Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 54
54 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Undirrituð er stuðningsamaður orkuskipta en keypti dísilbíl fyrir rúmu ári og er auðvitað með samviskubit yfir því. Umræða var hafin um að Íslendingar þyrftu að skipta yfir á rafbíl. Við spáðum mikið í það hvernig rafbílar hentuðu íslenskri veðráttu. Ef maður t.d. færi í sumarbústað og það gerði kafaldsbyl um nóttina. Sem gæti þýtt að við þyrftum að moka okkur út. Stenst rafgeymir álagið af því að spóla? Eyðir hann miklu við það? Stenst hann fimbulkulda? Ef maður lendir í slæmri færð uppi á Hellisheiði og silast áfram með bíl- inn í gangi til að halda okkur hita. Hversu lengi er rafgeymirinn að tæmast við það? Það getur orðið ansi kalt á vetrum. Við búum jú á Íslandi! Þetta voru sem sagt pæl- ingarnar meðal annars. – Og við höfum prófað tvinnbíl á leið yfir Hellisheiði, hann gekk mestan hluta á bensíninu og eyddi ansi vel af því. En – rafvæðing fer ekki fram í tómarúmi. Hún á sér orsakir og af- leiðingu eins og öll önnur mann- anna verk. Umræða um rafvæðingu bílaflotans (í Reykjavík) hefur tekið á sig trúarblæ og allri trú getur fylgt rétttrúnaðarhugsun. Hún snýr að því að við höfum engan tíma til að bíða, því við þurfum að ná mark- miðum okkar. Það er öllum ljóst að hægt er að minnka útblástur CO2 á Íslandi með rafbílavæðingu, – að auki erum við svo heppin að fram- leiða raforku á vistvænan hátt. Ekki má gleyma því að rafbíll er bíll og bílum mun fjölga í náinni framtíð. Vegakerfi (borgarinnar) þarf að taka mið af því. Eftir stend- ur þó mengun frá stóriðju, flug- vélum og skipum (á Íslandi). Árleg mengun frá álveri er sú sama og frá 172.000 bílum árlega og skemmtiferðaskip menga á við þre- faldan bílaflota landsins á sólar- hring, á við 675.000 bíla. Flugvél eyðir u.þ.b. 15 sinnum meira af eldsneyti en skip við flutning á sama magni af farmi. Það þarf því auðsjáanlega aðra í lið með öku- mönnum ef markmiðin eiga að nást. Allt á að vera undir og þ́að þarf að gera eitthvað í því. Það fylgir böggull skammrifi. Umræðan skautar líka yfir veiga- mikil atriði eins og mengunarþætti við framleiðslu rafgeyma. Það er mikil eftirspurn eftir liþíumjóna- rafhlöðum sem notaðar eru í raf- geyma (og síma og tölvur). Að sögn World Economic Forum (Alþjóða- efnahagsráðið, WEF, 2017) felur framleiðsla þeirra í sér mikinn sam- félags- og umhverfislegan kostnað m.a. vegna kóbaltnámuvinnslu. Gert er ráð fyrir að árið 2025 verði virði rafhlöðumarkaðarins um 100 billjón bandaríkjadollarar. Til að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðum þarf að koma 100 milljón rafbílum á götur heimsins fyrir 2030 til að ná Parísarsamkomulaginu. Það þýðir fimmtíufalt meira magn bíla en í dag. Á síðasta ári var framleidd rúmlega ein milljón rafbíla (WEF, 2018). 2020 er gert ráð fyrir 4,5 milljónum raf- bíla á alþjóðavísu eða 5% af markaðinum. Eftirspurnin mun bara aukast og verð á hrá- efnum hækka (McKins- ey, 2017). Ráðgert er að um 90% framleiddra liþí- umjónarafhlaðna verði í rafbílum 2025. Það er meginorsök þess að rafbílar „losa“ meiri koltvísýring allan sinn líftíma – frá námugreftri, í fram- leiðslu, við notkun og förgun, – en venjulegir bensín- og dísilbílar. Kol- efnisspor rafbíla er því nú mjög hátt. Framleiðsla á rafbílum, vegna rafhlöðunnar, mengar að meðaltali tvisvar sinnum meira og notar helmingi meiri raforku en við fram- leiðslu á „venjulegum“ bíl. Því stærri bíll og meiri drægi, því meiri mengun í ferlinu. Þegar líður á líf- tíma batteríanna fer þó sjálft kol- efnisspor þeirra minnkandi. Þegar afkastagetan fellur niður um 20- 30% eftir u.þ.b. tíu ár, dugar hún ekki til að knýja bílinn áfram. Þá mætti endurnýta rafhlöðuna annars staðar og hugsanlega tvöfalda líf- tíma hennar. Það getur þó haft mikinn kostnað í för með sér. Reiknað er með, að um 11 milljón tonn af notuðum liþíumjóna- rafhlöðum flæði inn á markað 2025 án neinna förgunarúrræða (WEF, 2017). En það er mikið og meira. Það kemur ekki á óvart að námugröftur er afar umhverfisspillandi. Svo ekki sé talað um samfélagsábyrgð, mannréttindi, barnaþrælkun og heilsuspillandi vinnuumhverfi í löndum sem minnst mega sín (WEF, 2018). Allir bílaframleið- endur og tæknifyrirtæki eru með- vituð um þetta, en geta lítið gert við því. „Global Battery Alliance“ hjá Alþjóðaefnahagsráðinu hvetur til meiri samfélagsábyrgðar, sjálf- bærni og nýsköpunar í rafgeyma- þróun. „Our climate revolution must not be carried out at the ex- pense of other goals, or of people who can least afford it“ (WEF, 2017), eða „orkuskipti okkar mega ekki vera á kostnað annarra mark- miða eða þeirra sem minnst mega sín“. Það eru fyrirsjáanlegar miklar breytingar varðandi orkuskipti og innviðauppbyggingu í náinni fram- tíð. Dísil- og bensínvélar munu renna sitt skeið en kannski ekki al- veg svona hratt eins og ætlast er til. Og annað kemur í staðinn. En hvað ætla menn að gera við tvær billjónir ónothæfra farartækja sem verða á götum heimsins árið 2035? Rafbílavæðing Íslands – þöggunin Eftir Kristínu Halldórsdóttur Kristín Halldórsdóttir »Rafbílavæðingin veldur mikilli meng- un og er umhverfisspill- andi. Kolefnisspor eins bíls er mjög hátt, þó hann losi ekki koltvísýr- ing á Íslandi. Höfundur er doktorsnemi og um- hverfisverndarsinni. Þarftu að láta gera við? FINNA.is JÓLASERÍUR við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA kr.275 Inni- og útiseríur. Verð frá Heilbrigðismál eru mikið í umræðunni um þessar mundir, sem er ekki undarlegt þar sem gott heilbrigðiskerfi er lykillinn að góðu sam- félagi. Á seinni hluta síðustu aldar var heilbrigðis- kerfið hér á landi mjög gott. Þá var það alger- lega rekið á vegum hins opinbera. Læknar, hjúkrunarfræðingar og annað starfs- fólk heilbrigðisgeirans voru þá öll opinberir ríkisstarfsmenn og fengu þá laun greidd beint frá ríkinu. Heilsugæslustöðvar voru í flestum byggðakjörnum landsins og í þeim stærri yfirleitt í tengslum við sjúkra- hús. Á sjúkrahúsum, sérstaklega þeim stærri, í Reykjavík og Akureyri, voru margskonar sérfræðingar og einnig heilsugæslulæknar. Heilsugæslulæknarnir voru oft nefndir heimilislæknar þ.e. sinntu al- mennri heilsugæslu á ákveðnu svæði. Þá var ekki óalgengt að læknar væru kvaddir í heimahús og yrðu að fara langar leiðir, t.d. á sveitabæi, til að líta á sjúkling til ákvörðunar um framvindu aðgerða. Þetta þótti sjálfsagt og urðu læknar þá oft heim- ilisvinir fólks og ráðgef- endur um heilbrigða lífs- hætti. Í dag er þetta gjör- breytt. Nú heyrir til und- antekninga að læknir komi í hús til sjúklings. Í dag verður sjúklingur sem þarf á lækni að halda að panta tíma og verð- ur oft að bíða í vikur eða mánuði til að komast til hans. Þessi óheillaþróun hefur átt sér stað af tvenns konar orsökum, annarsvegar af niðurskurði stjórnvalda á fjármagni til heilsugæslustöðva og hinsvegar af þróun menntunar lækna til sérhæf- ingar á ákveðnum sviðum lækninga annarra en almennrar heilsugæslu. Og nú er svo komið að sjúklingur verður oft sjálfur að ákveða til hverskonar sérfræðings hann á að leita. Ef hann er með magakveisu til magasérfræð- ings, ef hann er með brjóstverki til hjartalæknis eða lungnasérfræðings og ef hann er með hausverk þá til heilasérfræðings. Og ef hann er bara slappur þá veit hann ekkert hvert hann á að fara. Þessi endaleysa varð til vegna misviturra manna úr læknastétt og af stjórnvöldum og hefur gert heil- brigðisþjónustuna margfalt flóknari og dýrari. Ég gat ekki annað en hlegið þegar ég heyrði að sérfræðilæknar vildu nú fara að starfa sem sjálfstæðir verktak- ar. Almennt er sjálfstæður verktaki að- ili sem býður í verk eða er beðinn að vinna verk sem hann hefur kunnáttu til. Sé um útboð að ræða skoðar verk- takinn verkefnið og býður svo ákveðna upphæð fyrir framkvæmd þess. Nú eru oftast fleiri en einn sem gera tilboð og verður þá oftast sá sem lægst býð- ur verktakinn, þetta er algild regla sem sjálfstæðir verktakar verða hlíta. Nú eru sérfræðilæknar eingöngu að fást við mannsskrokkinn (nema dýra- læknar) og verða því sem sjálfstæðir verktakar að skoða verkefnið ( þ.e. skrokkinn) og gera síðan tilboð í það sem hann vill fá fyrir verkið þ.e. að laga meinsemdina. Sjúklingurinn skoðar síðan tilboðin og velur úr það sem hann telur hag- stæðast fyrir sig. Verði kaupandi (sjúklingurinn) ósáttur við verktaka að verki loknu geta komið upp allskonar vandamál eins og títt er meðal sjálf- stæðra verktaka. Að öllu gríni gleymdu, þá er það al- ger fáviska að fara að markaðssetja heilbrigðiskerfið, þ.e. einkavæða heil- brigðiskerfið og setja það á markað eins og byggingarframkvæmdir því hér er verið að tefla og tala um mann- eskjur, jafnvel líf og dauða, en ekki efnishluti eins og steinsteypu, timbur eða stál. Ég trúi því ekki að nokkur viti bor- inn maður sjái ekki hverskonar vit- leysa þessi þróun er. Eftir Hafstein Sigurbjörnsson Hafsteinn Sigurbjörnsson » Það er vitleysa í þró- un heilbrigðismála að fara að einkavæða þennan málaflokk. Höfundur er eldri borgari. hafsteinnsig@internet.is Staða heilbrigðismála
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.