Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 23.11.2018, Qupperneq 49
49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Vetrargolf Veðurblíðan hefur komið sér vel fyrir kylfinga. Hér vippar Lilja Leifsdóttir inn á sumargræna flöt á Korpúlfsstaðavelli og Soffía Sveinsdóttir fylgist með spilafélaga sínum. Hari Þegar eitthundrað ár eru liðin frá lokum heimastjórnartímabils og sami tími er liðinn frá fengnu fullveldi er rétt að íhuga hvað fékkst með heimastjórn fyrir full- veldi. Flokksóreiða heimastjórnarinnar Sá er þetta ritar á í mestu vandræðum með að átta sig á um hvað stjórnmál heimastjórnar- tímabilsins snerust. Flokkaskip- an heimstjórnartímabilsins er hrein óreiða. Sigurður Eggerz var alþingismaður fyrir marga flokka á sinni tíð: utan flokka, Sjálfstæðisflokkurinn eldri, Sjálfstæðisflokkurinn þversum, Sjálfstæðisflokkurinn eldri, Frjálslyndi flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn. Sá Sjálfstæðisflokkur sem síðastur er talinn er sá Sjálfstæðisflokkur sem starfar í dag. Skúli Thoroddsen sat á Alþingi fyrir eftir- talda flokka: Framfaraflokkurinn, Framsóknarflokkurinn eldri, Þjóðræðisflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn eldri Afkomendur þessa síðari þingmanns hafa margir átt sæti á Alþingi, í þingliði Sósíalista- flokksins og Vinstri grænna. Báðir voru þessir alþingismenn eldheitir þjóðernissinnar og vildu hafa sem minnst samskipti við Dani. Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra heima- stjórnarinnar, sat á Alþingi fyrir tvo flokka en þó ekki samfellt, því einum flokki var skotið í milli. Heimastjórnarflokkurinn Sambandsflokkurinn Heimastjórnarflokkurinn Keppinautur hans, Valtýr Guðmundsson, sá er tapaði fyrir glæsimennskunni, sat á Alþingi fyrir eftirtalda flokka: Framfaraflokkurinn Framsóknarflokkurinn eldri Þjóðræðisflokkurinn utan flokka Sambandsflokkurinn utan flokka Hver skilur þennan glund- roða? Allir ráðherrar heimastjórnar- innar voru danskmenntaðir lögfræðingar. Einn þeirra lauk þó ekki prófi. Reyndar var það svo að flokka- kerfi, sem til er í dag, mótaðist í lok heimastjórnartímabilsins. Þannig var Framsóknarflokkurinn stofnaður í landlegu á Seyðisfirði. Að morgni næsta dags mundi að- eins bindindismaðurinn í hópnum gjörla hvernig flokksstofnuninni var háttað og hver var kosinn formaður. Hver var fyrirmyndin að heimastjórninni? Sennilega var fyrirmynd ýmissa hugsjóna- manna að heimastjórninni íslenska þjóðveldið. Að vísu var sá möguleika ekki lengur til staðar að halda Alþingi á Þingvöllum. Það var búið að byggja Alþingishúsið við Austurvöll. Jónas Hallgrímsson skáld vildi halda Al- þingi á Þingvöllum. Hann var skáld róman- tíkur, jafnvel þjóðernisrómantíkur, enda þótt hann væri fyrsta íslenska skáldið sem orti á því formi sem ort var í Evrópu á hans sam- tíma. Þannig orti hann í sonnettuformi; Heilsaðu einkum ef að fyrir ber engil með húfu og rauðan skúf, í peysu; þröstur minn góður! það er stúlkan mín. Sennilega hafa heimastjórnarmenn ekki verið vissir í hvaða átt skyldi stefnt, og alls ekki séð fyrir sér ávöxt og árangur þess hag- vaxtar sem hófst skömmu fyrir aldamótin 1900. Hvað stendur upp úr í stjórnmálum heimastjórnar? Þegar stjórnmál heimastjórnartímabilsins eru skoðuð einni öld eftir lok þess virðist þeim er þetta ritar eitt standa upp úr á þessu tæp- lega 15 ára tímabili. Það eru deilur um stöðu Íslandsráðherra gagnvart konungi og ríkisráði Dana. Stundum var þetta nefnt fyrirvarinn, en fyrirvarinn var glíma í sjálfstæðismálinu. Hann gekk út á að ekki yrðu borin upp sér- íslensk mál í ríkisráði Dana. Deilur um fyrirvara Alþingis um að bera ís- lensk mál upp í danska ríkisráðinu hafa menn átt erfitt með að skilja enda segir í ritinu Stjórnarráð Íslands eftir Agnar Klemens Jónsson „...að mörgum hefur, bæði fyrr og síð- ar, veist erfitt að átta sig á skýringum og raun- ar allri þessari fyrirvaradeilu“. Enda á Einar Arnórsson að hafa gefið þá skýringu til að fá hann staðfestan í ríkisráðinu að hann væri formlegs-fræðilegs eðlis, hvað sem það nú þýddi. Þau mál er sneru að því hvernig landsmenn ættu að lifa af í sjálfstæðu landi skiptu litlu fyrir forystumenn heimastjórnartímabilsins. Vissulega var stofnaður banki á fyrsta ári heimastjórnar, með erlendu hlutafé, Íslands- banki hf., sem hafði forystu um vélvæðingu bátaflotans og upphaf togaraaldar. Lands- bankinn var skútualdarbanki á þessum tíma. Til þess að hægt væri að stunda eðlilega út- lánastarfsemi vantaði vátryggingafélag, vegna brunatrygginga fasteigna og almennra skaða- trygginga. Til þess að hægt væri að stunda millilandaviðskipti skorti skipafélag, og til þess að hægt væri að stunda almenn viðskipti var löggjöf mjög veik. Þó voru sett „almenn viðskiftalög“ árið 1911. Sá sem lagði grunn að stofnun trygginga- félaga og skipafélags var Sveinn Björnsson, yfirréttarmálflutningsmaður og síðar hæsta- réttarlögmaður, sendiherra og fyrsti forseti Íslands. Stundum virðist þeim er þetta ritar að Sveinn Björnsson hafi verið sá stjórnmála- maður heimastjórnarinnar sem lengst komst með að færa Ísland inn í nútímann. Þá ber einnig að nefna Einar Arnórsson, en það var í stuttri ráðherratíð hans sem konur á Íslandi fengu kosningarétt. Það er uppbygging innviða undir forystu Sveins Björnssonar og kosningaréttur kvenna í ráðherratíð Einars Arnórssonar, sem standa upp úr á heimastjórnartíma- bilinu. Arfur heimastjórnar Þegar horft er til baka felst arfur heima- stjórnarinnar í nokkrum þáttum. Það tókst að koma á mögnuðum deilum í sáraeinföldu máli. Það var símamálið. Það var nógu einfalt til að allir hefðu vit á því. Þannig var farin hópreið til Reykjavíkur til að berjast gegn lagningu landsíma. Sennilega hafa forystu- menn þeirrar suðurreiðar talið að GSM-símar væru á næsta leiti árið 1906. Önnur arfleifð er hús Landsbókasafns Ís- lands, Safnahúsið við Hverfisgötu. Það er fal- leg bygging og vel gerð þrátt fyrir þyngd sína. Þriðja arfleifðin sem nefna mætti er Tjarn- argatan. Þar byggðu hinir danskmenntuðu embættismenn heimastjórnarinnar hús sín. Þau hús eru úr takti við önnur íbúðarhús á þeim tíma. Álitamál er hvort þeir sem þar byggðu hafi fengið lán hjá nýstofnaðri veðdeild Lands- banka Íslands. Í lögum nr. 1/1900 segir: „Í Landsbankanum í Reykjavík skal stofna veðdeild til þess að veitt verði lán um langt árabil og með vægum vöxtum gegn veði í fasteignum.“ Hvaðan átti lánsfé að koma? Með þessum lagatexta var lagður grunnur að því að færa lántakendum sparifé lands- manna á silfurfati. Þetta var áður en hugtakið verðbólga varð til, það hugtak var kallað dýr- tíð. Til eru þeir sem vilja taka þennan dýrðar- tíma upp aftur, að taka sparifé frá börnum og öldruðum og færa þeim sem byggja við tjarnargötur hvers tíma, gegn vægum vöxtum, en það þýðir á skiljanlegu máli að borga ekki til baka í jafnvirði. Þennan arf heimastjórnarinnar er enn ver- ið að takast á við. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Að vísu var sá möguleiki ekki lengur til staðar að halda Alþingi á Þingvöllum. Það var búið að byggja Al- þingishúsið við Austurvöll. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Í heimastjórn fyrir fullveldi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.