Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 40
40 Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Flóttamenn á Sikiley
þýðir að hreinlæti er ábótavant og
eins öryggi þar sem fólk af ólíkum
uppruna býr við bágbornar að-
stæður.
Innanríkisráðherra Ítalíu, Matteo
Salvini, ætlar að fækka fólki í búð-
unum og draga úr rekstrarkostnaði.
Áður kostaði hver hælisleitendi sem
þar dvelur 29 evrur á dag en sá
kostnaður á að lækka í 15 evrur.
Sparnaður upp á 10 milljónir evra á
ári.
Marco Rotunno segir að búið sé að
gera töluverðar breytingar á Mineo-
búðunum vegna tengsla glæpa-
samtaka við reksturinn.
Riccardo og Silvia segja Rauða
krossinn reyna eftir fremsta megni
að styðja fólkið sem þar dvelur.
Margir bíði þar mánuðum saman,
eða enn lengur, eftir því að fá svar
við beiðni um hæli á Ítalíu.
„Við reynum líka að hjálpa fólki
sem er á flótta við að fá húsaskjól
annars staðar og útvegum því helstu
nauðsynjar. Þetta hlutverk okkar
hjá Rauða krossinum breytist ekk-
ert sama hversu margir þeir eru sem
þurfa á stuðningi að halda. Ef fjöl-
skyldur verða viðskila á flóttanum
reynum við að aðstoða þær við að
sameinast, hvort sem ættingjar hafi
hafnað í hver í sínu landinu eða á
ólíkum stöðum á Ítalíu. Þetta getur
verið mjög erfitt, ekki síst ef sumir
hafa komist til Evrópu en aðrir orðið
eftir í Afríku eða verið vísað frá
strax við komuna til Evrópu. Við
gerum ekki greinarmun á fólki hvað-
an það kemur. Ef fólk er í neyð þá
aðstoðum við það,“ segir Riccardo.
Sækja í fullorðna
Riccardo segir að oft sé erfitt að
koma ungmennum á aldrinum 16-18
ára í skilning um að þau séu börn
þrátt fyrir að hafa kannski þurft að
taka ábyrgð á eigin lífi um árabil.
Þau sæki því oft í að búa með full-
orðnum í stað barna.
Þegar þau koma hingað til Sikil-
eyjar er ætlast til þess að þau gangi í
skóla og það getur reynst þrautin
þyngri fyrir sum þeirra. Einhver
þeirra eiga ættingja annars staðar í
Evrópu og við reynum að hjálpa
þeim við að hafa uppi á þeim. Oft
vilja þau fara og freista gæfunnar
annars staðar en hér þegar þau nálg-
ast 18 ára afmælið. Að fara þangað
sem tækifærin eru fleiri, segja þau
Silvia og Riccardo.
Að þeirra sögn getur verið mjög
erfitt að fullyrða að óathuguðu máli
hvort einhver falli undir skilgrein-
ingu Sameinuðu þjóðanna á flótta-
fólki, það er að sæta ofsóknum í
heimalandi sínu vegna kynþáttar,
trúarbragða, þjóðernis, aðildar að
tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna
stjórnmálaskoðana. Eins á fólk rétt
á vernd sem flóttamaður ef viðkom-
andi á að hættu dauðarefsingu, pynt-
ingar eða ómannúðlegar refsingar í
heimalandinu og því mikilvægt að
skoða mál hvers og eins. Þau nefna
Nígeríu sem dæmi en þar eru að-
stæður fólks afar ólíkar eftir því
hvaðan það kemur og eins félags-
legar aðstæður, segja þau.
Ekkert einfalt svar í boði
Margir halda því fram að allt fólk
sem er á flótta frá Nígeríu sé efna-
hagslegir flóttamenn en það er ein-
faldlega ekki rétt og margir þeirra fá
vernd á Ítalíu, segja starfsmenn
Rauða krossins og UNHCR sem
blaðamaður ræddi við. Á þetta við
fólk af báðum kynjum sem er að
forða sér úr háska. Mál hvers og eins
er skoðað og metið en gallinn sé sá
að ferlið taki langan tíma eða allt að
tvö ár ef niðurstöðunni er áfrýjað.
Spurð út í hvað gerist þegar fólki
er synjað um hæli segir Riccardo að
þá eigi fólk að koma sér úr landi á
eigin ábyrgð. „Samkvæmt lagabók-
stafnum á fólk að yfirgefa landið inn-
an sjö daga frá því áfrýjunarnefnd
hefur tekið ákvörðun um að viðkom-
andi eigi ekki rétt á hæli. En það er
aldrei þannig. Í fyrsta lagi á fólkið
oft ekki vegabréf og getur því ekki
keypt flugmiða hjá flugfélögum ef
svo ólíklega vill til að það eigi pen-
inga fyrir fargjaldinu. Jafnvel ef við-
komandi fer í sendiráð uppruna-
landsins og sækir um vegabréf þá er
það ekki afgreitt með svo skömmum
fyrirvara. Yfirleitt er því þannig far-
ið að fólk þorir ekki að sækja um
vegabréf enda oft að flýja aðstæður í
heimalandinu sem útiloka að við-
komandi snúi aftur. Margir sjá ekki
aðra lausn en að láta sig hverfa,“
segir Riccardo.
Þetta valdi starfsfólki Rauða
krossins miklum áhyggjum meðal
annars vegna þess að fólk veit oft
ekki af réttindum sínum, svo sem að
fá læknisaðstoð. Það valdi því að fólk
veslist frekar upp og deyi en að leita
á náðir heilbrigðisþjónustunnar.
„Fólk veit ekki hver staða þess er og
forðar sér. Annaðhvort til annarra
landa eða hverfur í skuggann þar
sem enginn veit hvort viðkomandi er
á lífi eður ei. Margir eru illa farnir á
líkama og sál og ekki batnar líðan
þeirra þegar þau þora ekki einu
sinni að leita til læknis. Rauði kross-
inn hefur mótmælt þessari meðferð
ítalskra stjórnvalda líkt og fleiri
hjálparsamtök,“ segja þau Silvia og
Riccardo.
Á Íslandi er heimilt að veita um-
sækjanda sem ekki telst flóttamaður
vernd, dvalarleyfi á grundvelli
mannúðarsjónarmiða, standi til þess
ríkar ástæður á borð við alvarleg
veikindi eða erfiðar aðstæður í
heimalandi. Einnig er heimilt að
veita dvalarleyfi á grundvelli mann-
úðarsjónarmiða ef umsækjandi hef-
ur haft bráðabirgðadvalarleyfi hér á
landi í tvö ár eða dvalið hér á landi í
tvö ár vegna meðferðar stjórnvalda
á hælisumsókn hans.
Á Ítalíu er verið að breyta útlend-
ingalögunum á þann veg að þeir sem
hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli
mannúðarsjónarmiða fá leyfið ekki
endurnýjað og eins er ekki lengur
hægt að sækja um slíkt leyfi.
Fleiri enda á götunni
Hjálparstarfsmenn segja að þetta
eigi eftir að fjölga fólki sem býr á
götunni eða er selt mansali og það
eina sem hægt er að gera er að að-
stoða fólk sem til þeirra leitar. Í
mörgum tilvikum er því þannig farið
að fólk þorir ekki að leita til lögreglu
þrátt fyrir að vera fórnarlömb of-
beldis því reynsla margra af lög-
reglu er slæm frá heimalandinu.
Þegar blaðamaður var á Sikiley
bjargaði ítalska strandgæslan hópi
flóttafólks frá Kúrdistan og kom
með það að landi. Yfirvöld á Sikiley
hafa í nokkur skipti gengið gegn
ákvörðun stjórnvalda og heimilað
flóttafólki að koma í land. Í þessu til-
viki var fólkið að drukkna skammt
frá ströndinni enda afar slæmt í sjó-
inn. Heimafólk sem blaðamaður
ræddi við segir að væntanlega hefði
fólkið ekki annars fengið að koma til
hafnar og þurft að snúa til baka til
Líbýu eða jafnveld drukknað.
Dvelja í 50-55 daga hjá MSF
Thomas Curbillon, stýrir aðgerð-
um Lækna án landamæra, Médecins
Sans Frontières, (MSF) í Catania,
og þegar blaðamaður heimsótti mið-
stöðina voru fimmtán sjúklingar þar,
14 karlar og ein kona. Rými er fyrir
allt að 24 sjúklinga og yfirleitt dvelja
þar 20-22 flóttamenn. En eftir að
ítölsk stjórnvöld meinuðu björg-
unarskipum að leggjast að höfn í lok
maí hefur þeim fækkað.
Allir sem þar dvelja koma beint af
sjúkrahúsum og eru í 50-55 daga hjá
MSF. Þar fá þeir læknishjálp og sál-
gæslu auk félags- og lögfræðiað-
stoðar, segir Thomas en að hans
sögn fara flestir skjólstæðingar
þeirra frá Ítalíu eða sækja um hæli
þar í landi.
„Fólk frá Erítreu vill yfirleitt
halda áfram til landa eins og Frakk-
lands og Svíþjóðar. Mjög mismun-
andi er hvort okkar skjólstæðingar
eigi rétt á hæli hér á Ítalíu og ekki
hafa líkurnar aukist með þeim breyt-
ingum sem verið er að gera. Við hjá
MSF tökum ekki afstöðu í pólitísk-
um, efnahagslegum eða trúarlegum
deilum í þeim löndum sem við störf-
um og það sama á við um Ítalíu.
Okkar hlutverk er að veita fólki
neyðaraðstoð sem þarf á henni að
halda, sama hver viðkomandi er. Ég
óttast hins vegar að þeim sem þurfa
að búa í neyðarskýlum án þjónustu
eigi eftir að fjölga sem þýðir að lík-
amlegt og andlegt ástand fólks
versnar,“ segir Thomas og vísar þar
til þess að hætt verði að veita fólki
hæli af mannúðarástæðum á Ítalíu.
Vildi bara deyja
Eins og áður sagði veitir starfs-
fólk MSF sálræna aðstoð skjólstæð-
ingum sem þurfa á henni að halda.
Einn þeirra kom til Sikileyjar fyrr á
árinu en hann hafði verið á flótta í á
annað ár. Hann var 17 ára þegar
hann flúði frá Sómalíu en átján ára
þegar hann komst á leiðarenda.
Hann segist hafa flúið átök í Sóm-
alíu en landið telst eitt það hættuleg-
asta í heimi.
Spurður út í hvert hann stefni seg-
ist hann ekki vita það. Að ná heilsu
sé markmið hans í dag eftir að hafa
verið bjargað af ítölsku strandgæsl-
unni á Miðjarðarhafi nær dauða en
lífi. Hann var fimm daga á leiðinni
frá Líbýu ásamt 500 öðrum flótta-
mönnum. Þau voru með lítið sem
ekkert að borða og vatnið kláraðist
fljótlega eftir að siglingin hófst og
ekkert annað að gera en drekka sjó.
Þegar þeim var komið til bjargar
var hann búinn að missa meðvitund
og man ekkert frá síðustu stund-
unum á flóttanum annað en að hans
æðsta ósk áður en hann missti með-
vitund var að binda enda á þetta allt
saman – að deyja.
Annar flóttamaður sem blaðamað-
ur ræddi við frá Erítreu vissi fyrst
ekki hvað amaði að honum því þegar
læknir skoðaði hann við komuna til
Sikileyjar og hann var fluttur þaðan
á sjúkrahús var enginn til þess að
túlka. Það var ekki fyrr en Læknar
án landamæra komu að stuðningi við
hann að úr því var bætt því meðal
starfsmanna er eldri maður sem
kom sem flóttamaður til Ítalíu á átt-
unda áratug síðustu aldar frá Erí-
treu.
Marco Rotunno segir UNHCR
hafa miklar áhyggjur af flóttafólki
sem fékk mannúðarvernd til tveggja
ára árið 2017 því sú vernd verður
ekki endurnýjuð þegar hún rennur
út á næsta ári.
„Við óttumst um allan þennan
fjölda sem verður ólöglegur í landinu
og er réttlaus með öllu. Við vitum
ekki nákvæmlega hvað við erum að
tala um stóran hóp en vitum að hann
er stór. Á sama tíma er verið að
hætta rekstri SPRAR, en það eru
miðstöðvar sem eru reknar af sveit-
arfélögunum með stuðningi ríkisins.
Þetta eru miklu minni einingar held-
ur en stóru flóttamannabúðirnar sem
flestir fara fyrst í. Þær eru einfald-
lega neyðarskýli sem enginn á að búa
í til lengri tíma. En því miður hefur
fólk neyðst til þess,“ segir Marco.
Innan við 30% sveitarfélaga á Ítal-
íu hafa tekið þátt í rekstri SPRAR og
margar bæjarstjórnir ekki þorað að
taka þátt af ótta við almenningsálitið
því það eru svo margar rang-
hugmyndir í gangi varðandi komu
flóttafólks, segir Marco. Margir sjái
fyrir sér stríðan straum á meðan
raunin sé önnur líkt og tölurnar
sýna. En á meðan þessar rang-
hugmyndir séu við lýði líta margir á
flóttafólk sem ógn.
Flóttafólk, sem hefur komist við
illan leik frá Líbýu, á mjög erfitt með
að skilja þetta enda flestir með mikl-
ar væntingar um lífið í Evrópu eftir
að hafa þolað harðræði á flóttanum
úr ömurlegum aðstæðum. Á leið til
lífs sem oft reyndist öðruvísi en talið
var áður en haldið var af stað í
óvissuferð á milli heimsálfa.
Thomas Curbillon
Allir sem dvelja í miðstöð
Lækna án landamæra í
Catania koma beint af
sjúkrahúsum og dvelja í 50-
55 daga hjá MSF. Þar fá
þeir læknishjálp og sálgæslu
auk félags- og lögfræðiað-
stoðar.
Marco Rotunno
„Við óttumst um allan
þennan fjölda sem verður
ólöglegur í landinu og er
réttlaus með öllu. Við
vitum ekki nákvæmlega
hvað við erum að tala um
stóran hóp en vitum að
hann er stór.“
Silvia Dizzia og Riccardo Reitano
Erfitt getur reynst að segja nákvæmlega til um hversu margir flóttamenn hafa kom-
ið til Sikileyjar undanfarin ár þar sem margir þeirra hverfa einfaldlega í skuggann.
Verða aldrei hluti af samfélaginu eins og flestir þekkja það heldur tilheyra skugga-
hagkerfi þar sem fólk er réttlaust og þorir jafnvel ekki að leita til læknis.