Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
BLACK FRIDAY tilboð
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Ze-Ze og Zhenzi
peysukápa st. 38-56
Verð áður kr. 8.990
Tilboð kr. 4.495
Ivy Beu kjóll,
stærðir 38-48
Verð áður kr. 6.990
Tilboð kr. 4.893
Ze-Ze og Zhenzi
peysa stærðir 38-56
Verð áður kr. 7.990
Tilboð kr. 3.995
Ze-Ze rúllukraga-
bolur stærðir 44-48
Verð áður kr. 4.990
Tilboð kr. 3.493
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Svartur
föstudagur
Kjólar
Túnikur
Peysur
Jakkar
Blússur
Toppar
Bolir
20%
afsláttur
föstudag og laugardag
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Svartur föstudagur
20%
afsláttur
Ármúla 44, 108 Reykjavík
s. 562 6062
Fylgið okkur á facebook
Svartur
föstudagur
15% afsláttur
af öllum vörum
30% afsláttur
af öllum Mac buxum og kjólum
Opið kl. 11–18
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur opnað tilboð í
endurbyggingu á 4,8 kílómetra
kafla Snæfellsnesvegar um Fróðár-
heiði, frá núverandi slitlagsenda við
Valavatn að vegamótum við Útnes-
veg.
Að verki loknu verður komið
bundið slitlag á veginn yfir heiðina,
tæplega 70 árum eftir að vegagerð
þar hófst.
Vegurinn um Fróðárheiði ligg-
ur hæst í 361 metra hæð og er einn
fjallveganna yfir Snæfellsfjallgarð,
lítið eitt austan Ólafsvíkur. Leiðin
liggur um snjóþungt skarð þar sem
veður verða oft vond. Kaflinn sem
nú stendur til að endurbyggja er
malarvegur, sem lagður verður
bundnu slitlagi. Teknar verða af
varhugaverðar beygjur og dregið úr
bratta á veginum.
Áætlað er að verkinu skuli lok-
ið að fullu eigi síðar en 1. ágúst
2020. Þá verður komið bundið slit-
lag á alla Fróðárheiðina, en íbúar á
Snæfellsnesi hafa lengi beðið eftir
þessum vegabótum. Fyrir um ára-
tug voru endurbætur gerðar á veg-
inum að sunnanverðu.
Fjögur tilboð bárust í verkið.
Lægstbjóðandi var Borgarverk ehf.,
Borgarnesi, sem bauð 385,8 millj-
ónir. Var það nokkuð undir áætl-
uðum verktakakostnaði, sem er
411,8 milljónir. Aðrir sem buðu í
verkið voru Þróttur ehf. Akranesi
430,7 milljónir, Suðurverk hf.,
Kópavogi 440,6 milljónir og Munck
Íslandi, Kópavogi, 681,3 milljónir.
Vegagerðin fer nú yfir tilboðin.
Í matsskýrslu frá árinu 2008,
sem Línuhönnun vann, segir að
markmiðið með framkvæmdunum á
Fróðárheiði sé að minnka líkur á
ófærð vegna snjóa og að taka af
beygjur sem eru varhugaverðar.
Snæfellsnesvegur (54) um Fróðár-
heiði er stofnbraut en jafnframt
innansveitarvegur í Snæfellsbæ og
íbúar á sunnanverðu nesinu þurfi að
fara um Fróðárheiði til að sækja
stjórnsýslu og þjónustu til Ólafs-
víkur og Hellissands. Öll öryggis-
þjónusta, sjúkra- og slökkvilið sé að
norðanverðu og því séu vegabætur
brýnar. Heildaráhrifin eru metin
mjög jákvæð.
Í september 1929 var byrjað að
fara á bílum um Fróðárheiði á
ruddri leið. Árið 1949 hófst eiginleg
vegagerð og lauk henni síðari hluta
sumars 1954.
Vegurinn hefur verið endur-
bættur í mörgum áföngum á undan-
förnum áratugum og nú verður
lokakaflinn tekinn fyrir. Hæsti hluti
Fróðárheiðarvegarins er í 361
metra hæð í Rjúpnaborgum.
Vegurinn um Fróðárheiði bættur
Bundið slitlag verður lagt á veginn norðanmegin Borgarverk ehf. átti lægsta tilboð í verkið
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Fróðárheiði Vegurinn að norðanverðu er malarvegur sem getur reynst
hættulegur. Hér má sjá bíl erlendra ferðamanna, sem fór út af í lausamöl.
Ólafsvík
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
FRÓÐÁRHEIÐI
54
54574
Endurbygging hluta vegar yfir Fróðárheiði
Valavatn
Fyrirhuguð endurbygging
á 4,8 km hluta vegar frá
Valavatni niður að vegamótum
Michael Thomas
Corgan, dósent í
stjórnmálafræði við
Boston University,
lést á sjúkrahúsi
Cape Cod í
Massachusetts í
Bandaríkjunum 20.
nóvember 77 ára að
aldri. Andlát hans bar
að í kjölfar aðgerðar
vegna krabbameins.
Ísland kom mikið
við sögu í rann-
sóknum hans og
kennslu. Hann kom
oft til landsins, þekkti
vel til og tengsl hans við Háskóla Ís-
lands voru náin.
Corgan fæddist í Pittsburgh í
Pennsylvaníu 7. júlí árið 1941. Hann
hafði oft á orði að hann hefði fæðst
sama dag og Bandaríkjaher tók við
hlutverki Breta á Íslandi í síðari
heimsstyrjöld og það hefði verið til
marks um hvað koma skyldi.
Hann lauk BS-prófi í skipaverk-
fræði frá Akademíu bandaríska sjó-
hersins í Annapolis 1963 og MPA-
prófi frá Washington-háskóla 1975.
Hann þjónaði í sjóhernum í 26 ár,
frá 1963 til 1988. Tvisvar gegndi
hann herþjónustu í Víetnam og í
upphafi níunda áratugarins var
hann í varnarliðinu á Íslandi. Var
hann þá pólitískur ráðgjafi yfir-
manns varnarliðsins og tengiliður
við íslensk stjórnvöld. Fékk hann þá
dálæti á Íslandi og
ræktaði tengslin við
landið æ síðan.
Að loknum ferli sín-
um í sjóhernum lauk
hann doktorsnámi frá
Boston University
1991 og fjallaði dokt-
orsritgerð hans um
samskipti Íslands og
Bandaríkjanna í kalda
stríðinu. Á heimasíðu
Boston University
kemur fram að hann
hafi verið vinsæll
kennari og inngangs-
námskeið hans um al-
þjóðastjórnmál hafi notið sérstöðu.
12 þúsund nemendur hafi setið tíma
hjá honum og hann hafi fengið fjölda
viðurkenninga fyrir kennslu.
Árið 2001 hlaut Corgan Ful-
bright-styrk í stjórnmálafræði til að
kenna við Háskóla Íslands. Hann
var tíður og vinsæll gestur við
stjórnmálafræðideild og Alþjóða-
málastofnun Háskóla Íslands síð-
ustu tvo áratugi. Hann kenndi nám-
skeið um alþjóðamál, hélt fjölsótta
fyrirlestra um Bandaríkin og leið-
beindi nemendum í lokaritgerðum.
Corgan bjó í North Falmouth á
Cape Cod. Hann lætur eftir sig eig-
inkonu, Sallie K. Riggs, tvær dætur,
tvær stjúpdætur og einn dótturson.
Útför Corgans fer fram frá kirkju
heilagrar Elísabetar Seton í North
Falmouth á mánudag, 26. nóvember.
Andlát
Michael T. Corgan
Málþing fer fram í dag í Silfurbergi
í Hörpu, frá kl. 13-18, um fullveldi
og þjóðaröryggi. Að málþinginu
standa þjóðaröryggisráð og Al-
þjóðamálastofnun Háskóla Íslands,
í samstarfi við Háskólann í Reykja-
vík, Háskólann á Bifröst, Háskól-
ann á Akureyri og Listaháskóla Ís-
lands.
„Í ár er haldið upp á 100 ára af-
mæli fullveldis Íslands og því vel
við hæfi að fjalla um fullveldis-
hugtakið með tilliti til þjóðarör-
yggis; hvernig það hefur þróast frá
1918 og hvaða áhrif hnattræn þró-
un, tæknileg þróun og loftslags-
breytingar kunna að hafa á inntak
fullveldishugtaksins og alþjóðleg
samskipti. Að hvaða marki hefur
þróun í alþjóðamálum áhrif á inn-
tak fullveldishugtaksins og sjálfs-
ákvörðunarrétt ríkja?“ segir í til-
kynningu Varðbergs, sem vekur
athygli á málþinginu.
Dagskránni er skipt í þrjá hluta.
Í fyrsta hluta er fjallað um inntak
fullveldishugtaksins; í öðrum hluta
um þjóðaröryggi; og í þriðja hluta
eru áskoranir framtíðar reifaðar.
Málþingið er öllum opið.
Málþing í dag um fullveldi og þjóðaröryggi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjóðaröryggi Frá æfingu NATO hér á
landi, sem haldnar eru reglulega.