Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 38
38 Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
MAROKKÓ ALSÍR
TÚNIS
LÍBÝA
EGYPTA
SÝ ND
TYRKLAND
PORTÚGAL
BÚLGARÍA
SERBÍA
ALBANÍA
BOSNÍA
OG HERS.
KRÓATÍA
SLÓVENÍA
FRAKKLAND
RÚMENÍA
SVISS
M i ð j a r ð a r h a f
MAKEDÓNÍA
10.000
5.000
0
25.000
20.000
15.000
0,4
0,2
0
1,0
millj.
0,8
0,6
1.000
0
4.000
3.000
2.000
JAN. FEB. MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEP. OKT. NÓV. DES.
2017 2018
23,1%
14,7%
2008 2010 2011 2012 2013 2014 20172015 20162009
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
KÝPUR
459
ÞÝSKALAND
AUSTURRÍKI
S v a r t a h a f
til
13
.n
óv
.
það sem af er ári 2018
SÚDAN 7,6%
ÍRAK 7,4%
PAKISTAN 7,0%
NÍGERÍA 6,0%
ALSÍR 5,3%
MALÍ 4,2%
GÍNEA 3,9%
Helstu leiðir flóttamanna sem koma sjóleiðina til Evrópu
101.548
komu sjóleiðina
það sem af er 2018
Fjöldi flóttamanna eftir mánuðum 2017 og 2018
Þjóðerni 84% þeirra flóttamanna sem
komu sjóleiðina til Ítalíu yfir Miðjarðarhaf
Látnir flóttamenn og saknað á
Miðjarðarhafi 2010-2017
Flóttamenn sem komu sjóleiðina
yfir Miðjarðarhaf 2008-2017
TÚNIS
ERÍTREA
Heimild: UNHCR
Skipting flóttamanna 2018 (til 13. nóvember)
21%
Börn
14%
Konur
65%
Karlar
SPÁNN
55.337
ÍTALÍA
22.435
GRIKKLAND
28.495
MALTA
1.182
5,0%FÍLABEINS-STRÖNDIN
SVIÐSLJÓS
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Á þriðja þúsund flóttamenn hafa
drukknað á flóttanum yfir Miðjarð-
arhafið til Evrópu það sem af er ári
en alls hafa tæplega 102 þúsund
flóttamenn komist til lands. Af þeim
hafa 22.500 komið til Ítalíu.
Flestir þeirra sem koma að landi á
Sikiley koma frá Afríku og er meiri-
hluti þeirra ungir karlar. Þeir sem
blaðamaður ræddi við og voru orðnir
18 ára segja ástæðuna fyrir flótt-
anum vera erfiðar aðstæður í heima-
landinu, átök og að vera þvingaðir til
að gegna herþjónustu, jafnvel ára-
tugum saman.
„Þegar herinn sækir þig veistu
ekki hvort þú átt möguleika á að
snúa aftur heim eftir ár eða áratugi.
Eða jafnvel aldrei, “ segir ungur
maður frá Erítreu sem blaðamaður
ræddi við í hafnarborginni Catania.
Hann var þrjú ár á flótta, þar af
helminginn af tímanum í Líbýu og
þar varð hann viðskila við eiginkonu
sína þar sem smyglararnir héldu
þeim föngnum á sitt hvorum staðn-
um. Hann hefur ekki hitt hana í átta
mánuði en veit að hún er komin til
Frakklands. Hann vonast til þess að
þau nái saman en veit ekki hvenær
eða hvort það verður.
Tæplega tvítugur flóttamaður frá
Senegal hefur litla von um að fá
dvalarleyfi sitt endurnýjað á Ítalíu
vegna breyttra laga þar í landi.
Hann var tvö ár að komast til
draumalandsins og var einn þegar
það varð að veruleika því besti vinur
hans var skotinn af glæpamönnum á
leiðinni þegar þeir voru ásamt sjö
öðrum í flutningabíl smyglara á leið
frá Sabha til Trípolí. Mannræningjar
stöðvuðu flutningabílinn og röðuðu
níumenningunum upp í röð og skutu
þrjá þeirra af handahófi. Þeir sem
eftir lifðu gátu síðar borgað sig lausa
úr haldi.
Í kirkjugarðinum í Catania hvíla
260 óþekktir flóttamenn. Oft gengur
illa að bera kennsl á þá sem farast á
flóttanum, ekki síst vegna þess
hversu margir eru skilríkjalausir og
einir á ferð. Rauði krossinn í Catania
er farinn að safna lífsýnum þeirra
með aðstoð lögreglunnar en þetta er
eini staðurinn á Ítalíu sem þetta er
gert.
Vonir standa til þess að einhvern
tíma verði hægt að bera kennsl á allt
þetta fólk sem ekki tókst að komast
á áfangastað á leið sinni til lífs.
Marco Rotunno, sem annast fjöl-
miðlatengsl fyrir Flóttamanna-
aðstoð Sameinuðu þjóðanna
(UNHCR) á Sikiley, segir að þetta
sé gríðarlega mikilvægt og þarft
verkefni sem vonandi verði komið á
laggirnar víðar á Ítalíu. Ekki síst til
þess að fólk fái upplýsingar um af-
drif ástvina sem hverfa á flóttanum.
Stærstu búðirnar á Ítalíu
Starfsmenn Rauða krossins í Cat-
ania, Silvia Dizzia og Riccardo Reit-
ano, segja erfitt að segja nákvæm-
lega til um hversu margir flótta-
menn hafi komið til Sikileyjar
undanfarin ár þar sem margir hverfi
inn í skuggahagkerfið fljótlega eftir
komuna.
Flóttafólki hafi fækkað mjög mik-
ið í ár og þar af leiðandi hafi Rauði
krossinn aðstoðað mun færri en oft
áður. Mineo-flóttamannabúðirnar á
Sikiley eru sennilega stærstu flótta-
mannabúðir Ítalíu. Þær eru reknar
af yfirvöldum og hafa ítrekað komist
í fréttir fjölmiðla vegna ofbeldis- og
spillingarmála sem tengjast skipu-
lagðri glæpastarfsemi.
Alls eru þar um tvö þúsund manns
en voru um tíma fjögur þúsund tals-
ins. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé
að hýsa svo marga í búðunum sem
Gröf
óþekkta
flótta-
mannsins
Á sama tíma og flóttafólki sem kemur til
Evrópu fækkar er verið að gera miklar
breytingar á ítölsku útlendingalöggjöfinni
SJÁ SÍÐU 40
Flóttamenn á Sikiley
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Bragðgott, hol
lt og
næringarríkt fó
ður
fyrir HUNDA og
KETTI
– fyrir dýrin þín