Morgunblaðið - 11.10.2018, Síða 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Knoll International
Barcelona
Hönnun: Ludwig Mies van der Rohe, Lilly Reich
Hér er birt brot úr sjötta kafla bók-
arinnar, Heimurinn þekkti hann ekki.
Lamb Guðs
Í fyrra bréfinu til Korintumanna
segir Páll postuli: „Hreinsið burt
gamla súrdeigið, til þess að þér séuð
nýtt deig, enda eruð þér ósýrðir. Því
að páskalambi voru er slátrað, sem er
Kristur“ (1 Kor. 5.7). Þessi líking er
tekin upp af höfundi Jóhannesarguð-
spjalls og verður allsherjar mynd-
gerving fyrir fórn-
ardauða Jesú
Krists. Þegar Jó-
hannes skírari sér
Jesúm í fyrsta
sinn segir hann:
„Sjá, Guðs lamb,
sem ber synd
heimsins“ […] og
hann endurtekur
þessa líkingu
skömmu síðar í viðurvist lærisveina
sinna (Jóh. 1.36).
Til að viðhalda líkingunni er tímatal
krossfestingarinnar allt annað í fjórða
guðspjallinu en í hinum þannig að
Jesús gefur upp andann að kvöldi
fimmtudags, um þær mundir sem að
páskalömbunum er slátrað (Jóh.
19.31). Síðasta kvöldmáltíðin verður
þar af leiðandi ekki páskamáltíð held-
ur venjulegur kvöldverður.
Sjálf krossfestingin hefur á sér allt
annan blæ heldur en í Markúsarguð-
spjalli þar sem Jesús ákallar Guð fyr-
ir að hafa yfirgefið sig. Þvert á móti
þá er Jesús sjálfur Guð og hefur allt
á valdi sér. Þetta sést t.d. í því hlut-
verki sem svikarinn Júdas Ískaríot
gegnir í Jóhannesarguðspjalli. Fram
kemur að „Jesús vissi frá upphafi,
hverjir þeir voru, sem trúðu ekki, og
hver sá var, sem mundi svíkja hann“
(Jóh. 6.64). Hann lýsir því beinlínis
yfir þegar hann segir: „Hef ég eigi
sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn
yðar djöfull“ (Jóh. 6.70). Í seinustu
kvöldmáltíðinni lýsir hann því yfir að
einn lærisveinn muni svíkja hann
(Jóh. 13.21) og gefur tákn um hver
það er, sá sem fær bita af brauði með
ídýfu. Jesús afhendir beinlínis Júdasi
þann bita og segir: „Það sem þú gjör-
ir, það gjör þú skjótt!“ (Jóh. 13.27).
Júdas er tæplega sjálfráða í þessu
ferli. Hann virðist einungis vera að
gegna því hlutverki sem honum var
áður ætlað. Þó lýtur hann ekki stjórn
Guðs því að fram kemur að eftir að
hann fékk sér bitann „fór Satan inn í
hann“ (Jóh. 13.27). Ekkert er sagt frá
örlögum Júdasar í Jóhannesarguð-
spjalli, eftir að hann hefur gegnt sínu
hlutverki virðist hann ekki lengur
skipta máli.
Framkoma Jesú fyrir Pílatusi sýn-
ir einnig að sjálf aftakan er ekki ann-
að en liður í áætlun Guðs. Þegar Píl-
atus, sem líkt og í öðrum guðspjöllum
finnur enga sök hjá honum, segir
Jesú að hann geti látið hann lausan
svarar hann: „Þú hefðir ekkert vald
yfir mér, ef þér væri ekki gefið það
að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök,
sem hefur selt mig þér í hendur“
(Jóh. 19.11). Líkt og Júdas er Pílatus
einungis verkfæri æðri máttarvalda.
Á krossinum sýnir Jesús engin
merki þjáningar önnur en að hann
segist vera þyrstur. Hann fær njarð-
arvött vættan í ediki að drekka:
„Þegar Jesús hafði fengið edikið,
sagði hann: „Það er fullkomnað.“ Þá
hneigði hann höfuðið og gaf upp and-
ann“ (Jóh. 19.30). Jesús hefur full-
komna yfirburði yfir þá sem taka
hann af lífi; þeir eru ekki að gera
annað en að framkvæma það sem
ætlað er að gerist.
„Lærisveinninn sem Jesús elskaði“
er fyrst nefndur þar sem segir frá
síðustu kvöldmáltíðinni og margboð-
uðum svikum Júdasar (Jóh. 13.23).
Ekki kemur fram hvort þar er á ferð
Jóhannes eða einhver annar. Á
krossinum standa hjá Jesú þrjár kon-
ur sem allar heita María; móðir hans,
móðursystir og María Magdalena:
Þegar Jesús sá móður sína standa
þar og lærisveininn, sem hann elsk-
aði, segir hann við móður sína:
„Kona, nú er hann sonur þinn.“ Síðan
sagði hann við lærisveininn: „Nú er
hún móðir þín.“ Og frá þeirri stundu
tók lærisveinninn hana heim til sín
(Jóh. 19.26-27).
Í hinum guðspjöllunum þremur er
enginn af lærisveinum Krists við-
staddur krossfestinguna en hér er
þessi ónefndi lærisveinn viðstaddur
og Jesús ættleiðir hann sem bróður
sinn. Eftir upprisu Krists er aftur
getið um þennan lærisvein sem aldrei
er nefndur með nafni. Þegar María
Magdalena kemur að tómri gröf
Krists fer hún á fund Péturs og þessa
lærisveins og þeir finna línklæði hans
þar (Jóh. 20.1-8).
Í Jóhannesarguðspjalli er mun
meira sagt af samskiptum sjálfra
lærisveina Jesú en í hinum eldri guð-
spjöllum. Í lokakafla guðspjallsins,
sem er sennilega síðari tíma viðbót,
er vikið að því að Pétur hafi spurt
Jesúm um „lærisveininn sem Jesús
elskaði“ og fengið hið kryptíska svar:
„Ef ég vil, að hann lifi, þangað til ég
kem, hverju skiptir það þig? Fylg þú
mér.“ Síðan segir að bræðurnir hafi
eftir þetta talið að lærisveinninn yrði
ódauðlegur en að þeir hafi ekki skilið
orð Jesú rétt (Jóh. 21.22-23). Hér er
greinilega verið að útskýra ein-
hverjar hugmyndir sem hermdar
voru upp á söfnuðinn sem Jóhannes-
arguðspjall er ritað fyrir. Vera má að
einhverjir í þeim söfnuði hafi talið að
endurkomu Jesú væri að vænta á
meðan þessi lærisveinn væri enn á
lífi en að þær væntingar hafi ekki
ræst.
Þegar greint er frá upprisu Krists
er sérstaklega vikið að postulanum
Tómasi sem ekki var viðstaddur þeg-
ar Jesús birtist lærisveinum sínum
fyrst og trúði því ekki á endurkomu
hans. Þegar Tómas sér svo Jesúm
fær hann þessar ávítur: „Þú trúir, af
því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir,
sem hafa ekki séð og trúa þó“ (Jóh.
20.29). Ekki er ósennilegt að í þessari
frásögn leynist einhver broddur í
garð þeirra sem mátu Tómas mest
allra postulanna; söfnuðinn sem
Tómasarguðspjall var ritað fyrir og
hélt enn fast við hefðbundna túlkun
gyðingdómsins á Jesú sem spámanni
Guðs.
„Kona, nú
er hann
sonur þinn“
Í bókinni Kristur – Saga hugmyndar, sem Hið ís-
lenska bókmenntafélag gefur út, fjallar Sverrir
Jakobsson um upphaf rótgróinna hugmynda um
Krist, hvernig þær mótuðust og af hverju þær
eru svo eðlisólíkar. Rakið er hvernig hið sögulega
minni um þessa máttugu persónu tók sífelldum
breytingum fyrstu aldirnar.
Kristur Lærisveinninn sem Jesús elskaði, mynd frá 1921 eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg. Úr einkasafni.