Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 8

Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 8
Munu hlusta á sjónarmið íbúa Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hvetur haghafa til að skila athuga- semdum vegna auglýstrar tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina númer 23 við Furugerði. „Þetta hefur verið í mótun á vegum skipulags- sviðsins og þang- að höfum við beint öllum sem vilja koma sjónar- miðum sínum að varðandi skipu- lagið. Núna fer þetta í auglýs- ingaferli og þá hvet ég alla til að skila athugasemdum og það verður auðvitað farið málefnalega yfir það í þessu tilviki eins og öðrum.“ Kominn tími á umbreytingu Dagur segir skipulagi borgarinnar hafa litist vel á þessar hugmyndir. „Þarna er gamalt og úr sér gengið atvinnuhúsnæði og kannski kominn tími á einhverja umbreytingu. Það er auðvitað ekki alveg óvænt að ein- hverjir hafi athugasemdir en þá er um að gera að koma þeim á framfæri þannig að við getum farið yfir þær,“ segir Dagur en íbúar í Furugerði hafa gert athugasemdir við áform- aða uppbyggingu 32 íbúða á reitnum. Hæg uppbygging innviða Brynjar Harðarson, fv. fram- kvæmdastjóri Vals, segir hægagang í uppbyggingu innviða á Hlíðarenda, gatna og fráveitukerfa, tefja fyrir uppbyggingu íbúða. Dagur segir borgina hafa metnað til að „koma jafnt og þétt með gatnagerð og veit- ur“ á þessum reit sem öðrum.  Borgarstjóri ræðir um Furugerðið Teikning/ARKÍS Við Furugerði Drög að húsum við Bústaðaveg. Rætt er um 32 íbúðir. Dagur B. Eggertsson 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Nú er komin dálítil reynsla áfjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23 og sú reynsla er ekki góð. Um- ræður í borgarstjórn verða enn ómarkvissari en áður og fundir flóknari og þeim hættir til að lengjast, enda fleiri sem þurfa að láta ljós sitt skína.    ÍMorgunblaðinu ígær var fjallað um gagnrýni borgar- fulltrúa á starfshætti í borgarstjórn og borgarráði og þau sjónarmið sem þar komu fram benda ekki til þess að starfið sé skilvirkt.    Vigdís Hauksdóttir, borgarfull-trúi Miðflokksins, hafði þetta um málið að segja: „Nú þegar átta flokkar eru komnir í borgarstjórn þá virkar hreinlega gamla kerfið ekki. Ég tel því mikilvægt að fjölga bæði borgarstjórnarfundum, þannig að þeir verði alltaf haldnir einu sinni í viku, og borgarráðsfundum sem yrðu þannig tvisvar sinnum í viku.“    Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæð-ismanna í borginni, tekur und- ir að fjölgun borgarfulltrúa hafi ekki létt á kerfinu en bendir á að vandinn felist ekki síður í því að mál séu ekki kláruð. Hann segir dæmi um „fyrirspurnir sem hafa tafist í marga mánuði og mál hafa legið ókláruð árum saman.“    Stjórnleysi borgarinnar tekurstöðugt á sig nýjar myndir. Bragginn var aðeins ein birtingar- mynd þess, endalausir fundir þar sem mál eru ekki kláruð er önnur.    En verst er getu- eða viljaleysiðtil að koma stjórn borgarinnar í betra horf. Vigdís Hauksdóttir Stjórnleysið fer vaxandi í borginni STAKSTEINAR Eyþór Arnalds Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Átta skipasmíðastöðvar gerðu tilboð í smíði á nýjum dráttarbáti fyrir Faxaflóahafnir, en tilboðin voru opn- uð í fyrradag. Tilboðin eru frá Kína (3 tilboð frá 3 aðilum), Tyrklandi (9 tilboð frá 4 aðilum), Hollandi (1 til- boð) og Spáni (2 tilboð frá 1 aðila). Lægsta tilboðið var frá Med Mar- ine Holding í Tyrklandi. Var það 5.970.000 evrur, jafnvirði 845 millj- óna íslenskra króna. Í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna segir að nú fari af stað vinna við mat á tilboðum. Verð mun gilda 50% en tæknileg atriði, svo sem umhverfis- legt spor, rekstrarkostnaður og fyrri reynsla af smíði dráttarbáta gilda 50%. Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í árslok 2018. Útboðið var auglýst í september sl. Beðið var um tilboð í dráttarbát sem væri 32-35 metra langur og með 80 tonna togkraft áfram og aftur á bak. Báturinn skyldi afhentur Faxa- flóahöfnum á þriðja ársfjórðungi 2020. Áætlað var að bátur með 80 tonna dráttargetu myndi kosta á bilinu 7,5-8,0 milljónir evra, eða ná- lægt 1.000 milljónum. Nokkur til- boðanna eru undir því verði. Í fjárhagsáætlun Faxaflóahafna sf. fyrir 2020 og 2021 er gert ráð fyr- ir 1.000 milljónum til kaupa á nýjum dráttarbáti. Magni, stærsti dráttar- bátur fyrirtækisins, er með 40 tonna dráttargetu. sisi@mbl.is Tyrkir buðu lægst í nýjan Magna  Átta skipasmíðastöðvar gerðu tilboð  Nýr dráttarbátur væntanlegur 2020 Morgunblaðið/ÞÖK Magni Öflugasti dráttarbáturinn. FÖSTUDAGUR TIL FJÁR 20% afsláttur af öllum VÖRUM í dag 23. nóvember Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.