Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 42
42 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
23. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.65 124.25 123.95
Sterlingspund 158.02 158.78 158.4
Kanadadalur 92.94 93.48 93.21
Dönsk króna 18.841 18.951 18.896
Norsk króna 14.446 14.532 14.489
Sænsk króna 13.61 13.69 13.65
Svissn. franki 124.2 124.9 124.55
Japanskt jen 1.0921 1.0985 1.0953
SDR 171.04 172.06 171.55
Evra 140.61 141.39 141.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.9279
Hrávöruverð
Gull 1224.0 ($/únsa)
Ál 1926.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.6 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Stjórn japanska
bílaframleiðandans
Nissan rak í gær
Carlos Ghosn úr
starfi stjórnarfor-
manns fyrirtækis-
ins í kjölfar ásak-
ana Nissan á
hendur honum um
fjársvik. Á hann
meðal annars að
hafa vantalið fram
tekjur sínar og nýtt eignir fyrirtækisins í
eigin þágu. Auk Ghosn var Bandaríkja-
manninum Greg Kelly einnig vikið úr
starfi en hann starfaði náið með Ghosn
og sitja þeir nú báðir í gæsluvarðhaldi.
Samkvæmt heimildum japanska ríkis-
sjónvarpsins á Nissan m.a. að hafa eytt
milljónum bandaríkjadala í lúxusheimili
í Brasilíu, Líbanon, Frakklandi og Hol-
landi, án sýnilegs rekstrarlegs tilgangs.
Nissan, Mitsubishi og Renault, hafa ver-
ið í þríhliða samstarfi undir forystu
Ghosn undanfarin ár.
Stjórnarformaður Niss-
an axlar sín skinn
Carlos
Ghosn.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bandaríski skipulagsfræðingurinn
og prófessor við Oregon háskóla,
Nico Larco, sem erindi hélt á 80
ára afmæli Skipulagsstofnunar á
dögunum, segir
að 10-15 ár gætu
mögulega verið í
að sjálfakandi
bílar verði komn-
ir á göturnar í
einhverjum mæli
hér á landi.
„Borgarskipulag
er unnið 30 ár
fram í tímann, og
í raun hefðu
menn þurft að byrja að undirbúa
framtíð með sjálfakandi bílum fyrir
15 árum síðan, til að hún gæti raun-
gerst eftir 15 ár héðan í frá,“ sagði
Nico í samtali við Morgunblaðið.
Þróun á fleygiferð
Hann segir þróunina hvað varðar
sjálfakandi bíla vera á fleygiferð, og
ganga mun hraðar en hann sjálfur
hafði gert sér í hugarlund. „Það
ótrúlega er að fyrstu sjálfakandi
farartækin fóru á götuna í Banda-
ríkjunum fyrir aðeins tveimur árum
síðan, og nú erum við að fara að sjá
fyrstu 4. stigs sjálfakandi bílana (
stigin eru fimm, en bílar á 4. stigi
hafa engan ökumann, og eru á ferð-
inni á afmörkuðu svæði, t.d. í völd-
um borgum eða hverfum) á göt-
unum fyrir næstu áramót.“
Larco segir að þar sé á ferð verk-
efni sem Waymo, sem er í eigu
Alphabet, móðurfélags Google
tæknirisans, sé að setja af stað í
Arizona fylki, en þar munu brátt 82
þúsund bílar verða í boði fyrir al-
menning.
Larco segir aðspurður að vissu-
lega séu veðuraðstæður í Arizona
með besta móti fyrir svona þjón-
ustu, en bætir við að nú þegar séu
byrjaðar prófanir á sjálfakandi far-
artækjum í Detroit borg þar sem er
mun misviðrasamara en í Arizona.
„Það er mikill áhugi að prófa svona
bíla fyrir slík svæði, enda opnar það
gríðarlega stóran markað. Ég gæti
trúað að það séu um 10 ár þangað
til sjálfakandi bílar geta ekið í snjó
og hálku.“
Óhagkvæmt að leggja bílum
Hvað borgarskipulag varðar seg-
ir Larco að í framtíðinni, með til-
komu sjálfakandi bíla, dragist fjöldi
bíla saman um 80% og við það losni
um gríðarleg landsvæði í borgum
og bæjum, sem í dag eru lögð undir
bílastæði. „Í dag er fjölda bíla lagt
allan daginn, sem er mjög óhag-
kvæmt. Bráðum koma t.d. mann-
lausir Uber leigubílar sem eru
stanslaust að sækja fólk og skutla
því, og þannig er bíllinn í stöðugri
vinnu, í stað þess að sitja aðgerða-
laus á bílastæði heilu dagana. Þetta
er ástæðan fyrir því að bílastæðum
mun fækka gríðarlega. Þetta mun
svo aftur hafa áhrif á verð á hús-
næði, þar sem meira framboð verð-
ur af landi, og verðið lækkar.“
Margir hafa velt fyrir sér hvað
mannfólkið muni hafa við allan tím-
ann að gera sem t.d. sjálfakandi
farartæki, og aukin netverslun
spara. „Við erum félagsverur, og
þó við hittumst ekki lengur úti í
búð, þá hittumst við úti á veit-
ingastað eða á öðrum stöðum sem
bjóða upp á skemmtilegar upplif-
anir.“
Sjálfakandi bílar á Íslandi
komnir innan 10 – 15 ára
AFP
Framtíð Sjálfakandi bíll frá Waymo, en 82 þúsund slíkir bílar eru á leið á göturnar í Arizona fyrir áramót.
Samgöngur
» Í framtíðinni munu bílafyrir-
tækin ekki selja bíla heldur far
með bílum.
» Þegar bílastæðum fækkar,
losnar um byggingarland í
borgum, og verð á húsnæði
lækkar.
» 82 þúsund mannlausir sjálf-
akandi bílar eru á leið á götur
Arizona, á vegum Waymo, sem
er í eigu Alphabet, móður-
félags Google.
Losar um gríðarleg svæði í borgum sem í dag eru lögð undir bílastæði
Nico Larco
Íslenska málningarfyrirtækið Máln-
ing hf. hlaut fyrr í þessum mánuði
Svansvottun, virtasta umhverfis-
staðal Norður-
landanna, fyrir
alla innanhús-
málningu í fram-
leiðslu fyrirtækis-
ins, sem
samanstendur af
28 vörutegund-
um. Um er að
ræða umfangs-
mestu umsókn
um Svansvottun
sem Umhverfis-
stofnun hefur fengist við hvað varðar
framleiðslu hér á landi.
Baldvin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Málningar, segir að
vottunin sé fyrirtækinu mikilvæg en
það er eina íslenska fyrirtækið sem
framleiðir málningu í dag. Hann tek-
ur fram að fyrirtækið hafi snemma
verið framarlega í framleiðslu á um-
hverfisvænni málningu en árið 1992
byrjaði Málning að framleiða máln-
ingu sem innihélt engin lífræn leysi-
efni, var nánast lyktarlaus og ein-
kennd með rauðu 0% merki.
„Við vorum með fyrstu fyrirtækj-
um í Evrópu með málningu sem var
án allra lífrænna leysiefna,“ segir
Baldvin við Morgunblaðið. „Það er
mikilvægt fyrir okkur út á við að fá
svona vottað umhverfismerki. Bæði
þannig að almenningur sjái að þetta
er ekki bara okkar merki heldur við-
urkennd vottun. Og svo er einnig að
færast í aukana í útboðum opinberra
aðila að sóst sé eftir því að vörurnar
séu vottaðar,“ segir Baldvin. „Máln-
ingin sem við höfum verið að fram-
leiða undanfarin ár hefði getað verið
Svansvottuð. En við ákváðum að
stíga skrefið til fulls núna,“ segir
Baldvin. peturhreins@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Svanurinn Málning hefur fengið
hina virtu umhverfisvottun.
Málning hf. fær
Svansvottun
Afar umfangs-
mikil umsókn og
28 vörutegundir
Baldvin
Valdimarsson