Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Í hátísku, há- rauðri sixtís dömu- dragt og rauðum nælonsokkum í stíl. Á háum hælum. Hún situr með krosslagða fætur, afar tignarleg, með bros á vör og glettni í augum, svolítið prakk- araleg á svip. Yfirveguð. Þessi mynd af Agnesi, föðursystur okkar, var í einu af mörgum albúmum hjá for- eldrum hennar, Gunn-ömmu og Geira afa okkar. Tekin fyrir meira en 40 árum. Mynd sem hef- ur verið okkur hugleikin síðustu daga því hún lýsir Öggu frænku svo vel. Hún var einstaklega skemmti- leg kona, glæsileg, gáfuð og list- ræn. Hún vakti athygli alls staðar þar sem hún kom, ekki vegna þess að það færi mikið fyrir henni því hún var frekar hæglát, gekk hægt og talaði frekar lágt en hún hafði mikinn sjarma og fólk lað- aðist að henni. Og hún tók á móti því með bros á vör. Sagði sögur, oftast skemmtisögur og hló jafn mikið að sínum eigin og annarra. Hún var afar hláturmild og gott og gaman að vera í kringum hana. Agnes virtist líka geta allt og var óhrædd við að ráðast í ný verk- efni, alls óskyld þeim sem hún áð- ur hafði sinnt. Bókhaldarinn Agnes, listakon- an Agnes, kórkonan Agnes, myndlistarkonan Agnes, glerlist- arkonan Agnes og fatahönnuður- inn Agnes. En fyrst og fremst eiginkonan, mamman, amman, dóttirin, syst- Agnes Geirsdóttir ✝ Agnes Geirs-dóttir fæddist 28. apríl 1952. Hún lést 28. október 2018. Útförin fór fram 16. nóvember 2018. irin og frænkan. Agnes elskaði fólkið sitt heitt og ástin milli hennar og Guð- jóns var einstaklega falleg. Það er mikil sorg í hjarta okkar sem elskuðum hana. Elsku hjartans Guð- jón, Habbý, Geiri, Hildur, Kristín og fjölskyldur og systk- ini Agnesar, innileg- ar samúðarkveðjur, elskurnar. Það er svo margt að una við, að elska, þrá og gleðjast við, jafnt orð, sem þögn og lit sem lag, jafnt langa nótt, sem bjartan dag. Mér fátt er kærra öðru eitt ég elska lífið djúpt og heitt, því allt, sem maður óskar, næst og allir draumar geta ræzt. Ég byggi hlátraheima í húmi langrar nætur. Af svefni upp í söngvahug með sól ég rís á fætur. Og augun geisla af gleði sem grær í mínu hjarta. En syrti að ég syng mig inn í sólskinsveröld bjarta. (Kristján frá Djúpalæk) Agnes föðursystir okkar elsk- aði lífið djúpt og heitt og lét drauma sína rætast. Þannig minnumst við hennar og verðum ávallt þakklát fyrir samfylgdina. Margrét, Íris Dögg og Pétur Hafliði Marteinsbörn. Við æskuvinkonur minnumst yndislegu Öggu okkar sem nú hefur kvatt lífið. Agga var alveg einstök manneskja og eftirminni- leg þeim sem hún kynntist, svo full af orku og framkvæmdagleði. Það er sárt að hugsa til þess að hún verði ekki með okkur á gleði- stundum vinahópsins. Agga var mikil dama, stór- glæsileg og sjarmeraði fólk auð- veldlega með sinni geislandi kát- ínu og skemmtilegheitum og naut maður þess að vera í kringum hana þar sem hún var óhjákvæmi- lega miðdepill samkomunnar. Hún var strax sjálfstæð í hugsun og vildi snemma standa á eigin fótum og taka þátt í lífinu, fannst ekki eftir neinu að bíða, fór strax eftir gagnfræðapróf að vinna í spunaverksmiðjunni á Álafossi en á þeim tíma var þar mikið um að vera, líf og fjör. Þar eignaðist hún marga góða vini. Hún var fljót- lega beðin um að færa sig yfir á skrifstofuna og fékk þar að eigin sögn þann besta læriföður í bók- haldi sem nokkur gæti hugsað sér og varð fljótt mjög fær í því og gegndi seinna nokkrum ábyrgð- arstöðum tengdu því. Agga var á við tvo til þrjá í vinnu og var það vel metið af hennar vinnuveitendum. Flest sem Agga tók sér fyrir hendur gerði hún stórt í sniðum, t.d. þeg- ar hún bakaði þá voru það 18 botnar, ekki tveir eða fjórir eins og við hinar hefðum gert. Agga hefur haft mörg mismun- andi áhugamál á hverjum tíma fyrir sig og og sinnt þeim af sama krafti. Agga gerðist fyrir nokkr- um árum fatahönnuður og varð mjög vinsæl. Saumaklúbburinn „Sogavegssystur og ein úr Stóra- gerði“ og makar okkar höfum brallað margt skemmtilegt sam- an, farið í ferðalög bæði innan- lands og utan, haldið árleg þorra- blót, farið á tónleika, í leikhús og margt fleira sem við eigum góðar minningar frá og munu ylja okkur um ókomna tíð. Við vottum Guðjóni, börnum þeirra beggja og fjölskyldum okkar innilegustu samúð. Vertu sæl, kæra vinkona, og hvíl í friði. Sigríður Stefánsdóttir Áshildur Þorsteinsdóttir Ásdís Jakobsdóttir Kristín Steingrímsdóttir og makar. Elsku amma. Ég á erfitt með að átta mig á því að þú sért farin. Að ég muni aldrei aftur sitja í eldhúsinu ykkar afa í Þykkvabænum, á meðan ég fylgist með þér bera fram ný- bökuð rúnstykki með sesam- fræjum sem við smyrjum síðan með smjöri og osti. Að við mun- um aldrei aftur spjalla saman við kringlótta borðið við gluggann á meðan MoccaMas- terinn gutlar taktfast og við bíð- um eftir að kakan sem þú bak- aðir og settir í frystinn fyrir nokkrum dögum síðan, sem væri fín að eiga ef einhver skyldi kíkja í kaffi, þiðni. Það er sárt að missa þig. Þú tókst þér alltaf tíma til að leika við okkur barnabörnin. Í litla húsinu í garðinum hjá ykkur afa höfum við leikið okkur með dúkkur sem mamma og Dóra áttu þegar þær voru litlar. Klætt okkur upp í gamla kjóla og hatta. Drukkið appelsínudjús búinn til úr þykkni sem var bor- inn fram með rúsínum í litla hvíta dúkkustellinu með rauðu hjörtunum. Þegar við urðum eldri og þurftum næði til að læra undir próf fluttu mörg okkar inn til ykkar afa. Þú stjanaðir þá við okkur með bakstri og róaðir metnaðarfull- ar próftaugar með því að hrósa Inger Ragnarsdóttir ✝ IngerRagnarsdóttir fæddist 23. maí 1937. Hún lést 25. október 2018. Útförin fór fram 9. nóvember 2018. hinum gyllta með- alvegi, sem þú sagðir að væri besta leiðin að lifa lífinu. Í stofunni ykkar safnaðist fjölskyldan saman við hátíðir, ferm- ingar, skírnir, út- skriftir, pipar- kökuskreytingar, sunnudagsmat og afmæli. Börn, barnabörn og loks barnabarna- börn hafa hlaupið um gólfin og fundið fyrir hlýjunni hjá ykkur afa. Ljúfar minningar um sumar- bústaðarferðir í Brekkukot þar sem við drullumölluðum dýrind- is kökur, veiddum hornsíli í vatninu, lékum við dúkkulísur og borðuðum skyr með kræki- berjum og rjóma. Þegar ég, fyrir fimm árum, þurfti hjálp með að passa Vig- dísi þegar ég fór til Bandaríkj- anna sem hluti af doktorsnámi í læknisfræði komuð þið afi bæði með í heilan mánuð. Ég veit að það var ekki auðvelt að ferðast svona langt og passa þriggja ára barn, þið bæði að nálgast áttrætt, en þið drifuð ykkur með. Þar fékk Vigdís að kynn- ast ykkur vel, þið fylgduð henni í leikskólann, lásuð fyrir hana, fóruð með hana á leikvöllinn og steiktuð lummur. Dýrmætar minningar. Eftir situr djúpstætt þakk- læti fyrir allar stundirnar sem við fengum saman. Þín verður sárt saknað, elsku amma. Þín Hildur. Farðu með þetta til Egils Daða (Egilsstaða) var fimmaur sem stundum var notaður með tilliti til þess að ég var frá Egilsstöð- um. Við kynntumst fyrst í BT, hann einn af þeim sem ákváðu að vera áfram í BT Skeifunni þegar sveitalubbinn kom að austan, hann reyndist happafengur. Það var bara gaman að vera með Agli því þótt það væri tals- verður aldursmunur smullum við saman, sennilega mættumst við á miðri leið, hann ákveðinn, þrosk- aður ungur maður með fram- tíðarplön og ég maður þið skiljið hvað ég á við. Hann var ráðagóður og við gáfum hvor öðrum ráð og því má segja að við höfum verið trún- aðarvinir, sérstaklega á þessum BT-árum. Minningarnar eru endalausar því við unnum þétt saman. Eitt sinn mætti Egill eftir hádegishlé og sagði heldur fátt og það sem hann sagði var óskiljanlegt. Þegar ég fékk upp úr honum hvað væri að kom í ljós að hann hafði sett í sig tungulokk og tal- aði því óskiljanlega, það fauk nú aðeins í mig og ég spurði hann því hann hefði ekki gert þetta seinni partinn, því ekki gat hann selt tölvur svona máli farinn. Þá gekk hann inn á klósett og kippti lokknum úr og þar við sat. Týpískur Egill, ef maður sagði Egill Daði Ólafsson ✝ Egill DaðiÓlafsson fæddist 1. október 1984. Hann lést 26. október 2018. Útför Egils Daða fór fram 12. nóvember 2018. stökktu þá sagði hann: „Hversu hátt?“ Önnur saga sem er eftirminnileg átti sér stað þegar mig og hljómsveitina mína VAX langaði að gera myndband í kringum árið 2005 og í því þurfti þrekinn mann sem tilbúinn var að klæða sig í kven- mannsföt. Kómísk stund þegar við Egill sitjum í versluninni. Stórar stelpur ásamt tánings- dóttur minni og erum að máta háhælaskó númer 42+. Ég veit ekki hvert afgreiðslukonan ætl- aði eða viðskiptavinir sem komu þarna inn. Við vorum bara ánægðir með okkur og fannst við vera ágætis par. Seinna þegar Egill var að út- skrifast og þurfti að fara að sækja um vinnu sem háttvirtur lögfræðingur hringdi hann. „Nei nei, ekkert taka mynd- bandið út, bara nafnið svo það googlist ekki.“ Myndbandið var tekið út og sett inn án nafnsins, því drengur- inn vann leiksigur og lagið var nokkuð vinsælt ásamt mynd- bandinu, en áhorfum fækkaði við þennan gjörning því þau voru orðin nokkur þúsund. Þannig var þetta bara, alltaf til í stuð og sprell þó að jarðbind- ingin væri til staðar og því var það áfall að fá þessar fréttir. Eftir sitja góðar minningar, sumar best geymdar þar til við hittumst síðar. Ættingjum og vinum sendi ég samúðarkveðjur að austan. Hvíl í friði, Egill Daði. Þinn vinur Halldór B. Warén. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÖNNU S. SVEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Mánateigs, Hrafnistu í Reykjavík. Sveinn Heiðar Gunnarsson Sigríður Jakobsdóttir Pálmar Smári Gunnarsson Norisa Suana Gunnarsson Kristján Ragnar Gunnarsson Gréta Ebba Bjargmundsdóttir Heimir Örn Gunnarsson Helena Vignisdóttir og ömmubörn Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar, tengdaföður, bróður, afa og langafa, JÓNS HAFSTEINS JÓNSSONAR stærðfræðings. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og íbúum á Droplaugarstöðum fyrir samfylgdina síðustu ár. Guðmundur Karl Jónsson Olga Björg Jónsdóttir Nanna Ingibjörg Jónsdóttir Jón Ingvar Jónsson Brigitte M. Jónsson Ingvar Gýgjar Jónsson og fjölskyldur Það skænir vatn á skálda- brunni. Hljóð sú rödd er kvæðin kunni. Kveðja hausts úr dökkum runni. Samt líða ljóðin fram að muna af munni. (JHÁ) Blessuð sé minning vinar og góðs manns. Jón og Sæbjörg (Lalla). Í dag kveðjum við Erling Sigurðarson skáld og fyrrver- andi íslenskukennara við Menntaskólann á Akureyri. Er- lingur kenndi við skólann 1978 – 1997 að hann lét af störfum vegna veikinda. Erlingur var aðsópsmikill kennari, kvað skýrt að og lá hátt rómur. Hann hafði sterkar skoðanir, vildi Erlingur Sigurðarson ✝ Erlingur Sig-urðarson fæddist 26. júní 1948. Hann lést 12. nóvember 2018. Útför hans fór fram 22. nóv- ember 2018. ekkert hálfkák og alls ekki gagnvart íslensku máli. Er- lingur var mikill ljóðaunnandi og kunni heilu ljóða- söfnin og flutti ljóð svo unun var á að hlýða. Þegar hann gaf út eigin ljóða- bækur kom í ljós magnað og tilfinn- ingaríkt skáld. Er- lingi var tamt að leiðsegja og naut ég þess þegar ég kom að skólanum. Ég kveð vin og félaga með trega. Menntaskólinn á Akureyri minnist Erlings með söknuði og sendir fjölskyldu hans og vinum samúðarkveðjur. Jón Már Héðinsson, skólameistari. Til Siggu, Ernu, Sigga og Kára. Sama staðar. Lognkyrr haustbirta: Hundgá, fjárjarmur, söngur, hófadynur, fleygur á lofti – og drengur sofnar að kvöldi fullorðinn; Fyrstu göngur. Framtíðin brosir: Engu að kvíða lengur. Vindsvalt nátthúm: Í flóanum bærist brokið og blástörin viknar, titrandi af vetrarkvíða. Svefnlausar nætur: Síðustu göngum lokið. Söngurinn hljóðnaður: Einskis lengur að bíða. (E.S.) Nú er söngurinn hljóðnaður, síðustu göngum lokið, smala- maður hefur kvatt. Erlingur vinur minn er fallinn. Kynni okkar hófust fyrsta vetur minn í MA, vegna áhuga okkar beggja á að spila bridge. Hann var þá á síðasta ári í námi þar. Ég vissi hann vera afburðanem- anda, sérstaklega í íslensku. Veturinn eftir kenndi hann mér íslensku og mun sjaldgæft að nýstúdent hafi kennt við skól- ann. Mér þótti hann afbragðs kennari og skemmtilegur. Meiri urðu kynni okkar þó á Akureyr- arárum mínum eftir 1980, en segja mátti að ég væri heima- gangur á heimili þeirra Siggu í Vanabyggðinni í nokkur ár. Þar var alltaf jafn gaman að koma. Húsráðendur stórgreindir, skemmtilegir og viðræðugóðir, hvort sem rætt var um pólitík, bókmenntir, söng eða aðrar listir. Þó skipuðu ljóð löngum öndvegið. Það var þó ekki fyrr en alllöngu síðar að ég kynntist því hversu gríðarlega gott ljóð- skáld Erlingur var. Eftir að ég fluttist frá Akureyri varð vissu- lega vík milli vina. Þó hittumst við alltaf öðru hvoru og þau heimsóttu okkur hjónin og við þau. Síðast í janúar á þessu ári áttum við hjónin góða kvöld- heimsókn hjá þeim sómahjón- um en þá sáum við best hvernig sjúkdómurinn hafði dregið máttinn úr Erlingi þó andinn væri óbugaður. Lengi höfum við dáðst að því hversu æðru- laust þau Erlingur og Sigga tókust á við sjúkdóm hans og létu hann ekki hindra sig í að ferðast, hvorki innan lands né utan. Að lokinni vegferð vil ég þakka Erlingi samfylgdina. Ég er ríkari að hafa átt hann að vini. Hans er gott að minnast. Við hjónin sendum fjölskyld- unni góðar kveðjur. Rögnvaldur Ólafsson í Flugumýrarhvammi. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.