Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 22.11., kl. 18.00 Reykjavík 0 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -3 léttskýjað Akureyri 1 alskýjað Egilsstaðir 1 alskýjað Vatnsskarðshólar 5 skýjað Nuuk 4 skýjað Þórshöfn 7 rigning Ósló -3 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 skýjað Stokkhólmur -3 skýjað Helsinki -1 heiðskírt Lúxemborg 2 léttskýjað Brussel 3 skýjað Dublin 5 léttskýjað Glasgow 0 heiðskírt London 4 þoka París 3 þoka Amsterdam 3 þoka Hamborg 1 skýjað Berlín 1 skýjað Vín 4 þoka Moskva 0 snjókoma Algarve 15 léttskýjað Madríd 11 léttskýjað Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 17 léttskýjað Róm 17 skýjað Aþena 14 léttskýjað Winnipeg -4 þoka Montreal -13 snjókoma New York -5 heiðskírt Chicago 0 þoka Orlando 20 heiðskírt  23. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:23 16:07 ÍSAFJÖRÐUR 10:52 15:47 SIGLUFJÖRÐUR 10:36 15:29 DJÚPIVOGUR 9:58 15:30 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag og sunnudag Hæg austlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað en austan 5-10 m/s allra syðst og stöku skúrir með S-ströndinni. Frost 3 til 8 stig í innsveitum fyrir norðan. Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og skýjað með köflum eða bjartviðri en skýjað og stöku skúrir með S- og SA-ströndinni. Hiti um og undir frostmarki en upp í 5 stig S- og V-lands. Íslendingar eru almennt heilsu- hraustir og telja 76% Íslendinga, 16 ára og eldri, sig vera við góða heilsu samkvæmt samanburði OECD á heilbrigðismálum í Evrópulöndum, Health at a Glance: Europe 2018, sem birtur var í gær. Þetta er tölu- vert hærra hlutfall en í aðildarríkjum Evrópusambandsins þar sem að jafn- aði meta 68% íbúa heilsufar sitt gott. Töluverður munur er þó á heilsu- fari þegar þjóðunum er skipt í tekju- hópa. Þannig meta þeir sem eru með hærri tekjur heilsufar sitt betra en þeir sem búa við lægri tekjur. 84% Íslendinga sem eru flokkaðir í hærri tekjuhópinn segjast vera við góða heilsu en hlutfall meðal lágtekjufólks er 69% hér á landi. Vandamál vegna andlegra veik- inda, geðraskana og geðsjúkdóma og skaðlegra afleiðinga áfengis og lyfja- notkunar er gríðarlega útbreitt og eiga einn af hverjum sex íbúum Evr- ópulanda við þau að stríða skv. skýrslu OECD. Hér á landi glíma 16,7% við þessi vandamál. Hlutfallið er hærra í 20 Evrópulöndum sem samanburðurinn nær til. Ísland er aðeins undir meðaltalinu en í Noregi er hlutfallið 18,5% og 16,9% í Dan- mörku. Fram kemur að talið er að heildarkostnaður Evrópulanda vegna andlegra sjúkdóma og röskun- ar vegna lyfjanotkunar og áfengis- neyslu nemi um 600 milljörðum evra á ári eða rúmlega 4% af landsfram- leiðslu. Offita útbreitt vandamál OECD birtir ýmsa mælikvarða á heilbrigðisástandið meðal Evrópu- þjóða. Hvergi í álfunni eru daglegar tóbaksreykingar minni en á Íslandi. 9,7% fullorðinna reykja hér á landi og hefur hlutfallið minnkað frá í fyrra þegar 10,2% Íslendinga reyktu dag- lega. Ekkert annað land er komið undir tíu prósenta markið í daglegum tóbaksreykingum. Áfengisneysla er aftur á móti út- breidd og fer vaxandi hér á landi. Neyttu fullorðnir Íslendingar að jafnaði 7,5 lítra af hreinum vínanda árið 2016 en 6,3 lítra af áfengi þremur árum fyrr. Að meðaltali neytir hver íbúi í aðildarríkjum ESB 9,8 lítra af hreinu alkóhóli af áfengi á ári. Íslendingar geta að jafnaði vænst þess að lifa í 82,5 ár, þar af karlar í 81 ár og konur í 84,1 ár. Lífslíkur Ís- lendinga eru með því hæsta sem þekkist meðal Evrópulanda en ævi- líkurnar eru þó meiri í fjórum öðrum löndum og tróna Sviss og Spánn á toppinum í þeim samanburði. Offita er sem fyrr útbreitt vanda- mál. Tíðni offitu meðal Íslendinga er 19%. Er það talsvert fyrir ofan með- altal Evrópuþjóða og er offita aðeins algengari en hér í fimm öðrum Evr- ópulöndum. omfr@mbl.is Íslendingar reykja minnst í Evrópu  Einn af hverjum sex Evrópubúum glíma við andlega vanheilsu skv samanburði OECD  76% Ís- lendinga segjast búa við góða heilsu  Áfengisneysla fer vaxandi  Fimmta langlífasta Evrópuþjóðin Heilsufar á Íslandi og meðaltal ESB-ríkja Heimild: OECD – Health at a Glance: Europe Lífslíkur eftir greiningu brjóstakrabbameins Útgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af landsframleiðslu Hlutfall þeirra sem reykja daglega Meðalævilengd ESB- meðaltal Ísland 81 ár 20% 9,6% 9,7% 8,5% 82,5 ár ESB- meðaltal Ísland ESB- meðaltal Ísland 83% 89,1% ESB- meðaltal Ísland Þingstörfin á Alþingi hafa gengið vel í vetur og vinna við afgreiðslu fjár- laga komin lengra en venja er á þess- um tíma árs. Annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið er lokið og frum- varpið gengið til fjárlaganefndar fyr- ir þriðju og síðustu umræðu. Stein- grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segist vera ágætlega bjartsýnn á að takast muni að ljúka þinghaldinu mjög nálægt þeim tíma fyrir jólaleyfi sem starfsáætlun þingsins gerir ráð fyrir. Skv. henni verður seinasti þingfundardagurinn 14. desember. Fjárlaganefnd mun væntanlega taka sér nokkra daga til frekari um- fjöllunar um frumvarpið en við aðra umræðu dró stjórnarmeirihlutinn til baka tvær tillögur til frekari skoð- unar, m.a. um endurlán ríkssjóðs til Íslandspósts. Í næstu viku er gert ráð fyrir tveimur nefndardögum og einnig verður dagskrá þingsins hliðrað til vegna Heimsþings kven- leiðtoga í Hörpu 26.-28. nóvember. Óvíst er því hvort fjárlagafrumvarp- ið kemur til endanlegrar afgreiðslu fyrir mánaðamótin. Annað stórmál sem þarf að afgreiða fyrir áramót er veiðigjaldafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en heimild til að leggja á veiðigjöld rennur að óbreyttu út um áramótin. Steingrímur segir að nýtt verklag við afgreiðslu fjárlaga virðist skila góðum árangri. Þar sem haustþingið kemur saman fyrr en áður var, þ.e. annan þriðjudag í september, gefst betri tími til umfjöllunar um frum- varpið og svo er vinnan auðveldari eftir að lögin um opinber fjármál voru sett, þar sem stór hluti vinn- unnar liggur fyrir að vori í ríkis- fjármálaáætluninni og kominn er rammi á útgjöld allra málasviða. ,,Það léttir þetta að leggja upp með vel undirbúið þing á reglulegum tíma. Við settum okkur vissulega dá- lítið metnaðarfulla áætlun um að vera snemma á ferðinni með fjárlög- in sem nánast stóðst alveg. Það má hiklaust segja að þetta hafi gengið ágætlega og verið góður andi,“ segir Steingrímur. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umræður á Alþingi Þingfundur hófst kl 10.30 í gær og stóð fram eftir degi. Fjöldi mála voru á dagskrá. Þingstörf ganga greiðlega  Afgreiðsla fjárlaga komin óvenju langt á þessum árstíma Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Eftir að fréttirnar af WOW air bár- ust ritaði bæjarlögmaður félaginu bréf. Spurt var um framgang verk- efnisins. Hann er að bíða eftir svari,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri Kópavogs, spurður um lóð flugfélagsins í Kársnesi. Lóðin hafi verið í skipulagsferli fram á mitt ár. Því hafi ekki verið hægt að hefja framkvæmdir fyrr en því var lokið. Áformað var að reisa höfuð- stöðvar flugfélagsins á landfyllingu við Vesturvör í Kársnesi og hótel í eigu félagsins þar við hlið. Lóðin snýr að Nauthólsvík en þaðan er áformað að leggja brú yfir á Kárs- nesið. Efnt var til hönnunarsam- keppni um höfuðstöðvar WOW air en ekki greint frá vinningstillögunni. Byggingarlóðin er í eigu félagsins TF-KÓP, en það er aftur í eigu Skúla Mogensen, eiganda WOW air. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs- ingafulltrúi WOW air, sagði ekkert hafa verið ákveðið um framhaldið. Hinn 5. nóvember var greint frá því að stjórn Icelandair Group hefði gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Þau viðskipti verða rædd á hluthafafundi Icelandair Group eftir viku. Icelandair Group áformaði að reisa nýjar höfuðstöðvar norðan við skrifstofur sínar í Vatnsmýri. Þau áform voru síðar sett á ís. Spyrja WOW air um höfuðstöðvar  Kópavogsbær kannar stöðu verks Teikning/Yrki arkitektar Drög Þessi hugmynd varð í 3. sæti í lokaðri hugmyndasamkeppni WOW air. REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFIRÐI Allar verslanir opnar til kl. 22.00 í kvöld KOLSVARTUR TIMEOUT AFSLÁTTUR STÓLL OG SKEMILL30% Í T ILEFNI DAGSINS BLACK FRIDAY SÉRTILBOÐ 237.860 kr. Svart Fantasy leður, svört eik og svartir fætur. Stóll, fullt verð: 269.900 kr. Skemill, fullt verð: 69.900 kr. STÓLL MEÐ SKEMLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.