Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 71

Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 71
Þá var hann afleysingalæknir við 12 heilsugæslustöðvar á námsárunum, starfaði við Heilsugæslustöðina í Vest- mannaeyjum 1985-86, starfaði með framhaldsnámi í Svíþjóð 1986-90, hef- ur starfað við Heilsugæslustöðina í Vestmannaeyjum frá 1990 og var þar yfirlæknir 1991-94. Hjalti stofnaði þunglyndishóp við Heilsugæslustöðina í Vestmanna- eyjum 1991 og hafði til meðferðar hópa sem áttu við offitu að stríða og vefjagigt. Hann hefur verið læknir ÍBV öðru hverju og læknir landsliðsins í knattspyrnu. Hjalti hefur verið þjálfari Amors, Framherja og KFS í 3. deild knatt- spyrnu og er framkvæmdastjóri, get- raunastjóri og læknir KFS. Hann starfar enn með U-21-lands- liði karla og er nú með 87 landsleiki sem læknir þeirra. Er Hjalti varð 54 ára varð hann elsti leikmaður Íslandssögunnar í mfl. karla í deildakeppni og skoraði mark, elstur manna auðvitað: „Ég er mjög stoltur af því eins og að hafa verið læknir U-21-landsliðs karla á úrslitum EM í Álaborg 2011, sama liðs og er enn að gera garðinn frægan fyrir Ís- land. Svo má geta þess að ég er marg- faldur Íslandsmeistari í getraunum, en klúbburinn minn, KFS, er með lang- besta árangur í getraunakeppni, fyrr og síðar, margfaldur Íslandsmeistari og næstsöluhæsti klúbbur landslins.“ Hjalti hefur skrifað greinar um læknisfræðileg efni í innlend og erlend tímarit. Þá hefur hann kennt lækna- nemum í starfsnámi þeirra í Vest- mannaeyjum. Hann er í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Vestmanna- eyjum. Fjölskylda Hjalti kvæntist 25.8. 1979 Veru Björk Einarsdóttur, f. 12.4. 1958, skólahjúkrunarfræðingi við Grunn- skóla Vestmannaeyja. Hún er dóttir Einars Sigurðssonar og Ragnheiðar Kristjánsdóttur. Börn Hjalta og Veru Bjarkar eru Trausti, f. 7.9. 1982, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna- eyjum og bæjarfulltrúi þar fyrir Sjálf- stæðisflokkinn en kona hans er Unnur Líf Ingadóttir kennari og eru dætur þeirra Bjartey Perla og Glódís Perla; Tryggvi, f. 9.8. 1986, MSc í fjármála- fræði og sérfræðingur hjá CCP og for- maður Hugverkaráðs en kona hans er Guðný Sigurmundsdóttir textílhönn- uður og eru börn þeirra Bjartur, Eva Eldey og Árni Stormur; Árni Garðar, f. 4.4. 1988, lést af slysförum 28.7. 1992, og Ragnheiður Perla, f. 29.11. 1993, hjúkrunarfræðingur en maður hennar Bragi Magnússon verkfræðingur og er dóttir þeirra Margrét Perla. Systkini Hjalta eru Hildur Krist- jánsdóttir, f. 14.10. 1950, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, gift Ingibirni Tómasi Hafsteinssyni verslunarstjóra; Halldór, f. 29.5. 1952, rafmagnsverk- fræðingur og fyrrv. forseti Lions- hreyfingarinnar á Íslandi, kvæntur Jennýju Ágústsdóttur tannlækni; Sig- urður, f. 23.2. 1955, barnalæknir á LSH, kvæntur Bergljótu Steinsdóttur hjúkrunarfræðingi en var áður kvænt- ur Önnu Daníelsdóttur tannlækni, og Guðrún Þura, f. 28.1. 1966, sjúkraþjálf- ari. Foreldrar Hjalta: Kristján S. Sig- urðsson, f. 14.11. 1924, d. 9.11. 1997, yf- irlæknir við Sjúkrahúsið í Keflavík, og k.h., Valgerður G. Halldórsdóttir, f. 20.4. 1929, d. 2002, húsmóðir. Úr frændgarði Hjalta Kristjánssonar Hjalti Kristjánsson Kristján S. Sigurðsson yfirlæknir í Keflavík Valgerður G. Halldórsdóttir húsfreyja í Keflavík Jón Kristvinsson bóndi í Mýrarkoti í Laxárdal,A-Hún. Guðný Anna Jónsdóttir húsfreyja í Mýrarkoti Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Garði Guðni Kjartansson bóndi í Hælavík Hjálmfríður Ísleifsdóttir húsfreyja í Hælavík Stefanía Halldóra Guðnadóttir húsfreyja í Hælavík Kristín Arnórsdóttir húsfreyja á Læk Sigurður Sigurðsson bóndi í Hælavík Sigurður Friðriksson b. á Læk íAðalvík Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur Halldór Kristjánsson rafmagns- verkfræðingur og fv. forseti Lionshreyfingarinnar á Íslandi Sigurður Kristjánsson yfirlæknir við LSH Guðrún Þura Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari Fríða Sigurðardóttir rithöfundur Jakobína Sigurðardóttir rithöfundur Árni Jónsson bóndi í Garði Guðbjörg Stefánsdóttir húsfreyja í Garði Halldór Árnason b. í Garði í Mývatnssv. Þura Árnadóttir skáldkona í Garði örgvin Árnason bóndi í GarðiBjStarri Björgvinsson hagyrðingur í Garði Jón Árnason æknir á Kópaskeril Anna Jónsdóttir húsfreyja í Rvík Ólafur J. Ólafsson rith. og framkvstj. Hjalti Læknir U-21 landsliðsins. ÍSLENDINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 og vinnuljós fyrir íslen skan vetur! Vandaðir vetrarhanskar í úrvali Jónas Sturla Gíslason fæddist íReykjavík 23.11. 1926. For-eldrar hans voru Gísli Jónas- son, skólastjóri við Langholtsskóla í Reykjavík, og k.h., Margrét Jóna Jónsdóttir húsfreyja. Systkini hans sammæðra voru Guðlaug Lára Jónsdóttir húsfreyja; Ólafur Jónsson málara- meistari; Jón Pétur Jónsson for- stjóri, og Áslaug Jónsdóttir hús- freyja. Eiginkona Jónasar var Arnfríður Inga Arnmundsdóttur, f. 1928, d. 1999, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Arnmundur Gíslason og k.h., Ingiríður Sigurðardóttir. Synir Jón- asar og Arnfríðar eru Gísli, sóknar- prestur í Breiðholtsprestakalli, og Arnmundur Kristinn, fv. sölustjóri. Jónas varð stúdent frá MR 1946, lauk embættisprófi frá HÍ 1950 og stundaði framhaldsnám í kirkjusögu og trúfræði við Oslóarháskóla og Safnaðarháskólann í Ósló 1950-51. Jónas var prestur í Vík í Mýrdal 1953-64, var fulltrúi hjá Almenna bókafélaginu 1964, sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn 1964-70, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar 1970 og sóknarprestur í Grensássókn 1970-73. Hann var aðjúnkt í kirkjusögu við guðfræði- deild HÍ 1971-73, skipaður Iektor 1973, var dósent 1977-88 og prófess- or við guðfræðideild á árunum 1988- 90. Jónas var vígslubiskup í Skál- holtsstifti 1989-94 er hann lét af störfum sökum vanheilsu. Ungur kynntist Jónas starfi KFUM og sótti hann fundi þar til æviloka. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a. innan þjóð- kirkjunnar og sat í stjórnum ýmissa félaga. Jónas ritaði bækur og fjölda greina og ritgerða um guðfræðileg og sagnfræðileg efni, m.a. í Kirkju- ritið, útgáfur á vegum HÍ, auk greina sem birtust í erlendum ritum. Einnig þýddi hann fjölda rita og greina. Jónas lést 18.11. 1998. Merkir Íslendingar Jónas Sturla Gíslason 90 ára Kristín Ólafsdóttir 85 ára Hreiðar Jónsson Sveinn Klemens Andrésson 80 ára Andrés Grímólfsson Auður H. Hagalín Erla María Andrésdóttir Guðrún Böðvarsdóttir Knútur Valmundsson Ægir Einarsson 75 ára Guðrún Þ. Ólafsdóttir Herdís Eiríksdóttir Sigríður Bogadóttir Sigurður G. Björgvinsson Vilborg Guðjónsdóttir Þórunn G. Pétursdóttir 70 ára Bára Halldórsdóttir Gylfi Þ. Gunnarsson Jakobína Óskarsdóttir Sæmundur Rögnvaldsson 60 ára Anna Björnsdóttir Baldvin Reynisson Birna Halldóra Einarsdóttir Guðlaug Þ. Sobol Hanna Lóa Kristinsdóttir Kristín Þorvaldsdóttir Magnús Már Kristinsson Már Þorvarðarson Naima Moukhliss Ólafur Þór Jónsson Ómar Már Gunnarsson Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Zbigniew Luczaj 50 ára Árni Gunnar Sveinsson Dagbjört Þórey Ævarsdóttir Friðrik Grétarsson Garðar Baldursson Gediminas Majauskas Guðríður I. Kristjánsdóttir Ingunn Pedersen Kristrún Marvinsdóttir Robert Wyrzykowski Stefán Haukur Kjartansson Sveinbjörn Höskuldsson Tryggvi M. Stefánsson Valgerður Yngvadóttir Waldemar Kaminski Þóra Íris Gísladóttir 40 ára Ágúst Malmkvist Árnason Claudia Cecilia Ortiz Daníel Jóhannsson Dennis Stoll Friðberg Helgi Bergsson Guðrún E. Arinbjarnardóttir Hafþór Guðmundsson Jón Þór Klemensson Jón Örn Stefánsson Kolbrún Kristinsdóttir Mariusz Kluk Sturla Bjarki Hrafnsson Þórunn Ragnarsdóttir 30 ára Adrian Lewandowski Aleksandar Marinkovic Andri Már Sigurðsson Bragi Björn Kristinsson Dalíla Lirio Fannarsdóttir Elmar Bragi Einarsson Elvar Ingi Möller Elzbieta Wisniewska Hannes Ármannsson Iwona Katarzyna Ryta Karol Wiacek Margrét A. Blængsdóttir Oddný Karen Arnardóttir Snorri Sveinsson Unnur Fjóla Heiðarsdóttir Vigdís Hlíf Pálsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigrún býr í Borg- arnesi, lauk MSc-prófi í forystu og stjórnun frá Bifröst, stundar nám í lögreglufræði, situr í bæj- arstjórn og er í lögregl- unni, kennir og þjálfar. Systkini: Sigurður Ingv- ar, f. 1981; Guðrún Ósk, f. 1987, og Arna Hrönn, f. 2001. Foreldrar: Ámundi Sig- urðsson, f. 1957, og Ragn- heiður Guðmundsdóttir, f. 1963. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 30 ára Erna býr í Eyjum, lauk MEd-prófi í tóm- stunda- og félagsmála- fræði og er í fæðingarorlofi. Maki: Óskar Snær Vignis- son, f. 1983, starfsmaður hjá Tryggingamiðlun Ís- lands. Börn: Emilía Rós, f. 2007; Andri Snær, f. 2012, og Bergdís Embla, f. 2018. Foreldrar: Guðný Björg- vinsdóttir, f. 1966, og Georg Skæringsson, f. 1966. Erna Georgsdóttir 40 ára Svavar ólst upp í Reykjavík, er þar búsett- ur, lauk BSc-prófi í tölv- unarfræði við Háskóla Ís- lands og starfar í tölvu- öryggi. Bróðir: Gunnar Már Her- mannsson, f. 1989, læknir í Svíþjóð. Foreldrar: Hermann Auð- unsson, f. 1947, fv. fram- kvæmdastjóri í Kópavogi, og Guðlaug Nielsen, f. 1952, kennari, búsett á Seltjarnarnesi. Svavar Ingi Hermansson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.