Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúum, starfsmönnum og gestum á
Hafnartorgi í Reykjavík bjóðast ýms-
ar útfærslur á bílastæðaleigu.
ÞG Verk byggir Hafnartorg. Þar
verða um 70 íbúðir og sjö þúsund fer-
metrar af skrifstofuhúsnæði. Áform-
að er að opna bílakjallarann undir
Hafnartorgi um áramótin.
Örn Tryggvi Johnsen, rekstrar-
stjóri hjá ÞG Verk, segir í boði að
leigja svonefnd kvöld- og næturstæði
á 12-15 þúsund á mánuði.
„Að sama skapi geta starfsmenn í
skrifstofum og verslunum leigt dag-
passa. Það er ekki búið að ákveða
verðskrána en þeir verða á 18-20 þús-
und. Þeim sem vilja kaupa sólar-
hringspassa mun standa það til boða
og verður hann líklega á 25 þúsund
krónur. Ef viðkomandi vill hins vegar
leigja sérmerkt stæði höfum við um
30 slík stæði. Verðið á þeim verður á
bilinu 60 til 70 þúsund.
Það fylgir öll þjónusta með þessum
stæðum en það er ekki gert ráð fyrir
rafhleðslu eða neinu slíku.“
Örn Tryggvi segir aðspurður að
þessi leiga endurspegli byggingar-
kostnað stæðanna.
„Við gerum ráð fyrir að byggingar-
kostnaður stæðanna sé 9-10 milljónir
á stæði,“ segir Örn Tryggvi og bendir
á að við áætlun húsaleigu sé algengt
að nota margfaldarann 120-160.
Margfeldið vísar til hlutfalls leigu-
verðs af stofnkostnaði fasteignar-
innar.
Ýmis kostnaður innifalinn
„Við erum að miða við margfaldara
sem er í kringum 150. Inni í því er
allur rekstrarkostnaður. Leigjandi
greiðir ekki húsfélagsgjald af bíla-
kjallaranum, heldur er það tekið með
í reikninginn. Þá er rekstrarkostnað-
ur á stæðunum í leiguverðinu,“ segir
Örn Tryggvi. Hann segir að almennt
fylgi bílastæði ekki með íbúðunum.
Hann bendir á að hægt sé að leigja
bílastæðin til langs tíma.
„Almennt gerum við ráð fyrir að
íbúar vilji frekar vera í almennum
stæðum, rétt eins og algengt er með
fólk sem býr í miðborginni. Það er
ljóst að það verður nóg af slíkum
stæðum í þessum kjallara, sérstak-
lega á kvöldin og nóttunni. Auðvitað
geta komið álagstoppar en heilt yfir á
fjöldi bílastæða að anna eftirspurn,“
segir Örn Tryggvi og bendir aðspurð-
ur á að almenningssamgöngur séu
óvíða betri en í miðborginni.
„Það fylgir eðlilega þeirri ákvörðun
að ætla að búa í miðborginni að hafa
aðrar hugmyndir eða gera aðrar kröf-
ur um bílastæði eða samgöngumáta
en í úthverfum.“
Ætlunin er að bílakjallarinn undir
Hafnartorgi verði tengdur við bíla-
kjallarann undir Austurhöfn og við
Hörpu. Örn Tryggvi segir áformað að
tenging við Hörpukjallarann verði
tilbúin seint í vor. Hins vegar sé ekki
víst hvenær bílakjallari undir fyrir-
huguðum höfuðstöðvum Landsbank-
ans verður opnaður.
Alls verða um 240 bílastæði undir
Hafnartorgi og Geirsgötu og alls
1.127 stæði í kjallaranum í heild.
Bílastæðin á 60-70 þúsund kr. á mánuði
Hægt verður að leigja sérmerkt bílastæði undir Hafnartorgi Leigan er 12-70 þús. eftir útfærslu
Rekstrarstjóri hjá ÞG Verk segir hvert stæði kosta 9-10 milljónir Leigan endurspegli kostnaðinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hafnartorg í Reykjavík Bílakjallarinn verður opnaður um áramótin.
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFIRÐI
Allar verslanir opnar til kl. 22.00 í kvöld
BLACK
FRIDAY
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM *25%
BARA Í DAG
FÖSTUDAGINN 23. NÓVEMBER
OPIÐ TIL KL. 22.00
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Svikahrapparnir sem herja á íþrótta-
og ungmennafélög og hafa náð ein-
hverjum fjármunum í gegnum er-
lenda bankareikninga beina spjótum
sínum einnig að foreldrafélögum
grunnskóla. Samfok, samtök foreldra
grunnskólabarna í Reykjavík, er að
safna upplýsingum hjá félögunum,
vara þau við og móta tillögur að nýj-
um verklagsreglum.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
manni foreldrafélags Breiðholtsskóla,
Önnu Sif Jónsdóttur, sendu svikar-
arnir tölvubréf til fyrrverandi gjald-
kera félagsins í hennar nafni með
beiðni um að millifæra upphæð sem
svarar til tæplega 700 þúsund króna
til viðtakanda í Þýskalandi. Gjaldker-
inn áttaði sig á því að ekki var allt með
felldu, enda sjald-
an sem foreldra-
félög greiða er-
lenda reikninga,
og lét formann
vita.
Anna hélt fyrst
að brotist hefði
verið inn í tölvu-
póstinn hennar en
svo reyndist ekki
vera. Þrjótarnir
gátu látið póstinn líta út eins og hún
væri að senda hann.
Þetta er nákvæmlega sama aðferð
og notuð er við ungmennafélög og ein
deild féll í gildruna og tapaði 700 þús-
und kr. Svipaðar aðferðir voru not-
aðar fyrir tæpu ári með árangri.
Þannig tapaði ein deild í Aftureldingu
í Mosfellsbæ nokkur hundruð þúsund
krónum. Jón Júlíus Karlsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir að þótt
það hafi snúið sér strax til viðskipta-
banka og lögreglu hafi ekki tekist að
ná peningunum til baka. Þrjótar af
þessu tagi hafi væntanlega stöðugan
aðgang að bankareikningum sínum
og taki peningana jafnóðum út. Jón
Júlíus er ekki ánægður með viðbrögð
viðskiptabanka síns. Honum finnst
hann ekki hafa brugðist nógu fljótt
við og erfitt hafi verið að fá upplýs-
ingar um gang mála.
Félagið breytti verklagsreglum
sínum í kjölfarið, sérstaklega varð-
andi erlendar greiðslur.
„Þetta er sorglegt mál. Erfitt er
þegar peningar tapast sem ætlaðir
eru í aðra og jákvæðari hluti,“ segir
hann. Félagið deildi ábyrgðinni af
málinu með viðkomandi deild og
hjálpaði til við að afla styrkja til að
tjón deildarinnar yrði sem minnst.
Fyrirmælafalsarar herja
einnig á foreldrafélög
Sorglegt mál, segir framkvæmdastjóri íþróttafélags
Anna Sif
Jónsdóttir
Fjöldi barna mætti á hina árlegu jólagleði Disn-
ey í húsi Árvakurs í Hádegismóum í gær. Gleðin
leyndi sér ekki á andlitum barnanna þegar tveir
jólasveinar mættu óvænt. Sungu sveinarnir
nokkur jólalög og sungu börnin með af öllum
krafti. Tilefnið var útgáfa Jólasyrpunnar 2018
en einnig gátu gestir skoðað fjöldann allan af
Disneybókum. Var börnunum boðið upp á kakó
og piparkökur í tilefni dagsins.
Jólagleði Disney í Hádegismóum
Morgunblaðið/Eggert
Gleði barnanna leyndi sér ekki er jólasveinarnir mættu
Stjórn Netfisks ehf. tók ákvörðun á
mánudaginn um að grípa til hóp-
uppsagnar starfsmanna sem starfa
við heitloftsþurrkun Netfisks í Iðn-
görðum í Garði. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá stjórn félags-
ins.
„Ákvörðunin er tekin af þeirri
ástæðu að Heilbrigðiseftirlit Suður-
nesja hefur ekki enn afgreitt og gef-
ið út starfsleyfi fyrir heitlofts-
þurrkun Nesfisks þrátt fyrir að
heilbrigðisnefnd svæðisins hafi á
fundi sínum 1. nóvember sl. tekið þá
ákvörðun að veita skyldi tímabundið
starfsleyfi til 31. maí 2019,“ segir í
fréttatilkynningu frá Netfiski þar
sem er jafnframt tekið fram að um
erfiða ákvörðun hafi verið að ræða.
Þær uppsagnir sem nú koma til
framkvæmda ná til 20 starfsmanna.
Netfiskur hefur haldið öllum starfs-
mönnum á launaskrá fram til þessa
þrátt fyrir óvissu um starfsleyfið.
Tuttugu
sagt upp
hjá Netfiski
Löng bið eftir
starfsleyfi ástæðan