Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Með púðursykur og perur
Sem dæmi um viðfangsefni nefnir Jóhann
illa búinn, erlendan göngumann, sem var orð-
inn rennblautur og að niðurlotum kominn þeg-
ar göngustjórarnir höfðu afskipti af honum og
komu honum í skála. Í ljós kom að bakpoki
hans var níðþungur og í honum voru meðal
annars tvö kíló af púðursykri sem hann ætlaði
að nota í kaffi, nokkrar niðursuðudósir, m.a.
með sykruðum perum, og margir óhagkvæmir
bómullarbolir.
„Skrýtnasta dæmið var erlent par sem lagði
af stað úr Þórsmörk og vakti strax athygli
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Laugavegurinn og skálinn í Hrafntinnuskeri
hafa síðustu sjö sumur verið mitt annað heim-
ili og toga í mann á hverju vori,“ segir Jóhann
Kári Ívarsson, 23 ára skálavörður í Hrafn-
tinnuskeri og BS í rekstrarverkfræði. Hann
segir að á hverju sumri
upplifi hann ævintýri, hvort
sem stórbrotin náttúran
eða göngumenn í öllum
regnbogans litum eigi þar
hlut að máli.
Í sumar er talið að alls
hafi um tólf þúsund manns
gengið Laugaveginn og er
það nokkru færra en síð-
ustu ár. Jóhann segir að
aukningin frá 2014 til 2017
hafi verið mjög hröð, en
síðarnefnda árið hafi um 15 þúsund manns
gengið þessa leið. Sá fjöldi og ekki síður
hversu hröð fjölgunin hafi verið hafi haft
ákveðin vandamál í för með sér hvað varðar
innviði eins og gistingu, vatn og hreinlætisað-
stöðu.
Á sandölum í snjónum
Menn megi ekki gleyma því að Laugavegur-
inn er á hálendi Íslands þar sem allra veðra er
von. Þá sé skálinn í Hrafntinnuskeri í um
1.050 metra hæð en Esjan til dæmis er rúm-
lega 900 metrar að hæð.
„Langflestir vita hvað þeir eru að gera, eru
vel búnir og til fyrirmyndar. En ef við miðum
við að 2% af tólf þúsund manns kunni ekki fót-
um sínum forráð þá eru það yfir 200 manns.
Fyrir fólk sem er vanbúið getur leiðin beinlín-
is verið hættuleg og þá einkum í upphafi sum-
ars þegar oft er snjóþungt á leiðinni og stikur
á kafi.
Spariskór og jafnvel sandalar sjást stund-
um í snjónum og ekki óalgengt að 5-10 manns
mæti dag hvern yfir hávertíðina í gallabuxum.
Algengt er að fólk sé með léleg tjöld, en ekki
bókaða gistingu í skálunum,“ segir Jóhann.
Hann nefnir að um þriðjungur ferðist í skipu-
lögðum hópum með fararstjóra og af þeim
þurfi litlar áhyggjur að hafa.
Göngustjórar í fyrsta skipti
Í sumar voru göngustjórar í fyrsta skipti
við störf á vegum Ferðafélagsins á Laugaveg-
inum og sinntu þær Íris Ösp Aðalsteinsdóttir
og Elisa Damant því verkefni. Þær unnu með
skálavörðum í skálunum í Landmannalaugum,
Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Hvanngili,
Emstrum og Þórsmörk og voru oft með síð-
ustu mönnum heim í skála á kvöldin til að
reyna að tryggja að fólk væri ekki í ógöngum
á leiðinni.
Jóhann segir að góð reynsla sé af starfi
göngustjóra og menn hafi lært ýmislegt um
framkvæmdina, sem væntanlega nýtist næsta
sumar. Ekki hefur verið tekin upp einstefna á
Laugaveginum eins og verið hefur til umræðu,
en yfir 90% göngumanna byrja gönguna í
Landmannalaugum og enda í Þórsmörk, en á
þann hátt verður leiðin ekki eins mikið á fót-
inn.
annarra göngumanna og skálavarða. Þau voru
með kött í bandi og reyndar líka burðarpoka
eins og notaðir eru fyrir ungbörn fyrir dýrið.
Kettinum líkaði gangan ekki vel og eftir
nokkrar samræður við skálaverði féllst fólkið
á að snúa við,“ segir Jóhann.
Um verkefnin á Laugaveginum nefnir
Jóhann að endingu ótrúlega sterkan hóp sjálf-
boðaliða sem hafa lagt Ferðafélaginu mikið lið
frá upphafi. Þessi hópur hafi gert félaginu
kleift að byggja og halda úti skálum á hálend-
inu. Í kringum skálann í Hrafntinnuskeri sé
einstakur fóstrahópur sem hafi tekið ástfóstri
við þennan afskekkta skála á fjöllum.
Ljósmynd/Páll Guðmundsson
Á Fimmvörðuhálsi Ferðafélag Íslands setti síðasta sumar upp nýja vegvísa á Fimmvörðuhálsi í samstarfi við Umhverfisstofnun. Verkefnið er
unnið í framhaldi af endurbættum merkingum á Laugaveginum sem Ferðafélagið réðist í 2017. Sjálfboðaliðar á vegum FÍ og Trail Thorsmork
sáu um að koma vegvísunum upp. Í fyrstu lotu voru fjórir vegvísar settir upp, einn í Strákagili, tveir sitt hvorum megin við Heljarkamb og einn
við minnismerkið í Bröttufönn. Meðan á vinnu sjálfboðaliðanna stóð brast á með slagveðursslydduéli í Bröttufönn og var ekki þurr þráður á fólki
þegar niður var komið. Í annarri lotu næsta dag voru settir niður þrír vegvísar sem fóru á brúnina á Morinsheiði við Heiðarhorn, ofan við Katta-
hryggi og svo í Básum. Vegvísarnir eru veglegir og eiga að þola veður og vind á Fimmvörðuhálsi, en útlit þeirra hannaði Árni Tryggvason.
Með kött í bandi á Laugaveginum
Skálavörður hefur átt sitt annað heimili í Hrafntinnuskeri Sumir kunna ekki fótum sínum forráð
Jóhann Kári
Ívarsson
8.990 kr.
Vesturgata 3B | 101 Reykjavík | www.tapas.isAðeins framreitt fyrir allt borðið
Borðapantanir á tapas.is og í síma 551 2344
Hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk
7 gómsætir jólatapas fylgja síðan í kjölfarið
• Rauðrófu- og piparótargrafinn lax
• Tvíreykt hangikjötstartar með balsamik vinaigrette og laufabrauði
• Risahörpuskel með sellerírótarmauki, grilluðu serrano og passionfroðu
• Andabringa með jarðskokkum, svartrót og Malt- og appelsínsósu
• Bjórgljáð lynghæna með rauðkálsgeli og bjórsósu
• Hvítlauksbakaðir humarhalar með mangósalsa
• Nautalund með sveppa duxelle og bernaisefroðu
Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir
• Súkkulaðiterta með berja-compoté
• Crema Catalana með Dulce de leche
9 FRÁBÆRIR RÉTTIR – GÓMSÆT BLANDA ÍSLENSKRA OG SPÆNSKRA JÓLAHEFÐA