Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Gert er ráð fyrir því að InSight,
geimfar Geimvísindastofnunar
Bandaríkjanna, NASA, lendi á Mars
á mánudaginn kemur.
Fram kemur á stjörnufræði-
vefnum, stjornufraedi.is, að geimfar-
ið eigi að gera jarðeðlisfræðilegar
mælingar á Mars og veita vísinda-
mönnum innsýn í þróun bergreiki-
stjarna sólkerfisins. „Í fyrri Mars-
leiðöngrum hefur sjónum fyrst og
fremst verið beint að yfirborði Mars
og sögu þess með rannsóknum á
gljúfrum, eldfjöllum, bergi og jarð-
vegi. Með InSight er í fyrsta sinn
gerð tilraun til að rannsaka þróun
reikistjörnunnar og innviði hennar,“
segir á stjörnufræðivefnum.
InSight (Interior Exploration us-
ing Seismic Investigations, Geodesy
and Heat Transport) á að rannsaka
„ferlin sem mótuðu bergreiki-
stjörnur sólkerfisins, þar á meðal
jarðar. Það verður gert með því, að
fylgjast náið með skjálftavirkni á
Mars, mæla varmaflæði og hita í
reikistjörnunni, rannsaka skorpu-
hreyfingar og loftsteinaárekstra,“ að
því er fram kemur á stjörnufræði-
vefnum.
InSight kostaði 993 milljónir
bandaríkjadala, jafnvirði 123 millj-
arða króna, að sögn fréttaveitunnar
AFP. Geimfarinu var skotið á loft frá
Kaliforníu 5. maí.
Margt getur farið úrskeiðis
Gert er ráð fyrir því að aðflug
geimfarsins að yfirborði Mars hefjist
um klukkan átta á mánudagskvöld
eftir um 484 milljóna kílómetra ferð
frá jörðinni. Aðflugið á að taka rúm-
ar sex mínútur og margt getur farið
úrskeiðis þegar geimfarið hægir
ferðina úr 19.300 km/klst í aðeins 8
km/klst, að því er fram kemur á
fréttavef Space.com.
NASA hyggst skýra frá því hvern-
ig lendingin gekk á blaðamannafundi
eftir klukkan tíu á mánudagskvöld.
Gert er ráð fyrir því að geimfar NASA, InSight,
lendi á Mars á mánudaginn kemur
eftir hálfs árs ferð í geimnum
Þegar geimfarið fer inn í lofthjúp Mars,
um 128 km frá yfirborðinu, hefst um
það bil sex mínútna aðflug
að reikistjörnunni
Verja lendingar-
farið á leiðinni
til Mars
205 dagar
Átta
hreyflar eru
notaðir til að
fínstilla stefnu
geimfarsins
InSight lendir á Mars
Heimild: NASA
HP3 (Heat flow and physical
properties)
Mælir varmaflæði úr innviðum
Mars
Skjálftamælir
Mælir skorpuhreyfingar
og innri virkni Mars
RISE (Rotation and interior
structure experiment)
Fylgist með
staðsetningu
lendingarfarsins
þegar reikistjarnan
snýst um
sjálfa sig
Aðflug með fallhlíf1
2
3
4
Aðflug með hreyflum
Lending
Ferð frá jörðu
Sólar-
rafhlöður
Bakskjöldur
og hitaskjöldur
Hitaskjöldur losnar af
og geimfarið skýtur út
lendingarbúnaði með
dempurum
Ratsjá snúið í
átt að yfirborðinu
Bakskjöldur losnar af
og 12 aðflugshreyflar
eru notaðir til að
hægja á geimfarinu
Í geimfarinu er
stýrihugbúnaður
sem hægir á
því þar til
það lendir
InSight á að lenda á Elysion-sléttunni
sem hentar vel til lendingar
Geimfarið
InSight á að
lenda á Mars
Mælingar geimfarsins eiga að veita
innsýn í þróun bergreikistjarna
Leiðtogar Bretlands og Evrópusam-
bandsins náðu í gær samkomulagi í
meginatriðum um drög að yfirlýs-
ingu um tengsl landsins við ESB eft-
ir útgöngu þess úr sambandinu.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, fagnaði samkomulaginu í
ræðu á breska þinginu. „Þetta er
besti mögulegi samningurinn fyrir
Bretland,“ sagði hún.
Í yfirlýsingunni segir að stefnt sé
að „metnaðarfullum, breiðum, djúp-
um og sveigjanlegum tengslum“
Bretlands og Evrópusambandsins
eftir brexit. Í yfirlýsingunni er
fjallað um samstarf Bretlands og
ESB í efnahagsmálum, löggæslu,
dóms-, utanríkis-, öryggis- og
varnarmálum. Áður hafði náðst sam-
komulag um skilmála útgöngu Bret-
lands úr ESB í lok mars á næsta ári.
Gert er ráð fyrir að leiðtogar
ESB-ríkjanna samþykki útgöngu-
samninginn og yfirlýsinguna á fundi
á sunnudaginn kemur. Yfirlýsingin á
að vera grunnur að viðskiptasamn-
ingi sem gerður verður á 21 mánaðar
aðlögunartímabili eftir brexit þegar
Bretland verður áfram í innri mark-
aði og tollabandalagi ESB. Gert er
ráð fyrir að hægt verði að fram-
lengja aðlögunartímabilið í eitt eða
tvö ár, að sögn AFP.
Í drögunum, sem samþykkt voru í
gær, var ekki tekið á deilum um fisk-
veiðar í lögsögu Bretlands og deilu
Breta og Spánverja um framtíðar-
stöðu Gíbraltar. Stjórn Spánar hefur
hótað að fella brexit-samninginn ef
deilan verður ekki leyst en May hét
því á þinginu í gær að verja yfirráð
Bretlands yfir Gíbraltar.
Mikil andstaða er við samninginn
á breska þinginu og óvissa um hvort
hann verður samþykktur þar.
bogi@mbl.is
May semur um
tengslin við ESB
„Besti mögulegi samningurinn“
AFP
Brexit Theresa May forsætisráð-
herra flytur ræðu á breska þinginu.
Magn gróðurhúsalofttegunda í and-
rúmslofti jarðar hefur aldrei mælst
meira í heiminum en á síðasta ári.
Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóða-
veðurfræðistofnunarinnar sem birt
var í gær.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að
aukið magn gróðurhúsalofttegunda
valdi loftslagsbreytingum, hækkun
yfirborðs sjávar, súrnun sjávar og
afbrigðilegu veðurfari.
Magn þriggja gastegunda, kol-
tvíoxíðs, metans og nituroxíðs, hefur
aldrei mælst meira en í fyrra. Magn
koltvíoxíðs mældist nú 146% meira
en fyrir iðnbyltingu 1750.
„Síðast þegar styrkur koltvíoxíðs í
lofti var svipaður
og núna var fyrir
35 milljónum ára.
Þá var hitinn á
jörðinni um 2-3
gráðum hærri en
nú og yfirborð
sjávar var 10-20
metrum hærra“,
sagði Petteri
Taalas, fram-
kvæmdastjóri Al-
þjóðaveðurfræðistofnunarinnar. „Ef
við drögum ekki hratt úr magni
gróðurhúsalofttegunda aukast áhrif
loftslagsbreytinga enn frekar og
valda óafturkræfum skaða.“
LOFTSLAGSBREYTINGAR
Metmagn gróðurhúsalofttegunda í fyrra
Draga þarf úr loft-
menguninni.
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.