Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 55

Morgunblaðið - 23.11.2018, Side 55
UMRÆÐAN 55 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 www.nordicstore.is CanadaGoose fæst í Lækjargötu Í Nordic Store Lækjargötu 2 er mesta úrval af Canada Goose vörum fyrir herra og dömur á landinu. Opið til kl. 22.00 alla daga. 40% afsláttur Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is facebook.com/caratskartgripir instagram.com/carat.acredo BLACK FRIDAY Afsláttarkóði í netverslun: blackfriday af Carat skartgripum í silfri og gulli Öðru hvoru heyr- ast raddir þar sem gagnrýnd er sú áhersla sem lögð er á að takmarka út- blástur gróðurhúsa- lofttegunda og gefið í skyn að um eins kon- ar „náttúru- verndarfasisma“ sé að ræða. Engin rök séu fyrir því að stór- aukin losun koltvísýr- ings hafi skaðleg áhrif og aukin orkunotkun sé forsenda þess að jarðarbúar geti bætt hag sinn og hagvöxtur haldið áfram. Síðustu áratugi hefur orku- notkun ekki aukist hægt og ró- lega í samræmi við fjölgun mann- kyns heldur hefur hún margfaldast á hvert mannsbarn. Bent hefur verið á að tölvubylt- ingin sem byggist á stöðugt hrað- virkari örgjörvum spari orku en reyndin er allt önnur þar sem tölvutæknin er notuð til að stýra búnaði sem er orkufrekur svo sem í samgöngum, afþreyingar- iðnaði og á heimilum. Afleiðingar þessarar þróunar eru stöðugt vaxandi sorphaugar sem samanstanda af umbúðum, tækjum og tólum, sem fólk hendir til þess að fá ennþá nýrri og full- komnari búnað, og afgangar frá rekstri heimila og fyrirtækja eins og pappírshaugarnir sem allir kannast við. Þannig að neyslu- aukning samtímans og þá einkum vestrænna samfélaga er megin- orsök aukinnar orkunotkunar. Fyrir u.þ.b. 40 árum, þegar undirritaður var í námi í umhverfisvernd, beindust áhyggj- ur manna að því að við óbreytt ástand myndu olíubirgðir heims- ins endast í um 30 ár og birgðir af helstu nytjamálmum okkar einnig klárast á svipuðum tíma. Á síðari áratugum hafa sjónir manna hins vegar beinst meira að áhrifum hækkandi magns koltví- sýrings og annarra lofttegunda á endurkast sólarljóss frá jörðu. Gufuhvolf jarðar hegðar sér eins og gróðurhús og lokar inni varma en það er ein af forsendum þess að lífvænlegt er á jörðinni. Vegna gífurlegrar aukningar brunagass frá mannlegri starfsemi hefur hitastig jarðar hækkað skv. mæl- ingum um 1°C á síðustu 100 árum og síðustu fjögur ár hafa verið þau heitustu frá því mælingar hófust. Frá árinu 1975 hefur með- alhækkun á áratug verið á bilinu 0,15-0,20°C og með sama áfram- haldi gæti hitastig jarðar hækkað um 4°C fram að næstu aldamót- um. Þessi mikla aukning skýrist fyrst og fremst af aukinni notkun jarðefnaeldsneytis sem hefur tí- faldast frá árinu 1930 og dugir al- menn skynsemi til þess að draga þá ályktun að það hljóti að hafa áhrif á nánasta umhverfi okkar. Þær miklu breytingar sem hafa orðið í framleiðsluháttum okkar og auðveldað okkur lífið hafa því ekki orðið til góðs sé litið til lengri tíma. Skýringin er fyrst og fremst sú að með auknum tækni- framförum höfum við margfaldað neysluna og orkusparandi tækni hefur ekki dugað til að halda los- uninni í skefjum. Hvað er til ráða? Að stinga hausnum í sandinn eins og strúturinn og segja „þetta reddast“ er versta leiðin. Jafnvel þótt heimsenda- spárnar væru ekki réttar værum við mun betur sett með því að takmarka auð- lindanotkun okkar og draga stórlega úr neyslu og hætta bruna jarðefnaelds- neytis. Einhvern að- draganda þarf að sjálfsögðu en miðað við verstu spár er tíminn naumur og bregðast þarf hratt við. Þetta mun óneitanlega hafa áhrif á lífskjör okkar jarðarbúa og þá einkum þess hluta mann- kyns sem lifir lífi neysluóhófs þar sem nánast ekkert er sparað til þess að fylla upp í tómarúm neyslusamfélagsins. Í stað þess kemur líf þar sem mælikvarðinn byggist á lífsgæðum í stað hag- vaxtar. Hægt er að nefna ótal dæmi þar sem skipt væri yfir í líf þar sem neysla er ekki í fyrirrúmi en lífsgæðin hins vegar meiri. Í stað þess að kaupa okkur ný tæki til heimilis, t.d. bíl, húsgögn og sjónvarp þegar það gamla bilar, getum við dregið fram gömlu tækin sem við eigum í geymslunni og haldið gamla bílnum gangandi eitthvað lengur. Getum við ekki ræktað garðinn okkar frekar en hendast heimshorna á milli í frí- tímanum? Þarf maður að sitja í endalausum bílaröðum tvisvar á dag til þess að komast til og frá vinnu í stað þess að taka fram reiðhjólið eða einfaldlega tvo jafn- fljóta? Það rifjast upp fyrir mér að þegar faðir minn var ungur og bjó í Hafnarfirði en vann í Reykjavík gekk hann á milli bæj- anna daglega og þótti ekki til- tökumál! Sem drengur var ég í sveit mörg sumur á bæ þar sem eina samgöngutækið var gamall traktor. Ég minnist þess alltaf hvílík tilhlökkun það var þegar við fórum tvisvar á sumri eitthvað af bæ. Það sem ég er að segja myndu margir kalla afturhvarf til for- tíðar eða „nostalgíu“. Vissulega, en er það ekki einmitt það sem við þurfum að gera án þess að skerða raunveruleg lífsgæði okk- ar? Erum við ekki búin að gera þessa tilraun og komast að því að hún hefur mistekist? Það þarf að snúa við og gefa sér nýjar for- sendur og markmið. T.d. þær að minnka neysluna í nokkrum skrefum en gera það hratt. Eftir 20 ár getum við metið árangurinn af þeirri tilraun og svarað því hvort hún hafi tekist. Hvernig hagkerfi heimsins taka á þessum breytingum er annað mál en til þess höfum við næga þekkingu og tæknibúnað. Ákveðin öfl stefna heiminum óðfluga á heljarþröm með stríðsrekstri, kúgun og of- nýtingu náttúruauðlinda þar sem umhverfi og fólk er aldrei í fyrir- rúmi. Hvernig við tökum á um- hverfisvanda heimsins er stærsta mál samtímans þótt það fari vel saman við ýmis önnur baráttumál. Er heimurinn á heljarþröm? Eftir Egil Þóri Einarsson Egill Þórir Einarsson » Fjallað er um þá hættu sem steðjar að mannkyni vegna gróðurhúsaáhrifa og mikilvægi þess að minnka orkunotkun og neysluhyggju. Höfundur er efnaverkfræðingur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auð- velt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfs- fólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.