ekkert lengra en rammi verksins bauð
upp á þannig að í bland er þetta vissu-
lega mín höfundarsaga en líka saga af
því hvernig ég varð fyrir áhrifum af
þessum mönnum, þeir höfðu jú geysi-
mikil áhrif á mig. Ég var tíu árum
yngri en þeir á þessum tíma, tuttugu
árum yngri en Steinar, maður leit
upp til þessara manna, því er ekki
hægt að neita. Ég fer þó ekki lengra
með mína höfundarsögu en að því er
ég skrifaði Gaga, sem kom út 1984.“
– Hyggstu halda áfram að rekja
þína sögu?
„Það væri þá helst að ég færi fram
fyrir í tíma, að ég skrifaði bernsku-
bók, skrifaði um mína fjölskyldu, sem
er stórkostleg, Þar eru allir eins og
þeir hafi stigið út úr bókum eftir
Dickens. Ég myndi kannski halla mér
að því verkefni.“
„Mér þótti mjög vænt um þessa menn“
Í Listamannalaunum birtist mynd af látnum listamönnum, þeim Alfreð Flóka, Steinari
Sigurjónssyni og Degi Sigurðarsyni, og einum lifandi, Ólafi Gunnarssyni, sem skrifaði bókina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Upp úr miðri síðustu öld voru eftir-
taldir menn áberandi í íslensku menn-
ingarlífi: þeir Alfreð Flóki Nielsen
(1938-1987), Steinar Sigurjónsson
(1928-1992) og Dagur Sigurðarson
(1937-1994). Alfreð Flóki var lista-
maður, Steinar rithöfundur og Dagur
skáld og myndlistarmaður. Þeir voru
afkastamiklir, hver á sínu sviði, en
héldu sig þó á jaðri listarinnar, nema
kannski Flóki, fóru eigin leiðir og voru
ekki síður þekktir sem bóhemar og
jafnvel andborgarar en sem lista-
menn.
Ólafur Gunnarsson rithöfundur
þekkti þá alla mjög vel og umgekkst
reglulega, þeir voru vinir hans þótt
stundum hafi gengið á ýmsu eins og
hann lýsir í bókinni Listamannalaun-
um, sem kemur út í vikunni.
Þeir Flóki, Dagur og Steinar eru
allir látnir, eins og fram kemur hér að
ofan, og náðu ekki háum aldri, Steinar
lést 64 ára, Dagur 57 ára og Flóki 48
ára.
Núna eða aldrei
Aðspurður segir Ólafur að það hafi
ekki verið ýkja erfitt að skrifa þessa
frásögn af samskiptum sínum við þá
vini sína, efnisatriðin hafi legið nokk-
uð hreint fyrir og margar af þessum
sögum hafi hann sagt áður og sagt oft.
„Það eina sem ég var hræddur um var
að ég væri búinn að kjafta úr sögunum
allt líf en svo reyndist þó ekki vera,
það var eins og útkoman á pappírnum
yrði jafnvel skárri en ég hafði haldið.“
– Hvað kom þér af stað?
„Annaðhvort var að gera þetta
núna eða aldrei. Ég hugsaði: nú eld-
umst við allir og okkar bíður allra það
sama og mér fannst eftirsjá að því ef
þessi portrett myndu týnast fyrir fullt
og allt. Það var aðalmótívasjónin fyrir
því að ég samdi þessa bók. Ég hafði
reyndar oft áður byrjað á henni en
alltaf hætt við.
Svona bók eins og þessi skrifar sig
að miklu leyti sjálf – ef hún á annað
borð fer í gang. Ég hafði reyndar ekki
Áhrif Ólafur Gunnarsson segir frá þremur vinum
og áhrifavöldum í Listamannalaunum: Alfreð
Flóka, Steinari Sigurjónssyni og Degi Sigurðarsyni.
Útgáfuhúsið Verðandi og Salka
gefur meðal annars út nokkrar
barnabækur fyrir jólin, bók um
samningatækni, handavinnubók
um macramé, matreiðslubækur,
bók um veiði og nýútkomin er bók
um yfirvofandi vanda vegna lofts-
lagshlýnunar, Þetta breytir öllu:
kapítalisminn gegn loftslaginu eft-
ir Naomi Klein.
Meðal annars koma út tvær nýj-
ar bækur um Snuðru og Tuðru
eftir Iðunni Steinsdóttur og Lóu
Hlín Hjálmtýsdóttur, Snuðra og
Tuðra í sveitarferð og Snuðra og
Tuðra og ruslagrísirnir.
Lukka og hugmyndavélin:
Hætta í háloftunum er þriðja og
síðasta bókin um uppfinninga-
stelpuna Lukku eftir Evu Rún
Þorgeirsdóttur. Svo má nefna
tvær bækur fyrir þau allra yngstu,
Kormák krummafót og Kormák
endalausa, eftir Jónu Valborgu
Árnadóttur og Elsu Nielsen.
Væntanleg er líka bók eftir
Önnu Margréti Björnsson og
Laufeyju Jónsdóttur sem heitir
Milli svefns og Vöku en hún segir
frá Vöku sem þarf að sigrast á
myrkfælni.
Matreiðslubækurnar tvær eru
Grillmarkaðurinn eftir Hrefnu
Rósu Sætran, sem kemur út sam-
tímis á íslensku og ensku og inni-
heldur uppskriftir af samnefndum
veitingastað, og fyrsta matreiðslu-
bók Guðrúnar Sóleyjar Gestsdótt-
ur fjölmiðlakonu, Grænkerakrásir
Guðrúnar Sóleyjar: vegan upp-
skriftir fyrir mannúðleg matargöt,
sem hefur að geyma vegan-upp-
skriftir eins og nafnið ber með
sér.
Bókin um samningatækni er eft-
ir Aðalstein Leifsson, lektor við
HR, handavinnubókin um mac-
ramé er eftir Ninnu Stefánsdóttur
og Írisi Dögg Einarsdóttur og
Sölvi Björn Sigurðsson skrifaði
bók um veiðiskap sem hann nefnir
Undir sumarhimni. arnim@mbl.is
Barnabækur og fleira
Fjölbreytt útgáfa
Verðandi og Sölku
Eva Rún
Þorgeirsdóttir
Anna Margrét
Björnsson
Iðunn
Steinsdóttir
Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir