Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
gestum okkar upp á betri aðstöðu
en við höfum verið með veitinga-
sölu í Sunnusal sem er barn síns
tíma,“ segir Ingibjörg og lýsir því
hversu gaman það sé að koma
gangandi að húsinu eftir breyt-
ingar og sjá líf og fjör á öllum hæð-
um.
Ingibjörg segir framkvæmdirnar
hafa dregist svolítið en það hafi
ekki komið á óvart. Það sé eðlilegt
þegar unnið er að endurbótum á
gamalli byggingu. Hún segir að
meðal annars hafi verið skipt um
alla glugga og glerbyggingin, sem
hýsti veitingastaðinn Skrúð rifin.
Ingibjörg vonast til þess og er
nokkuð viss um að viðskiptavinir
sætti sig við og hlakki til að sjá nýj-
ungarnar.
Mímisbar á nýjum stað
„Mímir heitir nýi veitingastaður-
inn okkar sem er þar sem Mímis-
bar var áður. Mímisbar er nú meira
miðsvæðið þannig að hann kallar á
þá sem koma í gegnum Hótel Sögu
að setjast niður og fá sér drykk
enda er kokteilþjónninn okkar,
Finnbogi Jónsson, algjör snillingur.
Við bjóðum upp á 10 mismunandi
tegundir af íslenskum bjór. Bjórinn
er geymdur í kaldri geymslu og
kemur því kaldur í kútunum,“ segir
Ingibjörg sem telur að eldhúsið í
Mími sé líklega eitt fullkomnasta
eldhús landsins. Það er hannað af
Hornsteinum, af Maríu Björk Stef-
ánsdóttur arkitekt. Sigurður
Helgason veitingastjóri og Ólafur
Kristjánsson yfirkokkur komu að
hönnuninni varðandi vinnusvæðið.
Hótel Saga er með sitt eigið bak-
arí sem bakar m.a. brauð í Delí
verslunina sem nú er við aðal-
inngang hótelsins. Ingibjörg segir
að fólk í nágrenni við hótelið sé
þegar farið að koma og grípa með
sér samloku eða annað fljótlegt en
Delí verslunin er í raun opin allan
sólarhringinn.
Gyllt hefur einkennt Hótel Sögu
alveg frá 1962. Ingibjörg segir að
Mímir og Mímisbar haldi gylltum
einkennunum. Veitingastaðurinn sé
bjartur yfirlitum með ljósum borð-
um sem hönnuð voru af hönnuðum
hæðarinnar, Hornsteinum, og
smíðuð af Iðntré. Leirtauið verði
hins vegar dálítið röff á meðan
hnífapör og fleira verða gyllt.
„Það er sérstaklega ánægjulegt
að fá íslensk fyrirtæki til þess að
Góðgæti Óskar Ársælsson gegnir nokkrum hlutverkum á Hótel Sögu. Hér afgreiðir hann í Delí versluninni í and-
dyri Hótel Sögu. Gestir hótelsins og þeir sem eiga erindi í grennd grípa gjarnan með sér samlokur og þess háttar.
Bjart yfir
Hótel Sögu
Gullið fær að halda sér Íslensk
hönnun og smíði Nýr veitingastaður
Stílhreint GÁ húsgögn smíðuðu alla stóla í setustofuna. Blái stóllinn, sem smíðaður er eftir stólum sem hannaðir
voru þegar Hótel Saga var tekin í notkun 1962, er á snúningsfæti og sófar í setustofu eru hannaðir eins og stólarnir.
Morgunblaðið/Hari
Stolt Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Radisson BLU Hótel Sögu í Reykjavík, er ánægð með breytingarnar. Til
hægri á myndinni má sjá innganginn sem áður var eingöngu að Súlnasal en nýtist nú sem þriðji inngangur á hótelið.
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Hjartað á Hótel Sögu er farið að
slá eðlilega aftur og útlit fyrstu
hæðarinnar er framar vonum að
loknum endurbótum. Nú eru allir
gluggar sýnilegir og dagsbirtan
kemst alls staðar inn,“ segir Ingi-
björg Ólafsdóttir, hótelstjóri á
Radisson BLU hótel Sögu í
Reykjavík. Á fimmtudag í síðustu
viku var fyrsta hæð hótelsins opnuð
eftir gagngerar breytingar. Áður
hafði Súlnasalur verið endurbættur
og birtu hleypt inn í hann auk her-
bergja sem endurnýjuð voru.
Ingibjörg segir það hafa verið
gaman að fylgjast með gestum hót-
elsins sem fóru í ferðir á opnunar-
daginn, úr litlu anddyri með bráð-
birgða veggjum og komu heim
síðdegis í stóra, bjarta og opna hæð
með veitingastað og bar.
„Sumir héldu að þeir væru
komnir á annað hótel og hissa á að
sjá nýjan veitingasal nánast upp úr
þurru. Loksins getum við boðið
Bjart Nýtt vel útbúið eldhús er þar sem
Mímisbar var áður. Veitingastjóri og yf-
irkokkur voru með í hönnun eldhússins.
Salurinn er bjartur með ljósum borðum
en leirtauið verður röff og hnífapörin
gyllt eins og við mátti búast á Hótel Sögu.