Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 73

Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 73
DÆGRADVÖL 73 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 Notalegt í skammdeginu Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 Gamaldags 14“‘ lampi, verð 18.350 Fjósalukt, svört, grá eða rauð, verð 4.980 Glóðarnet og aðrir varahlutir fyrir Aladdin lampa fyrirliggjandi Comet 11“‘ lampi, verð 8.900 Glerkúplar verð frá 9.900 Lampaglös í úrvali, verð frá 3.120 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Kveikir í úrvali, verð frá 1.190 Ný vefverslun brynja.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einhver gerir þér gramt í geði í dag. Munið að sýna öðrum sanngirni og skilning. Léttu á hjarta þínu við góðan vin sem þú treystir til að ráða þér heilt. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki aðra verða til þess að þú lokir þínar tilfinningar inni. Reyndu að greiða götu góðs vinar. Passaðu þig á að eyða ekki of miklu fyrir jólin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hláturinn lengir lífið svo það er ágætt að hafa gamanmál á takteinum þeg- ar það á við. Gefðu þér tíma til þess að gera hlutina vel, það margborgar sig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Deilur innan fjölskyldunnar valda miklum erfiðleikum. Fólk laðast að þér og nú er rétti tíminn til að taka höndum saman og vinna góð verk. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert í raun að bíða eftir að sannleik- urinn komi í ljós. Stundum er best að gera ekki neitt. Gæfuhjólið snýst þér í hag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Smá vinna hér og þar safnast saman og verður að einhverju sem þú mátt vera stolt/ur af. Blandaðu geði við aðra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er einhver léttleiki yfir þér og það liggur eittvað óvænt í loftinu. Allt bendir til ferðalags fljótlega á nýju ári. Þegar eggið ætlar að fara að kenna hænunni segir þú stopp. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ættir að ná takmarki þínu, þar sem þú leggur svo hart að þér. Mundu að börnin vaxa hratt og tíminn með þeim er dýrmætur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu hugmyndunum sem þú færð á næstu vikum gætur, þú ert í mikilli sveiflu. Hvernig væri að prófa eitthvað nýtt? 22. des. - 19. janúar Steingeit Í dag gætir þú átt það til að gagnrýna fólk um of. Einhver mun hugs- anlega gefa þér góð ráð. Þú vinnur baki brotnu að því að klára framkvæmdir fyrir jól – það mun takast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú vaknar upp við vondan draum, jú hvað varð af áramótaheitinu um líkamsræktina? Allt er betra en ekkert, drífðu þig út í göngutúr. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er eitt og annað að gerast í kringum þig. Skipuleggðu vinnutímann bet- ur og leitaðu aðstoðar með það sem þarf. Róm var ekki byggð á einum degi. Guðmundur Arnfinnsson birti„Kaffivísu“ á Boðnarmiði: Morgunkaffið léttir lund, linar straff og kvíðann, einnig snaffs í morgunmund mér vel skaffar líðan. Og bætti síðan við: „Þórbergur Þórðarson botnað eftirfarandi fyrripart skáldkvennanna, Herdísar og Ólínu þannig. Þær byrjuðu: Það er straff og þrautin mest þegar kaffið vantar. Þórbergur bætti við: Gír- á -affa fara þeir flest fá þá paffið gantar!“ Mér þykir ekki rétt að skilja þannig við kveðskap Þórbergs og rifja upp „Eina heimspekilega sam- líkingu“: Særótið bergið brýtur og byltir því niður í haf; það sér aldrei framar þá sólu, er sveitamenn guma svo af. Mín fýsn er sem úthafsins alda, er ólmast við hrynjandi sker. Sætleiki kvenholdsins sverfur siðferðisbjargið í mér. Enn um kaffið á Boðnarmiði, – Magnús Halldórsson yrkir: Nunnan, hún systir Soffía, varð súr út í kaffivél nýja. Á borðið hún lagði, bollann og sagði. Ó guð, láti grön mína sía. Sigurlín Hermannsdóttir kallar þetta „Vonda vísu: Vísu ég vil gjarnan semja þótt verð’ana saman að lemja hvorki er fiskur né fugl bara fáránlegt rugl æ, andann er torvelt að temja. Á mánudagskvöldið klukkan 20.07 heyrðist malið í Jósefínu Meu- lengracht Dietrich: Á myrkraveldi um víðan geim vetur hefur strangar gætur en með björtum augum tveim upp ég lýsi dimmar nætur. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason spyr: „Heilsubótarganga?“ og svar- ar sér sjálfur: Yfir labba urð og grjót aur og moldarkekki það á að heita heilsubót ég held það sé nú ekki! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kaffivísa og siðferðis- bjarg Þorbergs Í klípu „HVAÐ ERTU MEÐ Í POKAHORNINU? ÓHREINT MJÖL?” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „Þú lítur miklu betur út!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna hvort annað. HEIMURINN MUN LENGI MINNAST MÍN! MENN MUNU SEGJA „Frábær köttur, þessi … hm …” „… GRETTIR!” ÞAÐ VAR FALLEGT AF YKKUR AÐ KÍKJA Í HEIMSÓKN OG BJÓÐA OKKUR VELKOMIN Í HVERFIÐ! MUNIÐ AÐ EF YKKUR VANTAR EITTHVAÐ ÞÁ LÁTIÐ ÞIÐ MIG VITA OG ÉG RÆNI ÞVÍ Í NÆSTU RÁNSFERÐ! Víkverji er næmur maður, já eðakona eftir því hvernig á það er litið. Víkverji skynjar þegar ólga er í gangi. Hann getur ekki alltaf hent reiður á hvað valdi ólgunni en reynir að komast að því eftir bestu getu. x x x Víkverji skynjar einhvern óróleika ímannlífinu og náttúrunni.. Hvort sem um er að ræða afleiðingar hlýn- unar jarðar eða eitthvað annað þá eru afleiðingar flóða, hvirfilbylja og skóg- arelda hroðalegar og snerta marga. Sem betur fer sleppa Íslendingar vel frá flóðum, hvirfilbyljum og skógar- eldum en í ljósi sögunnar vita Íslend- ingar alveg hvað náttúran getur verið grimm og þekkja angistina og sárs- aukann sem fylgir náttúruhamförum, slysum á sjó, og öðrum harmleikjum. Þeir vita hversu djúp spor það mark- ar í líf ættingja þeirra sem slasast eða farast og sveitunga þeirra. x x x Víkverji hefur heyrt umræðu semstundum er í hneykslunartón um það hvernig fólki detti í hug að búa á eldgosa- og snjóflóðasvæðum eða á sérlega vindasömum og snjóþungum svæðum. Víkverji sem er vel lesinn og kynnir sér málin áður en hann kastar einhverju fram spyr á móti: „Hvar eru örugg svæði að búa á á Íslandi?“ og ef umræðan er í rök- ræðustíl en ekki upphrópunum er niðurstaðan oftast sú að það sé í raun varla hægt að finna einn stað örugg- ari en annan. x x x Glöggir lesendur hafa eflaust tekiðeftir því að Víkverji skrifaði „Ef umræðan er í rökræðustíl,“ en það er mikilvægt að ræða hlutina, enn betra að rökræða þá og allra verst er að eiga samskipti með upp- hrópunum. x x x Víkverja finnst upphrópanir ogsleggjudómar tröllríða allri um- ræðu og Víkverji fullyrðir að slík samskipti skili litlu þar sem allt of margir sitji eftir með sárt ennið. Ráð- legging Víkverja til lesenda sem vilja fá niðurstöðu er einföld: „Talið sam- an og hlustið á rök hver annarra.“ vikverji@mbl.is Víkverji Munnur minn er fullur lofgjörðar um þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag- inn. (Sálmarnir 71.8)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.