Morgunblaðið - 23.11.2018, Page 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Norræna húsið
Sæmundargötu 11
Aðgangur ókeypis
Sýnd til 30. apríl 2019
Ferðalag um furðuheim
barnabókmenntanna
Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka
Barnabókaflóðið
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16
Svartur
östudagur
30% afsláttur
af öllum vörum
f
Ponjo
Kr. 6.293
Kr. 8.990
Lög eru sett fyrir
framtíðina, ekki bara
núið. Þessu gleymir ráð-
herra í Morgunblaðs-
grein sinni 18/11-2018
og því, að markaðs-
væðing að forskrift
ESB er ekki skyn-
samleg hér.
Með landsregl-
aranum, sem kemur
með innleiðingu 3. orku-
pakkans er stigið stórt
skref í átt til þess að framselja fram-
kvæmdarvald yfir auðlindum okkar til
framkvæmdastjórnar ESB. Með þeim
viðbótum sem liggja fyrir og koma síð-
ar er gengið enn lengra og aðeins skil-
ið eftir táknræn valdheimild í höndum
ráðherra til að veita vinnsluheimildir.
Þetta er valdaframsal eftir krókaleið-
um.
Með nýjum orkulögum, sem sam-
ræmast skulu tilskipun ESB nr. 72/
2009 verður Orkustofnun falið það
hlutverk að setja sjálf eða hafa eftirlit
með þeim reglum sem settar eru um
framleiðslu, flutning og viðskipti með
rafmagn á Íslandi. Hingað til hefur
Orkustofnun verið ráðgjafi og sett
ýmsar reglur í umboði ráðherra og
heldur þeim hlutverkum, en fær nú
nýtt andlit til viðbótar hinu gamla,
sem er andlit landsbundins eftirlits-
yfirvalds, eða landsreglara. Þessum
andlitum snýr hún að opinberum að-
ilum eftir því hvort hún er að sinna
þeim störfum sem skilgreind eru í til-
skipuninni eða öðrum.
Í störfum sínum sem honum eru fal-
in samkvæmt tilskipuninni eða skyld-
um lögum skal embætti landsreglara
vera, eins og þar segir: „lagalega að-
greint og óháð öllum öðrum opinber-
um aðilum eða einkaaðilum að því er
varðar starfsemi“. Einnig skal vera
tryggt, að starfsfólk landsreglarans
„leiti ekki eftir eða taki við beinum
fyrirmælum frá neinni ríkisstofnun
eða öðrum opinberum aðila eða einka-
aðila við framkvæmd eftirlitsverkefn-
anna“. Auðvitað ber landsreglaranum
að hafa samráð við aðrar stofnanir
eins og ráðherra eftir atvikum, en
undir því fororði að hann eigi sjálfur
síðasta orðið.
Í tilskipuninni eru
landsreglaranum sett al-
menn markmið í mörg-
um liðum. þar má lesa:
„Við framkvæmd eft-
irlitsverkefna sem til-
greind eru í þessari til-
skipun skal eftirlits-
yfirvald gera allar
viðeigandi ráðstafanir til
að ná eftirfarandi mark-
miðum [fyrirvörum
sleppt] a) að efla, í nánu
samstarfi við stofnunina
[ACER], eftirlits-
yfirvöld annarra aðildarríkja og fram-
kvæmdastjórnina, samkeppnishæfan,
öruggan og umhverfislega sjálfbæran
innri markað fyrir raforku í Bandalag-
inu, og skilvirkan markaðsaðgang fyr-
ir alla viðskiptavini og birgja í Banda-
laginu og tryggja viðeigandi skilyrði
fyrir skilvirka og áreiðanlegra starf-
rækslu raforkuneta, að teknu tilliti til
langtímamarkmiða.“ Það fer ekki milli
mála, að hér er verið að tala um að
tengja landið við markaðssvæði ESB
með sæstreng. Það sama kemur oftar
fram í ákvæðum um markmið lands-
reglara og einnig það, að landsregl-
aranum er ætlað að fylgja stefnu ESB
í hvívetna.
Mörgum þykir að óhæði landsregl-
arans og hið nána samráð sem hann
skal hafa við ACER og aðra landsregl-
ara um samræmingu reglugerða milli
landa, þar sem hann verður þó aðeins
áheyrnaraðili ásamt framan greindum
skyldum gagnvart málefnum innri
markaðarins vera þess eðlis, að hér sé
ekki um íslenska stofnun að ræða, þótt
stofnað sé til og fjármögnuð af Al-
þingi. Hvernig sem það er formlega
séð, þá er hér um greiða ótruflaða leið
að ræða fyrir framkvæmdarvald ESB
inn í orkuvinnslu úr auðlindum okkar
og eftir samþykkt 3. orkupakkans
verða ekki settar neinar reglur um
vinnslu úr orkuauðlindinni sem hafa
áhrif á framboð og flutning rafmagns
nema þær séu í samræmi við reglur
landsreglarans, ákvæði orkupakkans
eða stefnu ESB. Það merkir til dæmis,
að sjálfstæðri auðlindastýringu verður
ekki komið á eftir samþykkt þriðja
orkupakkans. Þarna er um að ræða
verulegt framsal á valdi yfir auðlind-
inni sem gerist strax við samþykkt
orkupakkans og telja margir lands-
menn að það sé brot á stjórnarskrá Ís-
lands hvað sem sumir lögfræðingar
segja um hina formlegu hlið.
Það er einnig ljóst, að með viðbótar-
reglugerð ESB nr. 347/2013 verður
allt vald um það hvort hér kemur sæ-
strengur eða ekki tekið úr höndum ís-
lenskra stjórnvalda og fært í hendur
framkvæmdastjórnarinnar. Í samn-
ingaviðræðum um skiptingu kostn-
aðar milli landa verður landsreglarinn
síðan fulltrúi Íslands, en má þó ekki
taka við fyrirmælum íslenskra stjórn-
valda, heldur verður að fylgja reikni-
reglum og viðmiðum sem ESB setur
einhliða. Eftir sæstreng stýrir ACER
útflutningi orku frá Íslandi.
Sæstrengur á forsendum þriðja
orkupakkans með viðbótum er glap-
ræði fyrir Ísland. Sú tenging við orku-
kerfi Evrópu er meginmarkmið lands-
reglarans og til þess eru refirnir
skornir.
Annaðhvort stjórnar rafmagnið
auðlindinni eða auðlindavinnslan
stjórnar rafmagninu. Af eðlis-
fræðilegum ástæðum er ekki um ann-
að að ræða. Auðlindir Íslands eru und-
anskildar EES-samningunum og ekki
var litið svo á, að fyrsti orkupakkinn
eða sá annar breyttu því. Uppskipting
fyrirtækja og ákvæði um jafna stöðu
þegna ESB-ríkja til stofnunar og
reksturs fyrirtækja hér var ekki held-
ur talið koma auðlindinni við. En þeg-
ar orka auðlindarinnar er sett undir
stjórn landsreglara sem er háður
framkvæmdavaldi ESB, en óháður ís-
lenskum stjórnvöldum þannig að þau
hafa ekki lengur aðkomu að auðlinda-
vinnslunni, þá er of langt gengið.
Eftir Elías Elíasson »En þegar orka auð-
lindarinnar er sett
undir stjórn landsregl-
ara sem er háður fram-
kvæmdavaldi ESB en
óháður íslenskum
stjórnvöldum ... þá er of
langt gengið.
Elías Elíasson
Höfundur er sérfræðingur
í orkumálum.
eliasbe@simnet.is
Þórdís Kolbrún,
mundu landsreglarann
Lengi hefur glíman
við náttúruöflin verið
helsta vá þjóðar. Nú er
hins vegar náttúran
vöktuð af vísinda-
mönnum og mælitækj-
um hvern einasta dag.
Hættulegasta vá íbúa
og gesta landsins er
umferðin á hverjum
tíma, og spurningin
„kem ég heill heim“
verður sífellt ágengari.
Kallað hefur verið eftir átaki í upp-
byggingu umferðarmannvirkja. Allt-
of mörg óhöpp og slys eru undirrótin
og hvatinn. Verkefnið er umfangs-
mikið og mun taka tíma, ár eða ára-
tugi og lýkur sennilega seint ef nokk-
urn tímann.
Ábyrgð og áhrif vegfarenda er
mikil, þar liggja þættir sem auðvelt
er að breyta á skömmum tíma ef vilj-
inn er til staðar. Heyra má raddir
þess efnis að flest slys í umferðinni
séu vegna erlendra gesta á bíla-
leigubílum sem upplifa sumir hverjir
í fyrsta sinn einbreiðar brýr, rollur á
veginum, skafrenning eða ægifagra
náttúru og jafnvel allt í senn. Vissu-
lega eru erlendir gestir rúmlega
helmingur þeirra sem létust í um-
ferðinni á síðasta ári. En af hinum
6.800 umferðaróhöppum á síðasta ári
voru Íslendingar í yfirgnæfandi
meirihluta eða rúmlega 70% tilfella.
Akureyringar hafa löngum státað
af hæfni umfram aðra í vetrarakstri.
Það vekur athygli að hæsta tíðni um-
ferðaróhappa á hverja 1.000 íbúa er á
Akureyri, Selfoss og Reykjanesbær
fylgja fast á eftir.
Erfitt er að reikna út afleiddan
kostnað umferðarslysa, talið að heild-
arkostnaðurinn liggi á milli 50 og 60
milljarða króna á ári. Er þá ótalinn
óáþreifanlegi hlutinn sem felst í töp-
uðum lífsgæðum og þjáningum aðila
máls.
Hvað er til ráða?
Orsök langflestra umferðarslysa
liggur hjá ökumönnum eða vegfar-
endum sjálfum. Akstur undir áhrifum
áfengis og fíkniefna á þar stóran þátt
og 238 vímaðir ökumenn komu við
sögu í umferðarslysum á síðasta ári.
Flestir þeirra, karl-
menn, á aldrinum 17-36
ára.
Bílbelti koma ekki í
veg fyrir óhöpp og slys
en geta lágmarkað skað-
ann, þrátt fyrir það voru
38% þeirra sem létust í
umferðinni ekki með
beltin spennt.
Yfirborð vega, veður
og skyggni tengjast
mörgum umferðaslys-
um og þá má velta fyrir
sér hvort ekið er eftir
aðstæðum. Hjólreiðafólk kemur við
sögu í 92 umferðarslysum, í 60 tilfella
var of stutt bil á milli bíla orsök
óhappsins. Í 28 skipti var ekið á gang-
andi vegfaranda. Flest umferðarslys
á höfuðborgarsvæðinu eru á virkum
dögum milli kl 16 og 18.
Í lífinu sjálfu eru margar leik-
reglur, ýmist skráðar eða óskráðar. Í
umferðinni eru allar leikreglur skráð-
ar og ljósar. Hámarkshraði, bílbelti,
umferðarljós og umferðarmerki
segja allt um sína merkingu. Þrátt
fyrir það er biðskylda við gatnamót
eða rauð ljós umferðarljósa ekki allt-
af virt og koma æ oftar við sögu slysa.
Hugsum málið upp á nýtt
Umferðin er dauðans alvara.
Ríkjandi ástand er óásættanlegt og
við sem þjóð verðum að bregðast við
og breyta gildandi viðhorfi. Svörum
spurningunni – hvað get ég gert til að
breyta umferðarmenningunni? Tök-
um staðreyndir alvarlega.
Það hafa orðið jákvæðar breyt-
ingar á meðvitaðri hegðun öku-
manna. Nærtækast er að nefna þegar
ökuljós voru kveikt og beltin spennt.
Það er hægt
að breyta
Eftir Smára
Sigurðsson
Smári Sigurðsson
» Akstur undir áhrif-
um áfengis og fíkni-
efna á þar stóran þátt
og 238 vímaðir ökumenn
komu við sögu umferð-
arslysa á árinu. Flestir
karlmenn, 17-36 ára.
Höfundur er formaður Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
formadur@landsbjorg.is