Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 40
40 Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Flóttamenn á Sikiley þýðir að hreinlæti er ábótavant og eins öryggi þar sem fólk af ólíkum uppruna býr við bágbornar að- stæður. Innanríkisráðherra Ítalíu, Matteo Salvini, ætlar að fækka fólki í búð- unum og draga úr rekstrarkostnaði. Áður kostaði hver hælisleitendi sem þar dvelur 29 evrur á dag en sá kostnaður á að lækka í 15 evrur. Sparnaður upp á 10 milljónir evra á ári. Marco Rotunno segir að búið sé að gera töluverðar breytingar á Mineo- búðunum vegna tengsla glæpa- samtaka við reksturinn. Riccardo og Silvia segja Rauða krossinn reyna eftir fremsta megni að styðja fólkið sem þar dvelur. Margir bíði þar mánuðum saman, eða enn lengur, eftir því að fá svar við beiðni um hæli á Ítalíu. „Við reynum líka að hjálpa fólki sem er á flótta við að fá húsaskjól annars staðar og útvegum því helstu nauðsynjar. Þetta hlutverk okkar hjá Rauða krossinum breytist ekk- ert sama hversu margir þeir eru sem þurfa á stuðningi að halda. Ef fjöl- skyldur verða viðskila á flóttanum reynum við að aðstoða þær við að sameinast, hvort sem ættingjar hafi hafnað í hver í sínu landinu eða á ólíkum stöðum á Ítalíu. Þetta getur verið mjög erfitt, ekki síst ef sumir hafa komist til Evrópu en aðrir orðið eftir í Afríku eða verið vísað frá strax við komuna til Evrópu. Við gerum ekki greinarmun á fólki hvað- an það kemur. Ef fólk er í neyð þá aðstoðum við það,“ segir Riccardo. Sækja í fullorðna Riccardo segir að oft sé erfitt að koma ungmennum á aldrinum 16-18 ára í skilning um að þau séu börn þrátt fyrir að hafa kannski þurft að taka ábyrgð á eigin lífi um árabil. Þau sæki því oft í að búa með full- orðnum í stað barna. Þegar þau koma hingað til Sikil- eyjar er ætlast til þess að þau gangi í skóla og það getur reynst þrautin þyngri fyrir sum þeirra. Einhver þeirra eiga ættingja annars staðar í Evrópu og við reynum að hjálpa þeim við að hafa uppi á þeim. Oft vilja þau fara og freista gæfunnar annars staðar en hér þegar þau nálg- ast 18 ára afmælið. Að fara þangað sem tækifærin eru fleiri, segja þau Silvia og Riccardo. Að þeirra sögn getur verið mjög erfitt að fullyrða að óathuguðu máli hvort einhver falli undir skilgrein- ingu Sameinuðu þjóðanna á flótta- fólki, það er að sæta ofsóknum í heimalandi sínu vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana. Eins á fólk rétt á vernd sem flóttamaður ef viðkom- andi á að hættu dauðarefsingu, pynt- ingar eða ómannúðlegar refsingar í heimalandinu og því mikilvægt að skoða mál hvers og eins. Þau nefna Nígeríu sem dæmi en þar eru að- stæður fólks afar ólíkar eftir því hvaðan það kemur og eins félags- legar aðstæður, segja þau. Ekkert einfalt svar í boði Margir halda því fram að allt fólk sem er á flótta frá Nígeríu sé efna- hagslegir flóttamenn en það er ein- faldlega ekki rétt og margir þeirra fá vernd á Ítalíu, segja starfsmenn Rauða krossins og UNHCR sem blaðamaður ræddi við. Á þetta við fólk af báðum kynjum sem er að forða sér úr háska. Mál hvers og eins er skoðað og metið en gallinn sé sá að ferlið taki langan tíma eða allt að tvö ár ef niðurstöðunni er áfrýjað. Spurð út í hvað gerist þegar fólki er synjað um hæli segir Riccardo að þá eigi fólk að koma sér úr landi á eigin ábyrgð. „Samkvæmt lagabók- stafnum á fólk að yfirgefa landið inn- an sjö daga frá því áfrýjunarnefnd hefur tekið ákvörðun um að viðkom- andi eigi ekki rétt á hæli. En það er aldrei þannig. Í fyrsta lagi á fólkið oft ekki vegabréf og getur því ekki keypt flugmiða hjá flugfélögum ef svo ólíklega vill til að það eigi pen- inga fyrir fargjaldinu. Jafnvel ef við- komandi fer í sendiráð uppruna- landsins og sækir um vegabréf þá er það ekki afgreitt með svo skömmum fyrirvara. Yfirleitt er því þannig far- ið að fólk þorir ekki að sækja um vegabréf enda oft að flýja aðstæður í heimalandinu sem útiloka að við- komandi snúi aftur. Margir sjá ekki aðra lausn en að láta sig hverfa,“ segir Riccardo. Þetta valdi starfsfólki Rauða krossins miklum áhyggjum meðal annars vegna þess að fólk veit oft ekki af réttindum sínum, svo sem að fá læknisaðstoð. Það valdi því að fólk veslist frekar upp og deyi en að leita á náðir heilbrigðisþjónustunnar. „Fólk veit ekki hver staða þess er og forðar sér. Annaðhvort til annarra landa eða hverfur í skuggann þar sem enginn veit hvort viðkomandi er á lífi eður ei. Margir eru illa farnir á líkama og sál og ekki batnar líðan þeirra þegar þau þora ekki einu sinni að leita til læknis. Rauði kross- inn hefur mótmælt þessari meðferð ítalskra stjórnvalda líkt og fleiri hjálparsamtök,“ segja þau Silvia og Riccardo. Á Íslandi er heimilt að veita um- sækjanda sem ekki telst flóttamaður vernd, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, standi til þess ríkar ástæður á borð við alvarleg veikindi eða erfiðar aðstæður í heimalandi. Einnig er heimilt að veita dvalarleyfi á grundvelli mann- úðarsjónarmiða ef umsækjandi hef- ur haft bráðabirgðadvalarleyfi hér á landi í tvö ár eða dvalið hér á landi í tvö ár vegna meðferðar stjórnvalda á hælisumsókn hans. Á Ítalíu er verið að breyta útlend- ingalögunum á þann veg að þeir sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða fá leyfið ekki endurnýjað og eins er ekki lengur hægt að sækja um slíkt leyfi. Fleiri enda á götunni Hjálparstarfsmenn segja að þetta eigi eftir að fjölga fólki sem býr á götunni eða er selt mansali og það eina sem hægt er að gera er að að- stoða fólk sem til þeirra leitar. Í mörgum tilvikum er því þannig farið að fólk þorir ekki að leita til lögreglu þrátt fyrir að vera fórnarlömb of- beldis því reynsla margra af lög- reglu er slæm frá heimalandinu. Þegar blaðamaður var á Sikiley bjargaði ítalska strandgæslan hópi flóttafólks frá Kúrdistan og kom með það að landi. Yfirvöld á Sikiley hafa í nokkur skipti gengið gegn ákvörðun stjórnvalda og heimilað flóttafólki að koma í land. Í þessu til- viki var fólkið að drukkna skammt frá ströndinni enda afar slæmt í sjó- inn. Heimafólk sem blaðamaður ræddi við segir að væntanlega hefði fólkið ekki annars fengið að koma til hafnar og þurft að snúa til baka til Líbýu eða jafnveld drukknað. Dvelja í 50-55 daga hjá MSF Thomas Curbillon, stýrir aðgerð- um Lækna án landamæra, Médecins Sans Frontières, (MSF) í Catania, og þegar blaðamaður heimsótti mið- stöðina voru fimmtán sjúklingar þar, 14 karlar og ein kona. Rými er fyrir allt að 24 sjúklinga og yfirleitt dvelja þar 20-22 flóttamenn. En eftir að ítölsk stjórnvöld meinuðu björg- unarskipum að leggjast að höfn í lok maí hefur þeim fækkað. Allir sem þar dvelja koma beint af sjúkrahúsum og eru í 50-55 daga hjá MSF. Þar fá þeir læknishjálp og sál- gæslu auk félags- og lögfræðiað- stoðar, segir Thomas en að hans sögn fara flestir skjólstæðingar þeirra frá Ítalíu eða sækja um hæli þar í landi. „Fólk frá Erítreu vill yfirleitt halda áfram til landa eins og Frakk- lands og Svíþjóðar. Mjög mismun- andi er hvort okkar skjólstæðingar eigi rétt á hæli hér á Ítalíu og ekki hafa líkurnar aukist með þeim breyt- ingum sem verið er að gera. Við hjá MSF tökum ekki afstöðu í pólitísk- um, efnahagslegum eða trúarlegum deilum í þeim löndum sem við störf- um og það sama á við um Ítalíu. Okkar hlutverk er að veita fólki neyðaraðstoð sem þarf á henni að halda, sama hver viðkomandi er. Ég óttast hins vegar að þeim sem þurfa að búa í neyðarskýlum án þjónustu eigi eftir að fjölga sem þýðir að lík- amlegt og andlegt ástand fólks versnar,“ segir Thomas og vísar þar til þess að hætt verði að veita fólki hæli af mannúðarástæðum á Ítalíu. Vildi bara deyja Eins og áður sagði veitir starfs- fólk MSF sálræna aðstoð skjólstæð- ingum sem þurfa á henni að halda. Einn þeirra kom til Sikileyjar fyrr á árinu en hann hafði verið á flótta í á annað ár. Hann var 17 ára þegar hann flúði frá Sómalíu en átján ára þegar hann komst á leiðarenda. Hann segist hafa flúið átök í Sóm- alíu en landið telst eitt það hættuleg- asta í heimi. Spurður út í hvert hann stefni seg- ist hann ekki vita það. Að ná heilsu sé markmið hans í dag eftir að hafa verið bjargað af ítölsku strandgæsl- unni á Miðjarðarhafi nær dauða en lífi. Hann var fimm daga á leiðinni frá Líbýu ásamt 500 öðrum flótta- mönnum. Þau voru með lítið sem ekkert að borða og vatnið kláraðist fljótlega eftir að siglingin hófst og ekkert annað að gera en drekka sjó. Þegar þeim var komið til bjargar var hann búinn að missa meðvitund og man ekkert frá síðustu stund- unum á flóttanum annað en að hans æðsta ósk áður en hann missti með- vitund var að binda enda á þetta allt saman – að deyja. Annar flóttamaður sem blaðamað- ur ræddi við frá Erítreu vissi fyrst ekki hvað amaði að honum því þegar læknir skoðaði hann við komuna til Sikileyjar og hann var fluttur þaðan á sjúkrahús var enginn til þess að túlka. Það var ekki fyrr en Læknar án landamæra komu að stuðningi við hann að úr því var bætt því meðal starfsmanna er eldri maður sem kom sem flóttamaður til Ítalíu á átt- unda áratug síðustu aldar frá Erí- treu. Marco Rotunno segir UNHCR hafa miklar áhyggjur af flóttafólki sem fékk mannúðarvernd til tveggja ára árið 2017 því sú vernd verður ekki endurnýjuð þegar hún rennur út á næsta ári. „Við óttumst um allan þennan fjölda sem verður ólöglegur í landinu og er réttlaus með öllu. Við vitum ekki nákvæmlega hvað við erum að tala um stóran hóp en vitum að hann er stór. Á sama tíma er verið að hætta rekstri SPRAR, en það eru miðstöðvar sem eru reknar af sveit- arfélögunum með stuðningi ríkisins. Þetta eru miklu minni einingar held- ur en stóru flóttamannabúðirnar sem flestir fara fyrst í. Þær eru einfald- lega neyðarskýli sem enginn á að búa í til lengri tíma. En því miður hefur fólk neyðst til þess,“ segir Marco. Innan við 30% sveitarfélaga á Ítal- íu hafa tekið þátt í rekstri SPRAR og margar bæjarstjórnir ekki þorað að taka þátt af ótta við almenningsálitið því það eru svo margar rang- hugmyndir í gangi varðandi komu flóttafólks, segir Marco. Margir sjái fyrir sér stríðan straum á meðan raunin sé önnur líkt og tölurnar sýna. En á meðan þessar rang- hugmyndir séu við lýði líta margir á flóttafólk sem ógn. Flóttafólk, sem hefur komist við illan leik frá Líbýu, á mjög erfitt með að skilja þetta enda flestir með mikl- ar væntingar um lífið í Evrópu eftir að hafa þolað harðræði á flóttanum úr ömurlegum aðstæðum. Á leið til lífs sem oft reyndist öðruvísi en talið var áður en haldið var af stað í óvissuferð á milli heimsálfa. Thomas Curbillon Allir sem dvelja í miðstöð Lækna án landamæra í Catania koma beint af sjúkrahúsum og dvelja í 50- 55 daga hjá MSF. Þar fá þeir læknishjálp og sálgæslu auk félags- og lögfræðiað- stoðar. Marco Rotunno „Við óttumst um allan þennan fjölda sem verður ólöglegur í landinu og er réttlaus með öllu. Við vitum ekki nákvæmlega hvað við erum að tala um stóran hóp en vitum að hann er stór.“ Silvia Dizzia og Riccardo Reitano Erfitt getur reynst að segja nákvæmlega til um hversu margir flóttamenn hafa kom- ið til Sikileyjar undanfarin ár þar sem margir þeirra hverfa einfaldlega í skuggann. Verða aldrei hluti af samfélaginu eins og flestir þekkja það heldur tilheyra skugga- hagkerfi þar sem fólk er réttlaust og þorir jafnvel ekki að leita til læknis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.