Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Vetrargolf Veðurblíðan hefur komið sér vel fyrir kylfinga. Hér vippar Lilja Leifsdóttir inn á sumargræna flöt á Korpúlfsstaðavelli og Soffía Sveinsdóttir fylgist með spilafélaga sínum.
Hari
Þegar eitthundrað ár eru liðin
frá lokum heimastjórnartímabils
og sami tími er liðinn frá fengnu
fullveldi er rétt að íhuga hvað
fékkst með heimastjórn fyrir full-
veldi.
Flokksóreiða
heimastjórnarinnar
Sá er þetta ritar á í mestu
vandræðum með að átta sig á um
hvað stjórnmál heimastjórnar-
tímabilsins snerust. Flokkaskip-
an heimstjórnartímabilsins er hrein óreiða.
Sigurður Eggerz var alþingismaður fyrir
marga flokka á sinni tíð:
utan flokka,
Sjálfstæðisflokkurinn eldri,
Sjálfstæðisflokkurinn þversum,
Sjálfstæðisflokkurinn eldri,
Frjálslyndi flokkurinn,
Sjálfstæðisflokkurinn.
Sá Sjálfstæðisflokkur sem síðastur er talinn
er sá Sjálfstæðisflokkur sem starfar í dag.
Skúli Thoroddsen sat á Alþingi fyrir eftir-
talda flokka:
Framfaraflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn eldri,
Þjóðræðisflokkurinn,
Sjálfstæðisflokkurinn eldri
Afkomendur þessa síðari þingmanns hafa
margir átt sæti á Alþingi, í þingliði Sósíalista-
flokksins og Vinstri grænna. Báðir voru þessir
alþingismenn eldheitir þjóðernissinnar og
vildu hafa sem minnst samskipti við Dani.
Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra heima-
stjórnarinnar, sat á Alþingi fyrir tvo flokka en
þó ekki samfellt, því einum flokki var skotið í
milli.
Heimastjórnarflokkurinn
Sambandsflokkurinn
Heimastjórnarflokkurinn
Keppinautur hans, Valtýr Guðmundsson, sá
er tapaði fyrir glæsimennskunni, sat á Alþingi
fyrir eftirtalda flokka:
Framfaraflokkurinn
Framsóknarflokkurinn eldri
Þjóðræðisflokkurinn
utan flokka
Sambandsflokkurinn
utan flokka
Hver skilur þennan glund-
roða?
Allir ráðherrar heimastjórnar-
innar voru danskmenntaðir
lögfræðingar. Einn þeirra lauk
þó ekki prófi.
Reyndar var það svo að flokka-
kerfi, sem til er í dag, mótaðist í
lok heimastjórnartímabilsins. Þannig var
Framsóknarflokkurinn stofnaður í landlegu á
Seyðisfirði. Að morgni næsta dags mundi að-
eins bindindismaðurinn í hópnum gjörla
hvernig flokksstofnuninni var háttað og hver
var kosinn formaður.
Hver var fyrirmyndin
að heimastjórninni?
Sennilega var fyrirmynd ýmissa hugsjóna-
manna að heimastjórninni íslenska þjóðveldið.
Að vísu var sá möguleika ekki lengur til staðar
að halda Alþingi á Þingvöllum. Það var búið að
byggja Alþingishúsið við Austurvöll.
Jónas Hallgrímsson skáld vildi halda Al-
þingi á Þingvöllum. Hann var skáld róman-
tíkur, jafnvel þjóðernisrómantíkur, enda þótt
hann væri fyrsta íslenska skáldið sem orti á
því formi sem ort var í Evrópu á hans sam-
tíma.
Þannig orti hann í sonnettuformi;
Heilsaðu einkum ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu;
þröstur minn góður! það er stúlkan mín.
Sennilega hafa heimastjórnarmenn ekki
verið vissir í hvaða átt skyldi stefnt, og alls
ekki séð fyrir sér ávöxt og árangur þess hag-
vaxtar sem hófst skömmu fyrir aldamótin
1900.
Hvað stendur upp úr
í stjórnmálum heimastjórnar?
Þegar stjórnmál heimastjórnartímabilsins
eru skoðuð einni öld eftir lok þess virðist þeim
er þetta ritar eitt standa upp úr á þessu tæp-
lega 15 ára tímabili. Það eru deilur um stöðu
Íslandsráðherra gagnvart konungi og ríkisráði
Dana. Stundum var þetta nefnt fyrirvarinn, en
fyrirvarinn var glíma í sjálfstæðismálinu.
Hann gekk út á að ekki yrðu borin upp sér-
íslensk mál í ríkisráði Dana.
Deilur um fyrirvara Alþingis um að bera ís-
lensk mál upp í danska ríkisráðinu hafa menn
átt erfitt með að skilja enda segir í ritinu
Stjórnarráð Íslands eftir Agnar Klemens
Jónsson „...að mörgum hefur, bæði fyrr og síð-
ar, veist erfitt að átta sig á skýringum og raun-
ar allri þessari fyrirvaradeilu“. Enda á Einar
Arnórsson að hafa gefið þá skýringu til að fá
hann staðfestan í ríkisráðinu að hann væri
formlegs-fræðilegs eðlis, hvað sem það nú
þýddi.
Þau mál er sneru að því hvernig landsmenn
ættu að lifa af í sjálfstæðu landi skiptu litlu
fyrir forystumenn heimastjórnartímabilsins.
Vissulega var stofnaður banki á fyrsta ári
heimastjórnar, með erlendu hlutafé, Íslands-
banki hf., sem hafði forystu um vélvæðingu
bátaflotans og upphaf togaraaldar. Lands-
bankinn var skútualdarbanki á þessum tíma.
Til þess að hægt væri að stunda eðlilega út-
lánastarfsemi vantaði vátryggingafélag, vegna
brunatrygginga fasteigna og almennra skaða-
trygginga. Til þess að hægt væri að stunda
millilandaviðskipti skorti skipafélag, og til
þess að hægt væri að stunda almenn viðskipti
var löggjöf mjög veik. Þó voru sett „almenn
viðskiftalög“ árið 1911.
Sá sem lagði grunn að stofnun trygginga-
félaga og skipafélags var Sveinn Björnsson,
yfirréttarmálflutningsmaður og síðar hæsta-
réttarlögmaður, sendiherra og fyrsti forseti
Íslands.
Stundum virðist þeim er þetta ritar að
Sveinn Björnsson hafi verið sá stjórnmála-
maður heimastjórnarinnar sem lengst komst
með að færa Ísland inn í nútímann.
Þá ber einnig að nefna Einar Arnórsson, en
það var í stuttri ráðherratíð hans sem konur á
Íslandi fengu kosningarétt.
Það er uppbygging innviða undir forystu
Sveins Björnssonar og kosningaréttur
kvenna í ráðherratíð Einars Arnórssonar,
sem standa upp úr á heimastjórnartíma-
bilinu.
Arfur heimastjórnar
Þegar horft er til baka felst arfur heima-
stjórnarinnar í nokkrum þáttum. Það tókst að
koma á mögnuðum deilum í sáraeinföldu
máli. Það var símamálið. Það var nógu einfalt
til að allir hefðu vit á því. Þannig var farin
hópreið til Reykjavíkur til að berjast gegn
lagningu landsíma. Sennilega hafa forystu-
menn þeirrar suðurreiðar talið að GSM-símar
væru á næsta leiti árið 1906.
Önnur arfleifð er hús Landsbókasafns Ís-
lands, Safnahúsið við Hverfisgötu. Það er fal-
leg bygging og vel gerð þrátt fyrir þyngd
sína.
Þriðja arfleifðin sem nefna mætti er Tjarn-
argatan. Þar byggðu hinir danskmenntuðu
embættismenn heimastjórnarinnar hús sín.
Þau hús eru úr takti við önnur íbúðarhús á
þeim tíma.
Álitamál er hvort þeir sem þar byggðu hafi
fengið lán hjá nýstofnaðri veðdeild Lands-
banka Íslands. Í lögum nr. 1/1900 segir:
„Í Landsbankanum í Reykjavík skal stofna
veðdeild til þess að veitt verði lán um langt
árabil og með vægum vöxtum gegn veði í
fasteignum.“
Hvaðan átti lánsfé að koma?
Með þessum lagatexta var lagður grunnur
að því að færa lántakendum sparifé lands-
manna á silfurfati. Þetta var áður en hugtakið
verðbólga varð til, það hugtak var kallað dýr-
tíð.
Til eru þeir sem vilja taka þennan dýrðar-
tíma upp aftur, að taka sparifé frá börnum og
öldruðum og færa þeim sem byggja við
tjarnargötur hvers tíma, gegn vægum
vöxtum, en það þýðir á skiljanlegu máli að
borga ekki til baka í jafnvirði.
Þennan arf heimastjórnarinnar er enn ver-
ið að takast á við.
Eftir Vilhjálm Bjarnason » Að vísu var sá möguleiki
ekki lengur til staðar að
halda Alþingi á Þingvöllum.
Það var búið að byggja Al-
þingishúsið við Austurvöll.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Í heimastjórn fyrir fullveldi